29.5.2008 | 23:26
Daglegt veður og knús á línuna.
Þessi dagur var fallegur og hlýr. Það er allt að vakna, fólkið vill fá blóm og lit í kring um sig, og gleðin ein ríkir. Þvílíkt sem það er dýrðlegt þegar veðrið er svona gott.
Við vöknum, og sólin sendir geisla sína inn um gluggan til okkar, og segir HÆ! GÓÐAN DAG:
Og úti er kyrrð og fuglasöngur, lækjarniður og friður fyrst og fremst.
Tré og runnar setja út laufin sín, eitt af öðru og grátt verður grænt og allavega litt.
Og fjöllin umlykja mann og vekja manni öryggiskennd.
Túlípanarnir mínir skarta sínu fegursta og leysa mörg stressmál svona í byrjun sumars, með því að vera fallegir og tignarlegir í beðunum, niður alla Pollgötuna.
Guðbjörg í Garðheimum, segir mér að þetta veki athygli langt út fyrir Ísafjörð, og það er bara gaman að heyra það.
vissulega setja þessi fallegu jurtir svip sinn á Ísafjörð á vorin, og mér er sagt að margir hafi tekið upp þennan sið.
Amma taktu mynd af mér, segir skottið mitt hún Hanna Sól.
Aftur á móti tók Hanna Sól þessa mynd af litlu systur og skæruliða.
Nú er ég að grínast hehehehe....
Leikur að skóm, þetta er ekki krokket, heldur Crocs hahahaha..
Slökun gæti þessi mynd heitið.
En ekki lengi ónei
Það er nefnilega farið að fíflast með afa....
Og með Úlfi frænda.
Sem er reyndar rosalega góður við þær systur báðar. Enda titlaður stóri bróðir í dag.
En það kvöldar að, og ró færist yfir bæinn minn.
Og undir svefnin, þá er sólroðin pollurinn sem blasir við.
Ég vil senda þeim sem lentu í jarðskjálftum í dag mínar innilegustu samúðarkveðjur, og vona að allir fái þá aðstoð og hjálp sem þeir geta fengið. Það hlýtur að vera hræðileg tilhugsun að geta aldrei verið óhultur fyrir þessum fjanda, sem kemur eins og þruma úr heiðskíru lofti. Jarðskjálftinn var svo öflugur að hann fannst hér á Ísafirði, af mörgu fólki. Ekki þó mér, því ég er eins og Zombi, sem varla heyrir eða sér neitt í dag. Sendi ykkur bloggvinum sem í þessu lentu knús og kram.
Segi svo bara góða nótt, og því miður eina ferðina enn er ég svo þreytt að ég orka ekki meir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
29.5.2008 | 00:31
Hið daglega veður, og hið daglega Kúlulíf.
Þessi tími er brjálaður, og ég þarf meiri kvóta. Ætli einhver geti leigt mér tímakvóta
En veðrið var fallegt í dag, eins og svo oft áður. Og ég held að sumarið ætli bara að vera, svei mér þá.
Ég setti fyrstu sumarblómin niður á Austurvöll í dag. Ég er ákveðin í að hafa hann fallegan, ég hef grun um að ráðamenn vilji koma honum fyrir kattarnef, allavega klípa af honum, og gera að skólalóð. En ég mun berjast gegn því með oddi og egg. Og ég mun líka berjast fyrir því að ekki verði hróflað við honum eins og hann var teiknaður af Jóni H. Björnssyni. Ég segi nú bara, fólk á að bera virðingu fyrir þeim sem fyrstir fóru. Ég er ekki sátt við að einhverjir geti hróflað við því sem frumkvöðlar hafa mótað eins og þessi garður til dæmis, sem er systurgarður Hallargarðsins í Reykjavík. En ég vil ekki setja inn mynd af honum núna, því hann er illa farin eftir átroðning skólabarna, sem er beitt ótæpilega á hann yfir vetrarmánuðina. Þó auðvitað séu margir í skólanum, sem bera virðingu fyrir garðinum, og hvetji ungmenninn til að ganga vel um, þá er líka hægt að sjá eftirlitsmenn, sem skipta sér ekkert af heilum her af krökkum, sem fara eins og skriða um allan garðinn, upp í tré, og traðka niður runna. Þetta gerist á hverju vori, einmitt þegar garðurinn er viðkvæmastur. Það fer illa í mína sál. Sérstaklega þetta virðingarleysi fyrir öðrum, og þeirra handverki og svo auðvitað vinnunni sem lögð hefur verið í garðinn.
Þessi tekin frá aðeins öðru sjónarhorni.
Já það er Ísafjarðarlogn.
Það er alltaf gott að vakna, og fara fram út, fá sér lýsi og morgunmat.
Sumir geta þó alveg steingleymt sér yfir sjónvarpinu, og lært svolitla ensku í leiðinni.
Ef þið haldið að hún sé alltaf svona gætinn hún Ásthildur Cesil, þá er það misskilningur.
Hún bíður nefnilega bara þangað til hún er orðin ein, og þá er prílað
Má ég kynna ykkur fyrir henni Pernille, hún er upp á sitt fegursta núna, svo falleg og glæsileg að eftir er tekið.
Og svo ein kvöldmynd, tekin fyrir stundu. Solin gægist á fjallatoppum áður en hún rennir sér niður í hafið, til að fara að sofa, því hún vaknar alltaf fyrst á morgnana. En ég sé rúmið mitt í hillingum, og verð bara að fara að skreiðast þangað, og halla mér. Ég býð ykkur góða nótt, og takk fyrir allt. Ég ætla mér að fara eins fljótt og ég get blogghringinn minn, og skoða hvað þið eruð að bralla þessa dagana. Knús á ykkur öll inn í nóttina.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
Bloggfærslur 29. maí 2008
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 3
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 40
- Frá upphafi: 2023304
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 29
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar