Kúlulíf

Já lífið heldur áfram eða þannig.  Ég segi við ungar mömmur, núna man ég þetta allt saman, hvernig það er að vera ungamamma, með lítil börn í pilsfaldinum, geta ekki hreyft sig spönn frá rassi af því að þessar litlu manneskjur vilja bara hafa mömmu/ömmu hjá sér, og helst vera í fanginu á henni.  Líka mest af því að litla fólkið er með hita og lasið.  Við settum litlu dömuna í kartöflumjöls bað í kvöld áður en við settum hana í rúmið, ég á von á að það svíi á kláðann.  Hún var grafkyrr meðan við veltum henni upp úr kartöflumjöli, og smurðum því allstaðar.  Hún er sofnuð núna, en Úlfi og Hönnu Sól var boðið í pizzur heima hjá Inga Þór.  Ég er svo heppin að eiga svo góða að, Júlli og Sigga fóru yfir húsið, og þrifu, þar sem allt var komið úr skorðum Blush Svona er maður heppinn að eiga góða að.

IMG_4837

Þau fengu að fara í heitapottinn, reyndar fór Hana Sól með afa í sund á Suðureyri, kríjaði það út úr honum á leiðinni til Suðureyrar, af því að hann gleymdi snuddunni heima hehehehe LoL Sú stutta, snýr afa alveg 180° ef því er að skipta. 

IMG_4839

Reyndar tók Ingi Þór þessar heitupotta myndir, hann er listrænn í sér. Og hefur fengið viðurkenningar fyrir myndirnar sínar.

IMG_4842

Hér er ein, en svo vinnur hann með þær á listrænan hátt eins og Maddý vinkona mín. 

IMG_4849

Hér eru Kristján Logi og Hanna Sól í góðum fíling.

IMG_4851

Meðan amma og Ásthildur elda matinn ef ykkur finnst amma sjúskuð, þá er það náttúrulega út af því að vera mikið vakandi í nótt plús að vakna kl. hálf sex í morgunn með litlu skvísunni.  Við fylgjumst að í þessum veikindum sko LoL

IMG_4854

Bólur og spekulasjónir, hún segir ýmislegt, í dag þegar Úlfur var á klóinu bankaði hún á dyrnar og sagði skiljanlega; afastelpa.  Hún segir nefnilega ýmislegt meira en bojda bodja sjibju sjibbju sem ég held að sé rússneska, hún segir til dæmis takk fyrir, og ýmislegt annað ef maður leggur sig eftir því. 

IMG_4856

Manni myndi ekki líða vel með svona bólur út um allt, en þessi litla hetja reynir að vera sterk. 

Knús á ykkur öll og góða nótt Heart Reyni að fara blogghringinn seinna í kvöld ef ég orka W00t


Daglegt veður og lífið í kúlunni.

Jæja smábreak, Úlfur er komin heim og getur aðeins haft auga með þeirri stuttu.  Svo er Ingi að droppa iinn milli ferða á rútunni. Tounge

En við áttum góða stund frammi í garðskála í gærdag, það er alveg að koma besti tíminn þar, knúpparnir alveg að springa út.

IMG_4815

Þó eru börnin fallegustu knúpparnir mínir.

IMG_4816 

Evíta og pabbi.

IMG_4817

töffarinn Ásthildur Cesil.

IMG_4818

Mamma sko!!! segir Sigurjón Dagurábúðarmikill.

IMG_4819

Ég get alveg sagt ykkur að samverustundum fjölskyldunnar í garðskálanum fer að fjölga upp úr þessu, svoleiðis er það bara.  Hér er komið suðurEvrópskt vor.

 

IMG_4821

Ofurhetjan Kristján Logi Spiderman.

IMG_4823

Prinsessan Hanna Sól og allir sem eru í ævintýrinu hér núna.  Ævintýrin gerast þar sem við viljum láta þau gerast.  Það er eðli þeirra, og það er enginn hætta á að börnin taki ekki undir með okkur Heart

Þessi var tekinn í morgun, Hanna Sól tilbúin og er að bíða eftir afa sínum.

IMG_4825

IMG_4826

Ásthildur færir henni skóna.

IMG_4827

Takk litla mín segir Hanna Sól fullorðinslega.  Ekki fá flog mamma, hún fékk þessa skó gefins og finnst gott að vera í þeim hehehehe....

IMG_4828

Og svo þarf að hjálpa stóru systur í skóna, svo hún verði alveg til þegar afi kemur.

IMG_4829

Mín er aðeins farin að festa augu á barnaefni í sjónvarpinu.

IMG_4830

Og Úlfur og Dr. Spock eru ekki þeir einu sem hafa gaman af gulum hönskum LoL Hún er á leið út í vagn, en hún sofnaði ekki.  Ekki fyrr en Ingi Þór tók hana um borð í rútuna og setti hana í barnastólinn þá sofnaði hún eins og skot. Hún vaknaði samt fyrir hálf sex í morgun, og vakti mikið í nótt, þar sem hana klæjaði svo mikið. Ég bar á hana krem, og létti henni eitthvað við það.  En svo vildi hún helst sofa ofan á mér, eða hálf yfir magan á mér hehehe... svo það var frekar lítið um svefn.  En þetta kemur allt saman.  Henni batnar fljótt, og þá fer hún á leikskólann og amman verður aðeins frjálsari.

IMG_4832

Veðrið er ágætt, dálítið kallt, en sólin brýst fram öðru hverju.

IMG_4833

Svona er nú búið að vera hér.  Knús á ykkur og takk fyrir að líta við, þó svo ég sé svona þrælupptekinn.  Heart 


Bloggfærslur 8. apríl 2008

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 40
  • Frá upphafi: 2023304

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband