Stundum er maður út úr korti.

Ég hef ekkert komist á netið í dag.  Það tekur tíma að setja fólk inn í málin skal ég segja ykkur, jafnvel þó manneskjan sé dugleg og drífandi.  Elli fór í morgun á æfingu hjá Karlakórnum Erni á Núp í Dýrafirði, þeir eru að æfa sig fyrir ferðina til Ungverjalands. 

En við fórum á afmælishátíð í Leikskólanum Tjarnabæ, ég var með myndavélina og tók fullt af flottum myndum af fólki og verkum barnanna, komst svo að því þegar ég kom heim, að það var ekkert kort í vélinni.  Það er farið að slá út í fyrir mér, þegar ég hef svona mikið að stússast, ég er grútsvekkt yfir þessu.  En ég er ákveðin í að taka myndir af því sem börnin hafa verið að vinna að, á mánudaginn, því þar var margt mjög gott og áhugavert. 

En það sem var merkilegast í þessu öllu var, að í dag í skólanum, í einu litlu herbergi voru manneskur frá 6 löndum, eða 7 eftir því hvernig talið er; þar var fólk frá Ástralíu, Íslandi, Póllandi, Slóveníu, Litháen og Thailandi, og svo er Ásthildur litla fædd í Austurríki. Allir í sátt og samlyndi og sem ein heild, allir sem einn.  Fólk hér hugsar öðruvísi finnst mér, þetta er meira norm en annað.  Og fólk veit og sér að allir eru eins inn við beinið, hvernig sem húðlitur og tungumálið er.

Ára er frá borg við sjóinn man ekki nafnið, og nenni ekki að gá núna, en í þessari borg sem er bara smáborg á þeirra mælikvarða, búa jafnmargir og á öllu Íslandi, eða 300.000 manns.  Nú í kvöld var hún orðin lasinn blessunin og hafði áhyggjur af því.  Annars er hún kát og glöð.  En leiðist frekar.  Gerir það bara fyrir mig að vera hér í hálfan mánuð að hjálpa til.  Vonandi verður hún orðin hress á morgun. 

En ég tók svo sem nokkrar myndir hér í kúlunni eftir að mistökin urðu ljós.  Jamm ég er frekar svekkt og leið yfir þessu, og orkulaus svo það sé bara eins og það er. 

IMG_4958

Sú litla sagði skýrt í kvöld Sigurjón Dagur.  Við Sigga mamma hans litum hvor á aðra og trúðum þessu varla, en jú, hún sagði þetta svona. 

IMG_4960

Hjalað við álfa og engla, þetta barn talar ýmsar tungur.... ef út í það er farið hehehe, svarar meira að segja á rússnesku, ef svo ber undir.

IMG_4963

Svo er það prinsessan, hún þarf hjálp við skotauið, eins og Öskubuska LoL

IMG_4964

Jamm það þarf að reima Happy

IMG_4967

Svo getur maður dansað á ballinu á eftir. 

IMG_4972

Enda er maður voða fín ... eða þannig sko !

IMG_4976

Meðan þeir sem jarðbundnari eru vökva, blómin... en fatan hún lekur elsku amma elsku amma.

IMG_4977

Og sumir horfa íbyggnir út í heiminn.

IMG_4984

Því misjafnt hafast mennirnir að.

IMG_4985

En allir hjálpast samt að í lokin, enda er það sem mestu máli skiptir.   


Bloggfærslur 12. apríl 2008

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 40
  • Frá upphafi: 2023304

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband