Hið daglega veður, vorboðar og nostalgía frá fyrri dögum.

Það er fallegt veður á Ísafirði núna.  Sú stutta átti að vera í aðlögun í morgun, en það voru nokkrar fóstrur veikar, svo hún var bara smástund og fór svo með ömmu heim.  Hún hefur ekkert fengist til að sofa, en er samt mjög róleg.

IMG_4607

Lagt af stað í leikskólann.

IMG_4608

Þær eru voða þægar í bílnum, og þegar við förum gegnum göngin, þá förum við fyrst inn í rassinn á Drekanum, svo um magann og síðan gegnum hálsinn og svo út um munninn.  Þá er eins gott að hafa ekki hátt svo við vekjum hann ekki.

IMG_4611

Hún veit sko alveg hvar krakkarnir eru, og bankar á dyrnar til að komast inn.

IMG_4609

svona var veðrið í morgun.

IMG_4610

Það er eins og himininn brosi við Ísafirði.

IMG_4624

Svona var veðrið í hádeginu, allt baðað sól.

IMG_4625

Veðrið er reyndar svona enn.

IMG_4621

en hún Ásthildur er búin að vera að dunda sér í sandkassanum sem afi kom með fyrir hana.

IMG_4623

Hér má sjá snjóþotur, hjól og síðan páskaliljur komnar að því að blómstra, þannig er kontrastinn í kúlunni.

En það er að koma vor í kúlunni, brumin þanin og blómin að því komin að springa út.  Það er alltaf fallegasti tíminn hér.

 

IMG_4612

Mandarínurósin mín svo falleg.

IMG_4613

Kamelíufrúin, yndæl.

IMG_4614

Kirsuberjaknúpparnir komnir að því að springa út.

IMG_4616

Og rósamandlan verður falleg líka.

IMG_4617

Zakúrakirsuberinn verða stórglæsileg.

IMG_4618

Prímúlurnar brosa glaðlega.

IMG_4619

eins og sjá má eru rósirnar komnar á fullt, þetta er hún Pernille, hún er á stofni og er mjög flott í blóma.

 

Smá nostalgía, hér er hún Dísa æskuvinkona mín.  Dísa ég er viss um að þú hefur ekki haft hugmynd um að þessi mynd væri til.  Manstu nokkuð hvar hún var tekinn ? Er þetta heima hjá þér ?

Dísa og fleiri

Á einhverjum aldrei var ég ferleg með að klippa myndirnar út, og setja þær þannig inn í albúm.  Hér er mynd af Dísu mömmu hennar og sennilega Snorra bróður hennar í vagni.  Allt klippt og skorið hehehe

 

 

Dísa, mamma og snorri

c_documents_and_settings_owner_my_documents_my_pictures_mars08_26_3_08_27_03_08_28_3_08_29_3_08_30_3_08_1_april_08_487698.jpg

Hér er hún Dísa með pabba mínum, mömmu og Gunnari og Hjalta bræðrum mínum, þessi er tekinn inn í Hattadal minnir mig og við vorum að fara til berja.

Skólabróðir

Hér er einn skólabróðir okkar, held að þetta sé Kitti Muggs, en er ekki viss.

En á páskunum droppaði inn til mín glaðleg og falleg stúlka.  Hæ manstu nokkuð eftir mér, ég er dóttir hennar Klöru vinkonu þinnar, sagði hún.  Og mikið rétt ég sá svipinn.  Mamma hennar er nú dáinn blessuð sé minning hennar, en hún kom oft í heimsókn með börnin þegar þau voru lítil.  En hér er hægt að sjá svipinn.

Dóttir Klöru

Eva.

 Klara

Klara Margrét.  ef ykkur finnst búningurinn skrýtin þá er það af því að hún er í búningi sem við gerðum okkur þegar við vorum vinsælt tríó, 12 - 16 ára og komum fram á skemmtunum víðs vegar um bæinn, það var skemmtilegur tími.  ´

gömulmynd

Klara Margrét, ég og Matthildur Herborg í fullri múnderingu.  Þetta var mjög skemmtilegur tími og við vorum mjög vinsælar. 

Jamm maður hefur nú ýmislegt brallað um ævina.   


Grallari og það sem við Egill Helgason eigum sameiginlegt.

Smámömmufærsla undir nóttina.  Dóttir mín sagði mér að henni þætti vænt um að fá þessar myndir og sögurnar um dæturnar sínar, þó hún sakni þeirra sárt, þá er þetta sárabót.  Bara svona svo þið vitið það, af því að það kom upp hér.  InLove

IMG_4593

Þetta gæti náttúrulega verið Denni Dæmalausi, en nei þetta er Ásthildur Cesil.

IMG_4596

eftir volkið í garðskálanum fór hún svo í vaskinn hehehehe LoL

IMG_4601

Þar undi hún sér vel og hafði marga aðdáendur tíhí Kissing

IMG_4604

Og einhvernveginn tekst henni alltaf að gera það sem hún er sett í að galadressi.

IMG_4605

En svo var boðið upp á taco, henni fannst það gott, og Hönnu Sól líka.  Svona er þetta bara.

 

En ég sagði hér um daginn að ég hefði lesið að Egill Helgason gengur um í sérstökum skóm, og ég komst að því að skórnir sem hann elskar eru sömu skórnir og ég gengi í daglig dags.  Hann pantar sína frá Ástralíu, og þeir eru örugglega vel pússaðir og flottir.  Ég fæ mína á Hellu hjá hestamönnum, og þeir eru ekki pússaðir nóg greinilega.  Ég tók eina mynd af mínum svona til að sýna.  Þetta eru reyndar alveg meiriháttar skór, og endast og endast.  Sterkir og þægilegir ég hef arkað í þessum skóm út og suður, til Vínar og Köben og bara hvert sem er.  Fæturnir stynja af unaði, og skrokkurinn þakkar mér fyrir stuðningin.  Enda á skrokkurinn á mér allt gott skilið fyrir að duga mér svona vel, og vera svona dásamlega heilbrigður og hlýðin.

IMG_4606

Jamm þetta eigum við Egill Helga sameiginlegt.  Ég ætla að bera vel á þá á morgun svo þeir líti vel út, ég nenni bara ekki að þykjast, svona eru þeir NÚNA.  LoL


Bloggfærslur 2. apríl 2008

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 40
  • Frá upphafi: 2023304

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband