Endurmenntun mömmu.

Jamm ég er að komast að því að ég þarf að ganga í gegnum nokkur skref sem voru sjálfsögð hér í denn, en var búin að gleyma.  Það eru þessi litlu atriði eins og að eiga alltaf auka snuddu Blush Keypti næstum upp apótekið. Svo er að muna eftir að blanda í pelann fyrir nóttina, ekki nóg bara með þennan sem barnið fer með í svæfinguna, heldur þarf að hafa einn auka til að stinga upp í lítinn munn eldsnemma morguns, getur gefið manni nokkrar mínútur auka í slökun hehehehe.  Síðan verður maður bara að reyna að horfa eitthvað annað þegar þau eru að subba sig út, og hugsa að föt sé eitthvað sem bara fer í þvottavélina og þvoist, og það sé til nóg af auka.  Muna að þegar þau hella niður, ekki vera reið heldur bara brosa og segja þetta er allt í lagi amma þurrkar þetta bara upp, vegna þess að stress eða óp, gera bara hlutina verri ef eitthvað er.  Þau verða sár og leið. 

Að komast á klóið krefst ákveðinnar kænsku. Ef maður er ekki súperwoman sem situr á klóinu með barnið í kjöltunni og þarf að gera allt með annari.  Annars bý ég rosalega vel að því þegar ég handleggsbrotnaði í fyrra.  Get sko notað bara vinstri við næstum hvað sem er.  Meira að segja að skrifa á tölvuna ef ég þarf að sitja með litla manneskju í kjöltunni heheheheh...

Þetta er allt að koma hjá mér.  Það læris svo lengi sem lifir. 

Bára og fjölskylda 24.1.07 023


Mömmublogg, Tjarnarborg og hið daglega veður.

Jæja þá var annar í aðlögun á Tjarnarborg.  Við vöknuðum snemma fjölskyldan og fengum okkur morgunverð saman.  Veðrið er aðgerðarlítið en gott bara.

IMG_4554

Notaleg stund í  morgunsárið.

IMG_4555

En svo var haldið á Suðureyri til að fara á leikskólan Ásthildur er í aðlögun og gengur rosalega vel.

IMG_4559

Jamm hún virkar ekki stór, en dugleg er hún.

IMG_4561

Þessi ungi maður er kúabóndi, minnir að hann heiti Sverrir, flottur.

IMG_4562

Þessi ungi maður heitir Gunnar og var eitthvað stúrinn yfir morgunmatnum.

IMG_4565

en það rjátlaðist nú strax af honum, og hér er hann að hjálpa Sverri með kýrnar.

IMG_4563

Hér er svo verið að hleypa út tuskudýrunum, þau þurfa að fara að leika sér við krakkana.

IMG_4564

Annar stúrinn stubbur, mig minnir að hann heiti Stanislaw, vildi ekki borða heldur.

IMG_4566

hann tók samt fljótt gleði sína, enda ekki annað hægt á þessum frábæra leikskóla, þar sem allir eru vinir og góðir hver við annan.

IMG_4567

Hér eru Rakel og Mónika, Rakel situr, Mónika er dálítið abbó út í Ásthildi, eltir hana og reynir að klípa eða hrinda, en hún er skynsöm lítil stúlka og ég veit að þær verða góðir vinir.

IMG_4569

Eins og sjá má fellur mín litla vel inn í hópinin og viðurkennir fóstrurnar sínar.

IMG_4570

Hahahaha þau eldri hér eru að hlaupa fyrsta apríl.  Fóstrurnar sögðu þeim að það væri lítið folald í garðinum, og þau hlupu til að gá.  LoL

IMG_4572

Líka skottan mín.

IMG_4574

Svo fóru þau í samverustund, þar sem er lesið fyrir þau og svo syngja þau.  Hver vill koma með mér heim í Kúluna mína, sagði Hanna Sól, þegar ég gekk framhjá LoL

IMG_4575

en það var meira að gerast í dag á leikskólanum, þessi unga fröken á nefnilega afmæli í dag, og hún fékk að velja veitingarnar, hún valdi poppkorn.  Þetta er Sara og hún er fimm ára í dag.

IMG_4577

Hér er hún að fara með poppið inn í veislusalinn.  Aldeilis hróðug.

IMG_4578

Hér er verið að undirbúa veisluna.

IMG_4580

Já þau eru að verða spennt að bíða eftir að veislan hefjist.

IMG_4581

Allir að setjast og bíða.

IMG_4582

Já þau eru þæg og góð þessir krakkar.

IMG_4584

Undirbúningurinn í hámarki.

IMG_4585

en fyrst þarf að gera smá serimoníur, taka myndir af afmælisbarninu til að setja á heimasíðuna.

IMG_4587

Svo þarf að tollera hana og auðvitað syngja afmælissöngin, hún á afmæli í dag hún á afmæli í dag.... hún á afmæli hún Sara, hún á afmæli í dag.

IMG_4589

Þá var komið að því, allir fengu poppkorn, og það var nammi namm.  Það þarf ekki alltaf að vera eitthvað ríkulegt eða kostnaðarsamt til að gleðja litlar sálir, þetta einfalda er bara best, af því að því fylgir ekkert stress, bara gleði og ánægja.

IMG_4590

Já þetta litla hversdagslega dugir alveg svo vel.  Það er bara að koma auga á það.

IMG_4591

Þetta gerði alveg sama gagn og tertur eða ís.  Nema minna maus og sullumbull.

Við Ásthildur héldum svo heim á leið.  Hún var ekkert sérlega spennt að yfirgefa samkvæmið.  Enda þessi fína veisla í boði.  Hún reyndi því að banka á hurðina eftir að við vorum komnar út hehehe.. En svo fékk hún pelann sinn og sofnaði í bílnum á leiðinni heim, ég kom henni svo í vagninn sinn og þar sefur hún nú.  En á morgun fer vagninn hennar með, og síðan fær hún sennilega að vera allan tímann. 

Hér er svo hið daglega veður, tekin á Suðureyri í þetta skiptið.  

IMG_4592

Eigiðið góðan dag, og takk fyrir mig.  Mér þykir rosalega vænt um svörin ykkar hér á undan og ævinlega.  Takk fyrir mig. Heart


Bloggfærslur 1. apríl 2008

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 40
  • Frá upphafi: 2023304

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband