29.4.2008 | 22:43
Taekwondomót í Keflavík seinni hluti.
Já Taekwondo mótið hélt áfram daginn eftir. Þá var púmse, kross og grunnæfingar, Líka Showbrake og svo hraða og þrautakeppni.
Menn byrjuðu með að hittast og æfa sig.
Og ræða málin.
Hér er einn með grunnæfingu og hann er ekki hár í loftinu. Ég er hér reyndar að tala um eitthvað sem ég ber ekki alveg skynbragð á, en vil koma til skila, svo ef einhver les þetta má alveg leiðrétta mig.
Okkar menn bíða eftir að fara og sýna sig.
Smellti mynd af þessum herramanni, hann var rosalega flottur heitir Helgi og er mjög klár.
Hér eru svo sigurvegarar í undirflokki, þið sjáið að þar eru tvær dömur með gull og silfur en það þurfti tvo bráðabana til að úrskurða með bronsið.
Einn af þeim lengra komnu, mér er sagt að þetta sé svarta belti þeirra sem eru sextán og yngri.
Það var virkilega gaman að horfa á keppendur, hreyfingar hnitmiðaðar og svo fallegar og tilkomumiklar sem mest gat verið, og því flottari sem ofar kom í beltin.
Gull, silfur og brons í efsta hópnum, stúlkan með gullið. Unglingurinn með silfrið og Helgi með bronsið.
Síðan var Showbrake. En það er svona sýning í að brjóta eitthvað með berum höndum eða fótum.
Þar voru mestmegnir brotnar spýtur, þessi ungi maður fór í gegnum pappír og svo braut hann spýtu.
Hér á að fara fram stórsýning. Stelpurnar gefa sko ekkert eftir.
Hún náði ekki þessari spýtu, en fékk salinn til að hlæja þegar hún var orðin nógu reið til að láta hendina dúndra í spýtuna og hjó hana í spað.
Helgi vann þessa keppni, þar sem hann dúndraði nokkrara spýtur og hjó svo í sundur múrstein, en af því að hann logaði, þá voru ljósin slökkt til að auka áhrifin svo ég gat ekki tekið mynd af atburðinum, en sannarlega flott show.
Svo voru þrautir fyrir börnin, átta ára og yngri, níu og tíu ára, og ellefu og tólf ára, í Taekwondo er þrettán ára taldir með fullorðnum.
Í þessari keppni var engu að síður harka en í öðrum greinum, börnin voru alveg með sigurvissuna á hreinu.
Svo voru bikarafhendingar fyrir bestu frammistöðu yfir verðtíðina. Þessi ungi maður Helgi fékk heiðursverðlaun fyrir vel unninn störf og besta árangur.
Hér voru svo verðlaun fyrir góða frammistöðu barna.
Mér fyrirgefst vonandi fyrir að geta ekki talað mig út um hvað nákvæmlega þau fengu verðlaun fyrir, en mér fannst þetta bara allt svo frábært. Og öllum gert jafnt undir höfði.
ef einhver kemur hér inn sem veit betur, vil ég að sá setji inn nákvæmlega hvað þau fengu verðlaun fyrir.
Málilð er bara að það var allt saman fyrir frábæran árangur. Og þau örugglega vel að þessu komin.
Enda hreykin eins og sést.
Þessi unga kona er allavega bjartasta vonin ásamt ungum manni, og þau eru á leið erlendis til að taka þátt í keppni og námskeiði. Ég er viss um að allt þetta unga fólk mun búa að þessu lengi, bæði þau sem fengu verðlaun og svo þau sem bara fengu þátttökupening, og bara upplifðu stemninguna, og virðinguna, hjálpsemina og allt sem þarna var.
Sigurvegarar mótsins voru keflvíkingar, enda voru þeir flestir þarna, og bestir. En við hin öll, ætlum okkur að koma tvíelfd til næstu keppni hvar sem hún verður.
Gleði keflvíkinga var óskvikinn, enda eiga þeir hrós skilið fyrir alla framkvæmd og skipulagningu. Þetta var allt saman frábært.
Ef líkja má þokka taekwondo hreyfingar við eitthvað, þá er það sennilega þokka svansins, þeir eru komnir til landsins og bíða nú í hópum eftir að snjóa leysi á hálendinu til að setjast það að og stofna fjölskyldu. Við hin bíðum svo eftir að auka vægi taekwondo á Íslandi, því ég segi það satt, þetta er bara frábært allt saman. Hvað er betra en að innprenta ungu fólki, kurteisi, virðingu og hjálpsemi, og ekki bara innprenta heldur sýna það í verki svo sannarlega með allri framkomu þeirra eldri á þessu móti. Takk fyrir mig, og um leið og ég vona að stubburinn minn fái búninginn sinn til baka, þá segi ég bara ÞIÐ ERUÐ FLOTTUST.
Af því að hún Helga bloggvinkona mín minntist á það, hvað við hefðum komið seint heim, þá var það þannig að þegar við vorum að fara upp úr Staðardalnum á Steingrímsfjarðarheiðina, þá kom í ljós að það hafði sprungið dekk hjá ungri konu, sem var á undan okkur. Þessir bílar í dag eru svo ótrúlega öðruvísi en venjulegir bílar, svo það tók rosalegan tíma að finna út úr því hvernig ætti að losa dekkið undan bílnum, fyrir utan að tékkurinn var vita gagnslaus. Sem betur fer var ég með góðan tékk í mínum bíl, svo við gátum notað hann, ásamt því að finna út úr því hvernig ætti að losa dekkið undan, en þetta tók samt sem áður hátt í klukkutíma í kalsaveðri. Þegar við svo komum upp á Steingrím, þá var mikill þæfingur, og þar ókum við fram á bíl sem var fastur í skafli. Þar sem ég er með lága drifið plús annan fídus í bílnum, þá dæmdist það á mig að reyna að losa karlinn út úr skaflinum. Það tók líka tímann sinn, því fyrst kaðallinn sem við notuðum slitnaði af átökunum, en strákarir voru með sérstyrktan kaðal meðferðis, svo ég gat losað bílinn út úr skaflinum. En það tók líka hátt í klukkutíma. Svo að við komumst ekki heim fyrr en um hálfeitt leitið. Eins gott að ég hafði fengið frí fyrir stubbinn í skólann daginn eftir. En svona getur komið upp á. Og svo fréttum við af því að eftir að við fórum yfir lokaðist heiðin. Svo fólk þurfti að gista í Hólmavík.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
29.4.2008 | 11:00
Taekwondo - ef einhver les....
þetta blogg og veit um málið, þætti mér vænt um að hann hefði samband.
En stubburinn minn gleymdi töskunni sinni í Holtaskóla í Keflavík, þegar við fórum heim. Hann er alveg eyðilagður. Hún gæti líka hafa þvælst með akureyringunum. Allur búningurinn hans var í töskunni, sem lýtur svona út;
Ég vona að einhver viti um töskuna og annað hvort hringi í mig eða sendi hana í Kúluhúsið á Ísafirði. Númerið er 861 1444. Það er hægt að senda, með því að viðtakandi greiði kostnaðinn.
Ég var ansi þreytt í gærdag, og gerði ekki neitt nema dúlla við litlu stelpurnar mínar. Sem voru rosalega glaðar að fá okkur heim aftur. En afi stóð sig líka mjög vel í pössuninni.
Hann sagði mér að Hanna Sól fór að ræða við hann um fjölskylduna, afa gamla, ömmu og afa, pabba og mömmu og svoleiðis, það er notalegt að ræðast við meðan maður ekur gönginn. Svo spurði hún; afi hvar eru pabbi þinn og mamma? Þau eru bæði farin til Guðs, sagði afi.
Skaut þau einhver ? spurði barnið. Hún er náttúrlega dóttir verðandi dýralæknis.
Annars er lífið að færast í sinn vanagang hjá mér. Og vorið heldur áfram að lifna og sækja á vetur konung. Sumar er ef til vill of mikið sagt en vorið er örugglega komið. Nú þarf að fara að huga að gróðrinum, hvernig hann hefur komið undan vetri og skipuleggja næstu skref í hreinsun og áburðargjöf. Þetta kemur allt saman.
En eigið góðan dag, elskurnar. Ég ætla að setja meira inn um Taekwondomótið í kvöld. Knús á ykkur öll, og takk fyrir að líta við og lesa það sem ég set frá mér. Mér þykir vænt um það.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (33)
Bloggfærslur 29. apríl 2008
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 3
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 40
- Frá upphafi: 2023304
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 29
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar