21.4.2008 | 13:40
Vor í kúlu, mömmublogg og sitthvað fleira.
Ég lofaði vormyndum úr kúlunni. Hér koma nokkrar þannig:
Zakúran í fullum blóma.
Kirsuberin verða mörg í ár.
Flott ekki satt.
Ef til vill fæ ég líka perur.
Veðrið á laugardaginn var hreint glæsilegt, við fórum með stelpurnar í sund á Suðureyri, Ásthildur er öll að koma til í barnalauginni. Farin að sleppa ömmu sinni og labba um sjálf. Svo komst hún upp á lag með að fara uppúr og til afa í stóru lauginni, og fara ofan í hana. Það var mikið sport. Su stóra er eins og fiskur í vatni.
Það er rosalegt fjör hjá mínum stundum.
Og maður vill líka hafa blóm í hárinu. Matta klippti þær báðar reyndar eftir þetta, þær fóru í pössun til Möttu og Inga, þau tóku þær yfir nótt, og það var bara mjög notalegt.
Veðrið var ekkert síðra á sunnudeginum.
Hænurnar eru líka ánægðar að fá að fara út.
Æ pabbi snjórinn er svo kaldur.
Aha þetta er betra.
Yess amma hehehehe...
Þá er best að fara út að hjóla... og sona.
Eða leika við Ásthildi.
Sumir verða stundum fúlir, ef það er eitthvað sem ekki má.
Og auðvitað þarf litla dýrið að vita hvað er að. Þessi blái litur í hárinu er maskari sem stóra systir fann í snyrtitöskunni hennar ömmu. Áreiðanlega betur komin þarna.
en ólundin stendur stutt yfir, það er nefnilega allt svo skemmtlegt.
Það finnst Ásthildi líka. Ævintýrin, Nemo litli, trunt trunt og tröllin í fjöllunum, og englablues.
Börn, vatn og blóm eiga sérlega vel saman.
Felumynd af lítilli stúlku.
Nýklippt með blóm í hári. Svo fín.
Maður þarf nú líka að passa litlu systur stundum.
Það var svo hlýtt úti í gærdag. Eins og sjá má.
Hún ætlar að standa undir nafni, sú stutta, hér er örugglega verið að umpotta plöntum.
Og meðan stóru börnin fóru í pottinn.....
Fannst minni bara betra að fara í balann inni í garðskála.
Reyndar þótti fleirum gott að fara ofan í balann
Hér má sjá að stelpurnar halda báðar á dúkkum en drengurinn með bíl ? hér er ekki verið að innprenta neitt, þetta bara er svona. Eða hvað ? það skyldi þó aldrei vera að við gerðum það ósjálfrátt að halda bílum að drengjum og dúkkum að stúlkum.
mmm hvað þetta er notalegt.
Og Hanna Sól ræðir við Hjördísi sína í símann. En Hjördís var aupair út í Vín og gætti telpnanna.
Flottar pæjur alveg eins þær skáfrænkurnar í nýjum fötum.
Og afi í mat eins og venjulega á sunnudögum. Og blessuð börnin.
Hér er ein flott mynd af þeim Sigurjóni Dag og Hönnu Sól, en þau eru svoooo góðir vinir.
Og svo er þessi blómlega mynd líka, rósamandlan mín í forgrunni.
En við erum sennilega búin að fá óperu, hún er að vísu karlkyns, og kemur frá Litháen. En við sjáum til með hvernig það gengur. Stórir strákar gráta ekki.... eða hvað ?
Svo er hér komin gula röndin á beltið. Næst ætla ég að reyna við appelsínugula beltið segir snáðinn minn.
Þeir karlmennirnir á heimilinu ræða um landsins gagn og nauðsynjar eins og gengur
Eigið góðan dag öll sömul.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (23)
21.4.2008 | 11:09
Héraðsdýralæknum fækkað um helming eða meira - hvar eru mótmælin ?
Ég er dálítið hissa hvað lítið heyrist í dýralæknum og bændum í sambandi við fyrirhugað frumvarp svokallaðs sjávar- og landbúnaðarráðherra, þá á ég við þann hluta að kútta héraðsdýralæknum úr 16 niður í 6, eða var það 8 ? Allavega niður um helming eða meira. Á sama tíma og hann er að boða innflutning á hráu hormónakjöti erlendis frá, þá fækkar hann eftirlitsaðilum. Eða maður hefði haldið að dýralæknar væru best til þess fallnir að fylgjast með heilbrigði kjötsins.
Það heyrist ekkert í Vestfirðingum, en eftir því sem ég hef heyrt, þá á að leggja niður embætti dýralæknis á Vestfjörðum, hann verður sum sé staðsettur í Borgarnesi. Mjög svo viturleg ákvörðun eða þannig.
Það veruð gaman fyrir bónda á Tröð í Önundarfirði, þegar kind verður í erfiðleikum með burð. Hann hringir náttúrlega til Borgarness; geturðu komið og aðstoðað mig ? Ég er með kind sem á í erfiðleikum að bera.
Nei ég get ekki komið, segir Dýralæknirinn, enda er það ekki mitt verk, ég á bara að vera yfir svæðinu.
Nú segir bóndinn, hvert á ég þá að leita ?
Nú ég held að það sé kona þarna fyrir vestan sem er dýralæknir, hún var þarna allavega.
Já en hún flutti auðvitað í burtu, þegar embætti hennar var lagt niður.
Nú hverslags er þetta eiginlega, gat hún ekki bara verið kyrr, og praktiserað ?
Praktiserað ? spyr bóndinn dolfallinn, heldur þú virkilega að hér séu svo mörg gæludýr að það sé viðurværi fyrir dýralækni ? Nei hér er enginn á svæðinu til að aðstoða okkur.
Þú verður bara að lóga kindinni segir dýralæknirinn.
Hverslags bölvar rugl er þetta eiginlega. Það er ekki nóg með að þessi mannvera hafi átt sinn stóra þátt í að rústa landsbyggðinni með því að skera niður þoskveiðiheimildir, heldur ætlar hann núna að ganga á milli bols og höfuðs á bændum líka.
Mér er spurn, ætla bændur á Vestfjörðum að láta þetta yfir sig ganga mótþróalaust. Er virkilega búið að draga allar tennur úr Vestfirðingum, svo þeir geta ekki hreyft sig meir ?
Maður var að vona að átakið frá Haga til maga, eða eins og sagt var frá Hafi og Haga til Maga, myndi skjóta styrkari stoðum undir bændur í strjálbýli og einnig auka vægi dýralækna. En nei, það á að drepa það allt saman niður líka. Landráðamaður er sá sem þannig hagar sér, að hann neyðir fólk til að flosna upp og fara. Vei þeim sem veldur slíku. Hann á ekki að fá leyfi til að fara með þau völd sem hann hefur. Svona menn á að refsa grimmilega ef ekki fyrr þá í kosningum.
Bændur það er ykkar að standa með dýralæknum í þessari baráttu, og láta ekki fara svona með landnúnaðinn. Þetta frumvarp á að fá að deyja drottni sínum.
Eða það er líka hægt að taka upp vopnin og berjast með okkur fyrir frjálsum Vestfjörðum. Loka okkur af frá Íslandi og vera sjálfstæð. Það er líka möguleiki. Og sennilega sá raunhæfasti miðað við hvernig stjórnvöld fara með fjórðunginn. Eða ætla menn endalaust að kyssa á vöndinn og láta taka sig ósmurt ?
Enginn aðstoð meira við kúabændur, þeir verða bara að lóga kúnni, því ekki kemur dýri alla leið frá Borgarnesi, enda hefur hann þá í nógu að snúast. Eða ætla menn virkilega að ráða aðstoðardýralækna á fámennari staðina ? Eða jafnvel bara einhvern bóndann í sveitinni, sem þykir liðtækur að hjálpa, þegar enginn lærður dýralæknir vill vinna í hjáverkum við að aðstoða.
Eða hafa ráðamenn ef til vill EKKERT HUGSAÐ UM ÞAÐ HVERNIG ÞETTA ER Í PRAXIS, kæmi mér ekkert á óvart miðað við stjórnarhættina sem þeir viðhafa núna. Svei því bara.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Bloggfærslur 21. apríl 2008
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 3
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 40
- Frá upphafi: 2023304
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 29
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar