Nýr kúlubúi, og daglegt líf.

Ég vil byrja á að segja mikið eruð þið frábær bloggvinir mínir.  Ég hef mikið að gera, og er rosalega þreytt, en að koma svo heim og lesa hlý orð og umhyggju, þá líður mér svo vel.  Þannig að þið gerið svo sannarlega ykkar til að létta mér þessa erfiðu tíma.  Salan gekk vel í dag, fólk kemur og er bara svo glatt, og ánægt.  Finnst svo gaman að koma og skoða blómin, hlusta á fuglasönginn og bara vera til þarna hjá mér.  Að það er frábært.  Þó stjúpurnar mínar séu ennþá litlar, vegna þess að sáningin klikkaði í vetur, þá fyrirgefst mér vegna þess að öll hin blómin eru frábær, þó ég segi sjálf frá. 

IMG_6661

Hafði nú ekki tíma til að taka myndir, en ég varð með þessa litlu pæju, sem hjálpaði ömmu sinni að bera blómin, maður þarf ekki endilega að vera hár í loftinu, þegar maður vill hjálpa til. Cool

IMG_6655

Amma ég ætla að kyssa blómið þitt, sagði Hanna Sól.

IMG_6659

Hún fékk pakka frá pabba sínu, og er búin að máta öll fötin sem hún fékk, í dag, hér er hún að troða sér í sundföt utan yfir kjólinn LoL

IMG_6660

Sú stutta gefur ekki mikið fyrir svoleiðis prjál.

IMG_6662

Þessi stubbur á nú líka uppáhaldsföt, sem hann fer helst í frekar en annað.

IMG_6664

Á ég þennan pakka ? mér líkar betur við svona harða pakka, segir Ásthildur á sínu bla bla máli.

IMG_6665

Eitt dressið.

IMG_6667

Gaman saman.

IMG_6669

Og tjörnin er skemmtilegust.

IMG_6671

Maður er svo rosalega smart í flottum skóm.

IMG_6673

Unnusti og barnsfaðir Jorgu kom í dag, hann hefur fengið vinnu hjá okkur.  Þá vantar bara litla 7 ára stelpu til að fjölskyldan sé hér öll saman.

IMG_6675

Hann kom með gjafir handa stelpunum, Hanna Sól fékk svona sápukúlufisk.

IMG_6677

Ásthildur svona tæki sem spilar ýmis hljóð.  Henni fannst mikið gaman að því.

IMG_6680

Úlfur og Hanna Sól, gleymdu sér alveg yfir sápukúlum.

IMG_6683

Þar voru ýmsar stellingar og hanteringar.

IMG_6684

Jamm þetta hitti beint í mark, ég fékk svona Litháenskt nammi, og brauð frá Litháen, sem ég hlakka til að smakka.

IMG_6686

Vá ein stór !!!

IMG_6689

Hæ ég fann blöðru !

IMG_6692

Hún er voða stór.

IMG_6698

Það voru reyndar fleiri sem höfðu gaman af sápukúluvélinni.

IMG_6700

Jamm þetta er skemmtilegt.

IMG_6702

Fullt af fallegum sápukúlum.

IMG_6704

Þessi er smáhanteruð

IMG_6706

Kvöldið er fagurt sest er sól, og sefur fugl á grein.  Smá stund í næði, er dásamleg, og ég segi bara góða nótt og takk fyrir mig. Heart

 


Opnun garðplöntusölunnar, ævintýrabörn og júróvision.

Já ég er komin heim af fundi hjá Frjalslyndum, reyndar tveimur fundum, miðstjórnarfundi, sem var frekar þungur þar var margt spjallað, og margt sem þurfti að skoða og spá.  Það er gott í stjórnmálaflokkum, þegar skoðanaskipti verða og menn geta rætt saman um erfið mál, það er þroskmerki.

IMG_6620

En svo var á líka á aðalfundi landsambands kvenna í frálslyndaflokknum, hressar flottar konur

IMG_6625

Svo var rokið í Garðheima til að skoða plölnturnar, bera saman og svona og svo kaupa ýmislegt smávegis sem vantaði.  Ég er mjög ánægð með mínar plöntur, eftir að hafa skoðað mig um í stórborginni.

Á leiðinni heim tókum við ungt fólk upp í þau voru á puttanum.  Glaðlegt skemmtilegt fólk.  Einskonar lífskúnstnera.  Þau voru að ferðast um landið á puttanum með hundspott.  Voru á leiðinni til Patró, og komu frá Eskifirði.  Hann sagðist vera það sem kallað er þúsundþjalasmiður, vinna við hvað sem væri í smá tíma og svo færu þau annað.  Hann hefði starfað sem sjómaður, beitningamaður, aðstoðað við sauðburð, og allt sem til félli, hún sagðist hafa mest gaman af að þjálfa hesta.  Hann er samt rosalega góður kokkur sagði hún og hló.

En hvar ætlið þið að sofa ? spurði Elías, eruð þið með tryggt herbergi, við höfum nú ekki áhyggjur af svoleiðis, sögðu þau, þetta reddast alltaf.  Ef maður er með áhyggjur, þá gengur allt illa, en ef maður hefur engar, þá verður allt í lagi.  Við viljum bara vera frjáls, ekki eyða peningunum okkar í bíla og íbúðir.  ´Núna er ég að sýna henni vestfirði, sagði hann, ég hef oft komið hingað, og ég elska vestfirðina.  Ætla núna að reyna að komast á bát á Patró.

IMG_6631

Ævintýrabörn, þau hafa svo sannarlega ýmsilegt að kenna samferðamönnum sínum þetta unga fólk.

IMG_6633

Þau voru búin að vera þrjá mánuði á flakki, í þetta sinn.  Og hver dagur með sínar áherslu.  Ég er alltaf glaður og kátur, sagði hann.  Það er alveg sama hversu dimmt er það er alltaf ljós einhversstaðar.

IMG_6634

Ég hef það á tilfinningunni að þetta sé stytta af Viðari Guðjónsen, heheheh... allavega forföður hans.  

IMG_6639

Dynjandi var sérlega glæsilegur svona snemma vors, vatnsmikill og tilkomumikill, og hér sjást allir fossarnir.

IMG_6646

Þegar við komum heim var sú stutta auðvitað á kafi í skápnum hehehe..

IMG_6648

Svo var verið að næra sig auðvitað.

IMG_6649

Þessi ömmustubbur í heimsókn.

IMG_6650

Hér er verið að spila.

IMG_6652

Ásthildur búin að klæða sig upp í Júróvisjónmúnderinguna.

IMG_6654

Hér er verið að horfa á Regínu Ósk og Friðrik Ómar.

Ég held að þetta hafi verið síðasta Júróvisjón keppnin í þessari mynd.  Það er fullreynt að þetta er ekki spurning um hæfni eða besta lag, heldur að veita sínum vinum flest atkvæðin.  Ég hef grun um að Bretar dragi sig út úr keppninni, og þeir eru jú ein af þjóðinni sem borgar herlegheitin.  Þjóðverjar hafa líka farið illa út undanfarið, og ætli þeir hugsi sig ekki til hreyfings líka.  Af hverju ættu þjóðir að borga keppnina sem hafa enga von um að vinna.   Þetta er eiginlega of langt gengið.  Og sumar af þessum þjóðum eru ekki einu sinni í Evrópu.  Sum fyrrum sovétríki meina ég. 

Annað hvort leggst þessi keppni af, eða henni verður skipt upp í austurevrópu og vesturevrópukeppi. 

Ég er alveg klár á því að þetta getur ekki gengið svona lengur.  Og það er í rauninni ekki hægt að hafa þetta svona lengur.  Því þetta er ekki lengur skemmtileg keppni, heldur pjúra hagsmunapot, og afgreiðsla eftir því hver á í hlut.  Og sigurvegararnir eru ekki aðilarnir sem halda keppninni uppi.  Svoleiðis er nú það.

En ég bið að heilsa ykkur og vona að ég geti bráðum farið að anda aftur.  þetta er rosalegt álag á mér þessa dagana, og ég vil þakka ykkur öllum kommentin ykkar og hlý orð.  Ég kann svo sannarlega að meta það, og það gefur mér mikið.  Takk fyir mig. Heart

Hér eru svo blómin min.

IMG_6615

IMG_6616

Og hún Elísabet frá Portúgal, sem er að aðstoða mig við að halda þeim fallegum. Heart

 


Bloggfærslur 25. maí 2008

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 40
  • Frá upphafi: 2023304

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband