Tónleikar og annað tilheyrandi kúlusúk.

Það voru tónleikar í gær hjá stubbnum.  Ég komst ekki, en Elli minn tók nokkrar myndir.

17.maí.08 006

Þetta mun vera Tónlistarhópur í 4. G.Í. 

17.maí.08 008

Upprennandi saxófónleikari. og hann er frændi Balda Geirmundssonar, svo hann á ekki langt að sækja hæfileikana.  Afi hans Kalli Geirmundsson, sem spilaði alla tíð á gítar í B.G.

17.maí.08 010

Hér er svo Úlfurinn stubburinn minn á trommurnar.

Því miður missti ég af þessum vortónleikum, en það er alltaf svo frábært að fara og hlusta á börnin spila. 

17.maí.08 012

Hér eru svo nokkrar myndir út garðinum mínum.

17.maí.08 015

Þessi situr og fylgist með gestakomum.

17.maí.08 017

Þessi synti einu sinni um sjóinn, nú liggur hann bara við bæjarlækinn, svona breytast tímarnir.

17.maí.08 018

Fossinn minn.

17.maí.08 020

Og páskaliljurnar.

17.maí.08 021

Það er nú ekki tekið út með sældinni að passa upp á tvo skæruliða þegar maður er elstur.

17.maí.08 023

Þetta er skæruliði númer eitt, þarna að fá sér rauðvín.

17.maí.08 024

Hanna Sól að fá sér rúgbrauðsneið.

17.maí.08 026

En Úlfur bauð í fiskisúpu í kvöld, hann byrjaði reynda að elda í gær, þessar myndir eru frá þeim tíma.

17.maí.08 027

Hann bar sig fel að við eldamennskuna, og gerði þetta alveg sjálfur.

17.maí.08 028

Laxinn settur í pottinn. 

Við borðuðum súpuna í kvöld og var hún hið mesta hnossgæti. 

17.maí.08 029

Hér er Úlfur að blása sápukúlur.

17.maí.08 030

Hanna Sól er greidd svona flott.  Þær fóru í sund í dag. Ætluðu í gær en þá var laugin lokuð.  Hanna Sól og Jorga ræða saman á ensku og þýsku.  Should we go swimming now ? segir Jorga

Yes segir Hana Sól.  En svo ræða þær líka saman á þýsku.  Þær geta alveg gert út um öll mál. 

17.maí.08 031

Þessi getur líka gert sig skiljanlega með fettum og brettum og líka með andlitinu LoL

En lífið er miklu einfaldara, síðan Jorga kom. Heart


Bloggfærslur 17. maí 2008

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 40
  • Frá upphafi: 2023304

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband