Á leið á Taekwondomót í Keflavík.

Ég er komin heim aftur eftir frábæra ferð.  Við komum að vísu ekki heim fyrr en um hálf tvö í nótt, ogo ég er ennþá lurkum lamin eftir aksturinn.  En það var fyllilega þess virði.  Ég held að ég segi ykkur söguna í tveimur eða þremur færslum, annars verður þetta svo langt að enginn nennir að lesa.

IMG_5645

Ég var farin að sakna þeirra áður en ég fór af stað.  Þessar myndir eru teknar á föstudagsmorguninn,  litlu telpurnar að gera sig klárar í leikskólann.

IMG_5646

Það þarf ýmislegt að brasa áður en prinsessur eru tilbúnar á leikskólann.

IMG_5648

Vængirnir, kórónan, og svo náttúrulega blóm í hárið. 

IMG_5649

Veðrið var dásamlegt.

IMG_5650

Afi fór með þær á leikskólann.

IMG_5652

Úlfur kveður litlu frænkur sínar. Hann er orðin mjög spenntur að komast af stað.  En hann á að vera í samfloti með hinum krökkunum í smárútu, ég verð svona trússhestur með farangur.

IMG_5655

Tilbúin og bíður eftir að bílinn komi. 

IMG_5661

Planið var að fara inn í Reykjanes til að byrja með, leyfa þeim að fara í sund, og grilla svo, halda því næst sem leið liggur til Keflavíkur.

Þessir svanir voru í Mjóafirðinum, greinilega að koma úr langflugi og biðu eftir að snjóinn leysi við fjallavötnin fagurblá.

IMG_5662

Þar voru líka æður og bliki í tilhugalífinu.  Þegar ungarnir skríða úr eggjunum yfirgefa blikarnir fjölskylduna, og láta æðarkolluna eina um uppeldið.  Þá hópa þeir sig saman líkt og karlpeningurinn í afdrepinu í Smáralindinni LoL Og nýtur lífsins.

IMG_5665

Báran var líka köld og freyðandi.

IMG_5670

En það var notalegt í lauginni í Reykjanesi. 

IMG_5674

Sigga fararstjóri við grillið.  Hún sá svo sannarlega vel um börnin allan tíman.  Þau komust ekki upp með neitt múður og kunnu því bara vel.

IMG_5676

Móðir og sonur, reyndar segist hún ekki birtast á myndum, en ég slæ á þá mýtu hér með. Tounge

IMG_5681

Og krakkarnir tóku hraustlega til matarins, eftir sundsprettinn.  En svo var haldið af stað, suður.

IMG_5689

Það er margt sérkennilegt í landslaginu á ströndum.  Þetta eru áreiðanlega tröll sem dagað hafa uppi fyrir margt löngu.

IMG_5693

Hér er hópurinn yfir utan KFC í Mosó, þar var snæddur kvöldverður. 

IMG_5697

Vorum komin um tíu leytið til Keflavíkur.  Þeir eru skemmtilegir við að finna upp listaverk, og fara ekki troðnar slóðir.

IMG_5699

Hér biðum við eftir því að vera lóðsaðar í skólann þar sem krakkarnir áttu að gista, ég fékk mér gistsingu á B&B, get ekki sofið á dýnu á hörðu gólfi í skólastofu.  En það fór vel um krakkana, og fararstjórinn harkaði af sér.

 Taekwondo félagið á Ísafirði er ekki gamalt.  Það eru svona tvo til þrjú ár síðan ungur maður, fjórtán fimmtán ára, hafði samband við Íþróttasambandi, og spurði hvort hægt væri að gefa honum tíma í íþróttasalnum gamla fyrir taekwondoíþróttina.  Það varð úr, og hann er búin að vera að æfa krakka í tvö eða þrjú ár. Hann er sjálfur sextán ára í dag, sá elsti í liðinu er held ég 23 ára, og svo allt niður í stubbinn sem er 11 ára gamall.  Það er ótrúlegt hvað þessi sextán ára piltur hefur áorkað, og hve hann er ábyrgðarfullur og duglegur ekki eldri en þetta. 

Þau tóku þátt í móti á Selfossi í fyrra, svo þetta er annað mótið sem þau fara á.  Íþróttin er víst nokkuð gömul hér á landi, allavega sögðu akureyringarnir okkur að þeir hefðu verið til í 20 ár.  Stærsta félagið er í Keflavík, en Selfoss er líka mjög virkt.  Það sást að þessi tvö félög voru kröftug.  Margir sem fylgdu krökkunum, og vel haldi utan um allt.

Mótið í Keflavík var sérlega vel skipulagt, og gekk mjög vel fyrir sig, þarna voru um 213 keppendur á öllum aldri.  Og það eru mörg belti, sem þarf að hafa í huga, hvítt með gulri rönd var skilyrðið til að komast í keppnina, svo eru gul belti, blá belti appelsínu gul, rauð, og svört og allt með röndum og slíku, sem ég kann ekki skil á.

En það sem ég tók eftir var breyddinn í félagsskapnum, og hve allir voru samtaka og umhyggjusamir hver fyrir öðrum, enda gengur þetta út á kurteisi, virðingu og hjálpsemi, fyrir utan hreyfingarnar, og keppnirnar. 

Ég sá að þetta er mikil fjölskylduíþrótt, því í stað þess að þar væru einhverjir flokkstjórar og fararstjórar, þá voru það foreldrarnir sem héldu utan um þetta allt saman.  Mér var sagt að Keflvíkingar hefðu verið viku í að undirbúa mótið, og það voru allt saman foreldrar barnanna og þau sjálf sem tóku þátt bæði ungir og gamlir.  Í þessu er ekki kynjaskipting, þar sem stelpur keppa við stráka, og menn keppa upp eða niður m belti og svo framvegis.  Ég sá að stelpurnar stóðu strákunum fyllilega á sporði.  Það var gaman og yndælt að sjá þetta.

IMG_5701

Eftir morgunmat, smurt brauð hjá Siggu fararstjóra var haldið út í íþrótta sal, þar sem keppnin átti að fara fram.

IMG_5704

Það þurfti að fara yfir stöður og spá í keppnina.

IMG_5708

Hita sig upp.

IMG_5718

Teygja sig vel og vendilega.

IMG_5722

Knúsa og auka liðsheildina. 

IMG_5724

Hér er ísfirski hópurinn.  Það sést hve ungt félagið er, því hér eru þeir allir með gul belti. 

IMG_5737

Svo þurfti að fara yfir pappírana, hvar hver átti að keppa, og á hvaða gólfi, en þau voru 3, A.B. og ´C.

IMG_5740

Svona eru menn klæddir í bardaga, spörkin geta verið hörð og óvægin, ef menn eru kappsfullir.  En allir eru samt vinir að lokum.

IMG_5741

Það eru líka öklahlífar, legghlífar, armhlífar og tannhlífar.  Já við erum samt að tala um virðingu, kurteisi og hjálpsemi.  En þetta getur svo sem allt samræmst. Það sást á þessu stórmóti, þar sem allir voru í raun og veru góðir hver við annan.

IMG_5746

En það er barist af hörku.

IMG_5750

En allt eftir settum reglum.

IMG_5751

Hjalti kennari að leggja sínum manni heilræði.

IMG_5753

Hneygja sig og setja í stellingar og byrja..

IMG_5756

Þannig gengur það.

IMG_5764

Þeir voru ekki allir háir í loftinu keppendurnir, og þessi stubbur með blátt belti, hann verður einhverntímann góður.

IMG_5765

Þessi mamma fór að æfa til að styðja við son sinn.  Það er mikið um svona foreldravirkni í Taekwondo, og það er mjög gott.  Her er það sonurinin sem er að hjálpa henni í keppnisbúninginn og telja í hana kjarkinn. 

IMG_5778

Já þau eru ekki öll há í loftinu þessar elskur.

IMG_5784

Mitt lið hér á pöllunum, ég er viss um að þau hafa haft mjög gott af þessu.

IMG_5787

Og það var smurt ofan í liðið, enda þurfa þau orku, meðan þau eru að keppa.

IMG_5791

ég er ekki mikið inn í þessu ekki ennþá allavega, en ég held að þessi ungi maður sé sá sem er næst æðstur í félagsskapnum á Íslandi.  Hann stóð sig mjög vel, eins og reyndar allir sem að þessu móti komu.

IMG_5799

Hér er okkar fólk að búast.

IMG_5800

Svo er verið að leggja stubbnum línurnar.

IMG_5802

Hér má sjá að stelpur berjast við stráka, og þær gefa ekkert eftir, áttu stórkostlega sigra á þessu móti.

IMG_5813

Stubbur komin út í alvöruna.  Og þó hann ynni ekki, þá er það sigur í sjálfu sér að taka þátt, skorast ekki undan og taka því sem manni ber.  þannig miðar manni best áfram.

IMG_5818

einn af okkar mönnum sem berst við stelpu.  Þau virðast vera jafnvíg, en hann sigraði hana reyndar.

IMG_5826

Fyrri dagur að kveldi komin og fallegt veður í Keflavík, að visu kalt og vindur, en fallegt. 

Ég skrapp frá og hitti tvær bloggvinkonur mínar á kaffi DUUS þær Helgu Valdimars og Elísabetu Markúsdóttur, það var yndislegt að sitja og spjalla við þessar tvær hversdagshetjur, sem reyndar hafa þurft að glíma við sömu vandamál og ég svo við höfðum um margt að spjalla. 

En Ísfirðingarnir stóðu samt uppi eftir daginn með 6 brons og eitt gull, og geri aðrir betur, fyrir svona ungt félag.  Og sumir að keppa á sínu fyrsta móti.  En ekki síst þegar haft er í huga að kennarinn, og sá sem kom þessu öllu á koppinn er aðeins sextán ára ungur maður.

En ég ætla að setja meira inn um þetta mót seinna.  Ég sá engar myndatökuvélar, ekki blaðamenn, eða neina fréttamenn, svo ég ætla mér að reyna að gera þessu skil út frá minni eigin reynslu. 

Niðurstaðan eftir fyrsta daginn var; frábærlega vel skipulagt mót, mjög mikið af ungu ábyrgðarfullu fólki, sem var þarna í ábyrgðarstöðum eins og dómarar, aðstsoðarmenn og eftirlitsmenn.  Það var áhrifamikið að mínu mati, og það voru jafnt ungar konur sem drengir. 

En meira um þetta næst.


Bloggfærslur 28. apríl 2008

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 40
  • Frá upphafi: 2023304

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband