4.5.2008 | 22:34
Tíminn og ég...... eða þannig.
Hér er ennþá verið að fljúga í þessum rituðu orðum, en það var ekki flogið í dag, austanátt og þvert á brautina. En hér var risamót um helgina, Blakmót, og svo Fossavatnsgangann, og bara á blakmótinu voru um 700 manns, og eitthvað hefur nú komið af skíðagöngufólki, allstaðar að úr heiminum í Fossavatnsgönguna. Svo það voru áætlaðar 11 flugvélar hingað í dag. En eins og allir sem þekkja til vita, þá kemur yfirleitt logn á kvöldin, og núna er orðið svo bjart frameftir, að það var hægt að fljúga í kvöld. Vonandi hafa allir náð til síns heima.
Hér er peran mín, ég er viss um að okkur mun líka vel við hana, og vonandi líkar henni vel við okkur. Hún lofar allavega góðu, ljúf og dugleg. En það mun koma í ljós.
Töffarinn og prakkarinn Ásthildur Cesil á leið í afmæli til Isaacs Loga. Hanna Sól, og Úlfur fóru í sund með pabba Úlfs, og fjölskyldu.
Jamm það var dálítið hráslagalegt í Hnífsdal í dag.
En inni var auðvitað notalegt og gaman.
Ömmustrákur á tryllitæki sem hann fékk frá mömmu og pabba. En það kom í ljós að drengurinn er karlremba, því hann vildi ekki að Ásthildur æki gröfunni, en lánaði góðfúslega öðrum strák græjuna
Isobel ömmuprinsessa.
Litlu systkinin.
Þessi er fullur...................................................................... af sælgæti og bíður þess að vera laminn i spað. En við þurftum að fara, því ég var búin að bjóða hluta af fjölskyldunni minni að borða með okkur, þau voru að flytja í dag og í gær.
Það er gaman að leika sér í góðu tómi.
Þessi er sett inn fyrir Hnífsdölsku vinina mína, skólinn og kapellan.
Hott hott á hesti !!!
Sigurjón Dagur með mömmu sinni.
Sóley Ebba spilar á píanóið.
Hanna Sól inn í ömmuskáp.
Og Ásthildur líka inn í ömmuskáp.
Þessi glæsilegi hani er nýjasta gæludýrið..... eða þannig, hann er dverghænsni, og það voru engar hænur eftir hjá honum í hænsnakofanum, og stóri haninn lagði hann í einelti, svo við ákváðum að taka hann niður í garðskála, þar unir hann vel hag sínum, galar að vísu hátt ef Brandur er einhversstaðar nálægt, og svo galar hann hátt og snjallt á morgnanna, svo ekki þarf lengur á vekjaraklukku að halda. Mætti seinka honum aðeins, hann byrjar kl. fimm
en ef einhver þekkir til og veit af dverghænum einhversstaðar, sem þurfa nýtt heimili og glæsilegan hana, þá endilega hafið samband.
Kamelíufrúin mér sýnir á sér flottustu hliðina ever. Glæsileg og flott.
Og svo borðuðum við saman angi af fjölskyldunni minni. Auðvitað læri með tilheyrandi. En ég vona að nú fari aðeins að slakna á í kring um mig. Mér lýst allavega vel á þessa ungu konu sem er komin hingað langa leið til að hjálpa mér, og ég er þakklát fyrir það.
Og ég segi bara góða nótt mínir elskulegu bloggvinir og aðrir lesendur sem hingað koma inn. Knús á ykkur öll.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (27)
4.5.2008 | 18:40
Óspillt víðerni og náttúra, það er framtíðin, en gengur illa að koma fólki í skilning um það.
Mig langar til að vekja athygli á þessari færslu Láru Hönnu, ég hef oft lesið pistlana hennar, og hún er skelegg baráttukona fyrir friðun landsins. Ég einhvernveginn er dálítið hrædd um að við séum að fara fram úr okkur sjálfum í virkjanamálum. Það sem verður verðmætast eftir bara nokkur ár, og er eftil vill nú þegar orðið mikilvægast, er einmitt óspillt náttúra og víðerni. Við eigum að staldra við aðeins og hugsa okkar ráð. Það fólk sem stendur í forsvari fyrir landið okkar, er því miður með einhverja allt aðra sýn á þetta. Þau eru að velta sér upp úr gærdeginum, meðan við þurfum að huga að morgundeginum, börnunum okkar og framtíðinni.
http://larahanna.blog.is/blog/larahanna/entry/528709/#comments
Með bestu kveðjum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
4.5.2008 | 12:32
Smábörn og dýr.
Ég er búin að fá óperuna mín, hún er 28 ára gömul og virðist vera mjög yndæl. Jorga, er hún kölluð, veit ekki hvort það er rétt skrifað. Hún á 7 ára gamla dóttur, sem við höfum þegar boðið henni að koma hingað. Hún er í skóla eins og er.
En ég hef verið svona á síðustus orkudropunum, í gær svoleiðis að ég hef ekki farið blogghringinn minn, og vona að mér fyrirgefist það. Stundum er maður bara úrvinda svona andlega.
En ég er viss um að þetta gengur vel hjá okkur, Jorga er vinkona Áru, svo hún þekkir strax nokkuð til heimilisins.
Ég var að passa þessar tvær í gær, þær eru flottar saman, þessar elskur.
Knúsíknús.
Gott að borða rússur hjá ömmu.
Gott að vera hjá afa.
Gaman saman.
Þær eru tvær en samt þrjár. hehehehe.
Bras með barnið.
Ætlar að ganga ekki alveg nógu vel.
Svo er að máta sokka.
Hæ sæta, ég er flottastur.
Smá um þolinmæði, þetta er hann Zorró.
Æ þessi börn, endalaust að djöflast í manni.
Maður verður víst að þola þetta, svona fyrir húsbóndann.
Nú fer þessu sennilega að ljúka
Eigiði góðan dag elskurnar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
Bloggfærslur 4. maí 2008
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 3
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 40
- Frá upphafi: 2023304
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 29
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar