Hið daglega veður og ýmislegt.

Jæja aðlögunin tókst vel í dag, þær fóru á leikskólan og ég var með þeirri litlu smá tíma, fór meðal annars með henni í samverustund, sem er höfð daglega.  Það var virkilega gaman, þau syngja vísu fyrir hvern mánuð, og fóstran sagði mér að þegar þau væru búin að syngja sama söngin um mánuðinn nokkra daga, væru þau orðin fær í textanum.  Svo var boðið góðan dag á íslensku, thailensku, pólsku, áströlsku(ensku), og þýsku, hefði mátt bæta við slavnesku.  Hvernig segir maður góðan daginn á þýsku Hanna Sól spurði fóstran ?  Guten morgen, svaraði barnið.  Ó ég hélt að það væri guten tag, sagði fóstran.  Já sagði ég - eftir hádegið, núna er morgun.  Hanna Sól talar nefnilega perfekt Vínarþýsku með skrolli og alles. Sú litla sat og hlustaði og dillaði sér með söngnum, og söng svo frá eigin brjósti.  Þetta ætlar að ganga mjög vel.  Á morgun má hún vera allan tímann. 

En það var skafrenningur og leiðindafærð í dag, svo ég sótti þær báðar á sama tíma, þó Hanna Sól mætti vera lengur. 

Ég held að það sé eitthvað að bögga hana stóru mína.  Hún er búin að láta hálf einkennilega í allan dag.  Ætli henni finnist sú stutta vera að fá meiri athygli ?

Þegar ég ætlaði að fara að skipta á henni var baðið læst.  Þar var engum til að dreyfa nema Hönnu Sól.  Ég kallaði til hennar hvað hún væri að gera.  Það var nefnilega steinhljóð inni á baðinu. 

Hvað ertu að gera Hanna Sól mín ?

Ekkert amma. (skurk í stól)

Viltu ekki hleypa mér inn ég þarf að skipta á barninu, og svo ætla ég að setja hana í bað.

Ég er alveg að koma.  (Þó nokkur tími)

Hanna Sól mín, amma er að bíða.

Ég er að koma.

Þegar dyrnar opnuðust kom í ljós hvað hún hafði haft fyrir stafni hehehehe.

IMG_4645

snyrtidótið hennar ömmu, sem er hátt hátt uppi á skáp. 

IMG_4647

Sumir eru bara einfaldlega prinsessur.  og hún vildi endilega fara í þessum kjól á leikskólann, og silfurskóm, hjúkket.

IMG_4644

Sú litla fór í baðið sitt.

IMG_4648

Það er voða gaman, stóra systir setti sápu í vatnið, ég sagði að ég vildi það ekki, en stóra mín var ákveðin á svip og setti sápuna í vatnið.  Enn eitt merki um að eitthvað angaði hana.

IMG_4650

Sú stóra fékksk nú samt til að fara líka ofan í vatnið, en hún vildi bara fara í sundbol.

IMG_4652

Þetta þvoðist nú framan út henni í baðinu LoL

IMG_4654

Sigurjón Dagur kom og vildi ofan í líka.  Hann fékk að fara ofan í með stelpunum, og ég tók mynd, en einhverra hluta vegna er hún ekki með.  En svo beit stóra stelpan mín litla dýrið svo að það kom tannafar allan hringinn. 

IMG_46441

Ég hef aldrei spáð í hvernig vatnið fellur ofan í baðkarið.  Það sýnist renna í beinni bunu, en þegar ég stækkaði myndina hér að ofan, þá kemur þetta mynstur í ljós.

Þegar ég svo var búin að setja þá litlu í rúmið sitt, og bað þá stóru að koma fram á meðan hún sofnaði, þá var ekkert nema mótþróinn, og svo fór hún upp í rúm systur sinnar. 

En við náðum samt að sjatla málin fljótlega, með að semja við stóra stubbinn um að hún mætti skoða mynd í tölvunni hans um Dóru.  En svona er nú lífið á þessu heimili Smile Málamiðlanir stórar og smáar. 

En veðrið í dag var svo sem ágætt, nema það var mjög blint á leiðinni niður Súgandafjörðin.  Svo var dálítið hvasst.  Nei annars lognið var dálítið á hraðferð segjum við hér. LoL

IMG_4643

ekkert svo slæmt veður.

En Alejandra og Úlfur komu heim, það hefði verið einhver skólakeppni í gangi, og þau voru með hvatningarspjald, sem á stóð Áfram Ísó, og Gí!!  Alejandra hefur örugglega búið það til.

En ég segi bara góða nótt elskuleg öll. 


Ís og ís.

Þá er kvöldið komið, og aðeins tími til að slaka á.  Sú litla var frekar erfið í dag, hún svaf illa í nótt, vaknaði svo kl. hálf átta, þegar allir voru að fara á fætur, ég fór með hana í aðlögun, en þá voru veikindi, svo ég fór með hana heim aftur.  Þrátt fyrir svefnleysið um nóttina sofnaði hún aðeins um hálftíma seinni partinn.  Svo það var lítið um hvíld.  Ótrúlegur orkubolti.  Þær sofnuðu svo ekki fyrr en hálf tíu í kvöld.  Svo þetta var langur dagur.  Elli minn er í Reykjavík, svo ég er ein með þessa orkubolta.  Stubburinn átti líka góðan dag, hann fór heim veikur úr skólanum í gær, en átti svo stefnumót við tvo sála í dag.  Ekki af því að hann væri neitt trylltur, heldur er þetta apparatið, sem heldur utan um hans aðstæður, sem er mjög gott.  En það var orðin ansi stuttur í mér kveikjuþráðurinn í kvöld. 

IMG_4629

Þessir yndislegu feðgar kíktu við í dag, eins og svo oft.  Minn flottur svona nýklipptur.

IMG_4630

Þeir fóru svo í heita pottinn og Hanna Sól fékk að fara með.

IMG_4634

mmm notalegt.

IMG_4636

Og svo hoppa hehehehe.

IMG_4637

Og svo var fengið sér ís á eftir, ekki nóg með ísinn utan, heldur líka innann. 

IMG_4640

Allir fengu ís þ.e. smáfólkið. 

IMG_4641

Svo kom Sigga og hafði með sé pylsur, það var nú ekki dónalegt að fá svoleiðis.

IMG_4642

Já og Úlfurinn fékk líka frænku sína í heimsókn og vinkonu hennar, þær Sóley Ebbu og Birtu. 

En ég segi bara góða nótt. 


Bloggfærslur 3. apríl 2008

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 40
  • Frá upphafi: 2023304

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband