Hið daglega kúlulíf.

Dagurinn í dag var yndislegur eins og allir hinir núna á undan.  Ég fór í vinnuna mína, pantaði áburð upp á sumarið, og eftir það fór ég og priklaði, Elli minn náði í börnin, ég vann með þremur pólverjum, sem eru að prikla með mér.  Þeir eru ljúfir og rosalega duglegir allir saman.  Svo fór ég á fund hjá Staðardagskrá  Agenda21, en ég var skipuð í þá nefnd eftir siðustu kosningar.  Við höfum verið að vinna á fullu að aðlaga Staðardagskrána að áherslum bæjarins í umhverfismálum.  Nú fengum við nýtt verkefni að svara spurningum í sambandi við Aðalskipulag 2008 - 2020.  Skemmtilega vinna og gefandi. 

En svo eru það börnin og heimilið.

IMG_5524

Leikskólinn, það er sko ekki sama í hverju maður fer í skólann.  Það þarf að vera prinsessulegt... eða þannig.

IMG_5525

Hér er allt til reiðu, sænginn pelinn og barnið LoL Svo og græna teppið.

IMG_5527

Og þá er maður klár í slaginn.

IMG_5528

Eins og sýningardama, húfan er sérhönnuð af Úlfi, og saumuð.

IMG_5529

Svona var veðrið í dag, hið daglega veður, sem er svo rosalegt á Ísafirði, að fólk neitar að senda börnin sín í fótbolta í júní, vegna snjóflóðahættu.

IMG_5530

Og krókusarnir gæjast upp úr moldinni, og brosa móti sólinni.

IMG_5531

Jamm hér má sjá manngert fjall. 

IMG_5532

Hér eru svo nokkrar kvöldmyndir, teknar nú fyrir nokkrum mínútum síðan.  Þessi rauði litur er af ljósastaurunum.

IMG_5533

Setur samt skemmtilegan svip á þessar kvöldmyndir. En hið fræga Ísafjarðarlogn sést vel á þessum myndum.

IMG_5534

Já þetta er útsýnið mitt. 

og ég segi bara góða nótt.Heart

 


Finnst engum nema mér.....

Það skrýtið? 

Er ekki eitthvað að í forgangsröðun hjá RÚV, þegar forstjórar og fína fólki fær rándýra jeppa til ráðstöfunar og laun sem ekki má gefa upp, af því að þau eru svo há, en á sama tíma eru tölvurnar í útsendingum að hrynja, og alltaf að klikka og bila, svo þáttastjórnendur standa ráðþrota og kjaftstopp. 

Væri nú ekki lag að setja pening í að laga græjurnar svo útsendingar geti verið eins hnökralausar og hægt er.  Nei ég bara spyr svona.  Er ekki eitthvað vitlaust forgangsraðað, nógu harkalegar eru innheimtuaðgerðir hjá þessu fyrirtæki.  Ef þeim er svo sama í ofanálag, þó við njótum ekki bestu gæða, og þulir og þáttastjórnendur fái slag af áhyggum yfir því að ekki sé hægt að spila þetta eða hitt lagið, af því að búnaðurinn er á síðasta snúningi.  Þau eiga alla mína samúð þessar elskur á rás2.

 


Mömmó og meira,

Ég fór á fund í kvöld, stubburinn er að fara á Taikwando mót á næstu helgi í Keflavík.   Hann ávann sér rétt til að taka þátt með því að standast prófið um daginn.  Og nú er litla fjölskyldan á fullu að undirbúa förina suður.  Amma ætlar með stubbnum sínum, það væri nú annað hvort.  Það var sem sagt fundur í kvöld með foreldrum, og ég fór og minn elskulegi sá um börnin á meðan.  Ekki fyrir mig, það var þá þegar mín voru lítil.  Nei nú er þetta sameiginlegt.  Hér áður og fyrr, þá gætti hann barnanna fyrir mig hehehehe svona getur tíðarandinn breyst líka meðal okkar sem eldri erum, og guð láti gott á vita. 

En ég tók nokkrar myndir í dag, Veðrið var náttúrulega unaðslegt, og við hjónin ákváðum að fara í sund á Suðureyri, þegar við sæktum þær á leikskólann, sem við og gerðum.  Sú litla er alveg að ná þessu, og nýtur þess að fara í sund í dag.  Hætt að vera hrædd við vatnið.

IMG_5498

Gat ekki stillt mig í morgun að munda myndavélina, þetta er eitthvað svo saklaust og yndislegt í ömmuholu. Heart

IMG_5499

Og stubbur á leið í skólann smellir kossi á litlu "systur"

IMG_5501

Afar bregða líka á leik stundum á morgnanna.  Það er bara fjör. LoL

IMG_5505

Sagði ykkur það, veðrið er unaðslegt.

IMG_5506

Skólalóðin á besta leikskóla í heimi að koma undan snjónum. 

IMG_5507

Þetta þýðir að þessar tvær eru eftir á leikskólanum, hinir allir farnir.

IMG_5508

Ef þetta er ekki alþjóðavæðing þá veit ég ekki hvað Heart

IMG_5510

Nýkomnar úr sundi.  Hanna Sól varð eftir með Júlla frænda sínum og Sigurjóni Dag og Ólöf Dagmar, en þau ætluðu einmitt að taka stelpurnar eftir leikskóla í dag.  Þessi fór samt heim með ömmu og afa.

IMG_5512

Jamm. það er ýmislegt borið upp í munnin á sér, á þessum síðustu og verstu.

IMG_5513

Og rússurnar smakkast alltaf vel, það finnst risaeðlum líka.

IMG_5515

Flísteppið er líka algjört must hér.

IMG_5518

Svo rabbar maður í símann við mömmu sína og alles.

IMG_5520

Kvöldið er fagurt sól er sest og sefur fugl á grein.  Og klukkan að verða átta.

IMG_5522

Ísafjarðarlognið í algleymingi.  En þannig er þetta bara.  Knús á ykkur öll inn í nóttina.  Og ég segi bara góða nótt, sofið rótt, og knús. Heart


Bloggfærslur 22. apríl 2008

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 40
  • Frá upphafi: 2023304

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband