Mig langar að spyrja ykkur að dálitlu!

Það er svoleiðis að fólki mitt frá El Salvador sótti um ríkisborgararétt í nóvember s.l. þau greiddu svo 10.000.- krónur fyrir hvern mann, hjónin og barn sem sagt 30.000.- og munar marga um minna.  Þau báðu mig svo að hringja og spyrjast fyrir um hvað þyrfti til að sækja um aftur og hvort þau þyrftu að greiða aftur fyrir þetta.  Einnig var orð sem hvorki þau né ég skildum, en það er "framfærsluvottorð".

Nú ég hringdi svo í morgun og spurðist fyrir, ég fékk svör um hvað þetta framfærsluvottorð þýddi, en svo var mér sagt að þau yrðu að greiða aftur 10.000.- krónur hvert  fyrir nýja umsókn.  Ég kváði við, sagði að ég væri með í höndunum kvittanir fyrir að þau væru búin að greiða þetta gjald.  Já, sagði stúlkan, en við erum búin að loka málinu, og þau verða bara að greiða aftur.  Ég var frekar vantrúuð á þetta, og spurði af hverju?

Jú þetta er bara vinnuregla hjá okkur.

Þau hefðu getað dregið að greiða þangað til þau sóttu um aftur, hélt hún áfram. 

En sagði ég, þeim var aldrei tilkynnt að það væri hægt að hafa það svoleiðis.

Svona er þetta bara sagði hún, þetta er vinnuregla hjá okkur.

Nú langar mig til að spyrja ef einhver getur svarað mér.  Ég náði ekki í neytendasamtökin í morgun.  Er þetta hægt, að Dóms- og kirkjumálaráðuneytið hafi þær vinnureglur að hafa fé af fólki með þessum hætti.  Af því að þau borguðu á tilteknum tíma, þá brann féð inni.  Af hverju var þeim ekki gert það skiljanlegt að þau þyrftu ekki að borga strax, og af hverju var þeim þá ekki sendur peningurinn til baka ?  Og það sem meira er, þau eiga ekki að þurfa að greiða fyrir barnið.  Sem sagt það átti aldrei að borga meira en 20.000.-

Ég tek það fram að þau hafa ekki hugmynd um þetta brölt í mér.  Og munu aldrei rugga þessum báti sjálf.  En ég er satt að segja alveg gapandi, er nema von að siðferðið sé ekki betra í landinu, þegar dóms- og kirkjumálaráðuneytið viðhefur þessa vinnureglu ?

Er þetta hægt Matthías ? Spyr sú sem ekki veit.


Bloggfærslur 2. maí 2008

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 40
  • Frá upphafi: 2023304

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband