Mótmælin undanfarið eru bara byrjunin.

Gengið of langt ? segja margir, sumir meina að mótmælendur hafi gengið of langt, aðrir vilja meina að lögreglan hafi gengið of langt.

Það getur vel verið að æsingur hafi gripið um sig meðan fólksins sem var þarna í dag.  En ég held að aðgerðir lögreglunnar hafi skapað þann æsing. 

Ég stend með bílstjórunum, og tel að þeir séu að standa vaktina fyrir mig og aðra þjóðfélagsþegna.  Og mér finnst að mönnum væri fjandans nær að beina reiði sinni og hneykslun þangað sem hún á heima, þ.e. til stjórnenda landsins.  Það eru þau sem eru sökudólgarnir í þessu máli.  Fyrst og fremst fyrir að virða mótmælin að vettugi, í öðru lagi að reyna að reka fleyg á milli mótmælenda og almennings, með orðunum; þetta bitnar á hinum almenna borgara.  Og í þriðja lagi að vera að flandrast um og bjarga heiminum, meðan almenningur í þessu landi berst fyrir lífi sínu.  Ef til vill ekki lífinu sjálfu heldur tilverurétti sínum, atvinnu, og húsnæði og mat.  Hvað er þetta fólk eiginlega að hugsa ?

Eru þau svo langt frá hagsmunum almennings að þau skilji ekki að fólk er að verða búið að fá nóg.  Meira að segja fólk sem að öllu jöfnu styður þessa tvo flokka, geta ekki lengur varið hvorki aðgerðarleysi þeirra né forystuna. 

Það er sagt að það þurfi sterk bein til að þola góða daga.  Sjálfstæðismenn hafa komið sér vel fyrir á jötunni, komið sínum gæðingum í góðar stöður, meira og minna þrátt fyrir að þeir séu ekki traustsins verðir, það er eins og hæfi skipti ekki máli heldur flokkskírteinið. Enda hafa þeir verið við völd í næstum 20 ár samfleytt.

En nöturlegra er að sjá Samfylkinguna í sporgöngu Framsóknarflokksins, byrja sína eyðimerkurgöngu hér með.  Þau ættu að skoða sögu Alþýðuflokksins á sínum tíma, þegar hann varð nánast að engu í faðmi sjallana.  þau eru eflaust búin að gleyma því að dvöl í faðmi Sjálfstæðisflokksins jafngildir því að bera nöðru sér við brjóst.  Megi þau sofa vel og lengi.  Ég hef orðið fyrir gífurlegum vonbrigðum með forystu Samfylkingarinnar.  Ég trúði því aldrei alveg að þau væru svona út og suður flokkur, eins og sést svo greinilega núna.  Og ég hélt að það væri töggur í Ingibjörgu, en svo er hún ekkert annað er eiginhagsmunapotari af verstu gerð.  Þau Geir eru eins og samvaxnir tvíburar.  Ojæja, oft er reynt að aðskilja slíka, en ef þetta heldur svona fram að kosningum, þá hugsa ég að það þurfi engan aðskilnað.  Þá verða aðrir flokkar sem taka að sér að koma skikki á stjórnmálin og bola krabbameininu burtu.  Það er orðið alveg ljóst að það verður ekki hlutverk Samfylkingarinnar.  Turnarnir tveir eru álíka traustir og þessir sem stóðu hvor á móti öðrum í New York, þeir munu falla, og fallið verður hátt. 

Ég spái því að Framsókn rétti út kútnum, og Frjálslyndir nái vopnum sínum, og Vinstri grænir standi sterkir svo þessir þrír flokkar nái meirihluta, og þá verður komin tími til að hreinsa til. 

Það er komin sá tími í íslenskum stjórnmálum að fólk er búið að fá upp í kok, af hræsni, svikum og hroka.  Það má lengi brýna deigt stál svo það bíti.  'Eg held að sá tími sé runninn upp.  Við erum að sjá byrjunina núna, og eldar verða ekki slökktir í bráð.  Ekki fyrr en stjórnvöld skilja að ÞAU ÞURFA AÐ GERA EITTHVAÐ, ÞAÐ STENDUR UPP Á RÍKISSTJÓRN ÞESSA LANDS AÐ GERA EITTHVAÐ TIL AÐ LANDIÐ VERÐI BYGGILEGT.

Ég las einhversstaðar að meirihluti ungs fólk hugsi sér til hreyfings að flytja sig erlendis.  Það er þó skemmtileg hugsun eða hitt þó heldur.  Að okkar ungdómur telji sig betur komin í öðrum löndum.  En er því hampað, eða er einhver umræða í gangi um að gera ungu fólki kleyft að búa hér ? Nei, ég er hrædd um ekki.  Nú fer í hönd tími gjaldþrota, fólk sem hefur verið að reyna að koma sér þaki yfir höfuð, flest örugglega ungt fólk, missir eigur sínar, og stendur eftir slippt og snautt, launin duga ekki fyrir rekstri heimilisins. 

En kóngur og drottning eru bara að ferðast um heiminn eyða peningunum okkar í að komast til áhrifa, þau eru líka að bjarga heiminum, telja sig nú geta leyst deilur Ísraels og Palestínu, og svo framvegis. Einhversstaðar segir nú samt, kóngur vill sigla en byr mun ráða.  Það ættu þessi skötuhjú að hafa í huga. 


mbl.is Grjótkastari segir lögreglu hafa sýnt valdníðslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 23. apríl 2008

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 6
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 2023312

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband