Kvöldverður með pabba mínum.

Já það var mjög skemmtilegt kvöld sem við áttum með pabba.  Ég eldaði svo áttum við yndislega stund saman fjölskyldan.

IMG_3232

ein svona til gamans um leið og við fórum þá flaug flugvélin yfir til að lenda, og ég smellti af mynd.

IMG_3233

Svo lögðum við af stað.  Það þurfti náttúrulega að flytja hinn bráðnauðsynlega barnastól milli bíla.

IMG_3234

Þessar elskur heilsuðu okkur þegar við komum á Hlíf, óþekkar angar sem ekki fóru á Hlífarsamsætið af ýmsum ástæðum, en ein hafði pottþétta afsökun hún hafði lærbrottnað.

IMG_3236

Steikin komin á borðið. Og allir njóta.

IMG_3237

Og svo pabbi minn glaður og sæll kominn í stólinn sinn, saddur á ánægður.  Hann er bara frískur og hefur það fínt fyrir ykkur elsku lesendur ættmenni mín hér og þar.  Ég þurfti aðeins að setja nokkra dropa í eyrað á honum.  Stera segir hann stoltur, af því að eyrað er bólgið eftir heyrnatækið.  En hann pabbi er bestur af öllum og ég bara elska hann rosalega mikið.


Sunnudagsgöngutúr.

Já ég gerði alvöru úr þeirri hugmynd minni að fara í labbitúr með þeirri stuttu, stubburinn er komin heim af brettaæfingu, og er alveg að ná þessu öllu saman, er farinn í bíó, og bráðum fer minn elskulegi eiginmaður á lúðrasveitaræfingu, og ég bauð pabba í mat heima hjá honum, af því að aðgengið hingað er erfitt.  Við fórum á föstudaginn saman út að versla, og nú er komið að því að elda dýrindissteik.  Hann er reyndar á Hlífarsamsæti, að skemmta sér sá gamli, en kemur svo heim til sín í veislumat.

IMG_3215

Stubburinn kemur heim af brettaæfingu.

IMG_3219

Afi amma og Hanna Sól að fara í göngutúr.

IMG_3223

Já sumir sitja bara.

IMG_3224

Svo skiptist maður á ekki satt.

IMG_3228

Mig langar að fá snjó afi.  já já, hérna er einn stór ís fyrir þig.

IMG_3230

Tilvalið að leika sér smá fyrst maður er komin út á annað borð.

IMG_3231

Þá er að drífa í þessu.  Hehehehe.. við bökuðum pönnsur í morgun og hún át 7 stykki, og ég er ekki að skrökva mamma litla.  Smile


Hið Daglega veður og nýr Forstöðumaður á Litla Hrauni.

Það er besta veður hér núna. Ekki sól, en bjart veður eigi að síður, logn og blíða.

Hið daglega veður.  9.3.08 001

Ljúft bara, maður ætti ef til vill að fara í útiföt og labbitúr, myndi gera manni gott, það væri hægt að setja barnið í snjóþotu.  'Eg er að hugsa upphátt núna.

Hið daglega veður.  9.3.08 002

Nýfallin snjór, og hreinleiki.  Það er gott.

 

En ég ætlaði að ræða svolítið um fangelsismál og hana Margréti Frímanns.

Margret-Frimannsdottir

Ég heyrði viðtal við hana í útvarpinu um daginn og koms að því mér til mikillar gleði að hún hefði tekið við Litla Hrauni.

Sjá hér:

Margrét Frímannsdóttir skipuð forstöðumaður Litla Hrauns

Fangelsismál  Margrét Sæunn Frímannsdóttir, fyrrverandi alþingismaður, hefur verið settur forstöðumaður fangelsins að Litla Hrauni í stað Kristjáns Stefánssonar sem er á leið í starfsleyfi. Margrét, sem tekur við starfinu hinn 1. febrúar, verður þar með fyrsta konan til að stýra fangelsi hér á landi. „Þetta leggst rosalega vel í mig,” sagði Margrét í samtali við Gluggann. „Fangelsismál eru málefni sem ég hef kynnt mér vel í gegnum árin og haft mikinn áhuga á. Það er mjög gott starfsfólk á Litla Hrauni sem hefur mikinn áhuga á að efla starfsemi fangelsisins og ég hlakka til að fá að vinna við hlið þess.” Margrét segir öruggt að ákveðnar áherslubreytingar verði þegar hún komi til starfa, „það fylgja alltaf áherslubreytingar nýjum mönnum.”

 Ég þekki Margréti dálítið hún kenndi mér félagsfræði þegar ég var í Garðyrkjuskólanum, árið 1987.  Þá var hún sveitarstjóri á Eyrarbakka, afskaplega skelegg kona.  Hún var líka skemmtileg og sagði okkur margar sögur. 

Ég hafði síðan nokkrum sinnum samband við hana, einmitt um fangelsismálin á Litla Hrauni, þegar minn drengur var í vítahring þar út og inn.  Það var margt sem mér þótti að stjórninni þar, og mannfyrirlitningin í algleymi.  Ég veit ekki hvort það hefur átt sinn þátt í því að Margrét fór að kynna sér málefni fangelsisins, en þó er trúlegt að það hafi ekki spillt fyrir. 

En Margrét þekkir sem sagt fangelsið utanfrá, og beint frá aðstandendum, og svo núna innviðina.  Og ég hef trú á því að Magga komi öllu á betri veg þarna.  Ég er sannfærð um að kona hefur aðra sýn á vandamálin, og það verði betur hlúð að föngunum, og málin tekin öðrum tökum.  Mér heyrðist líka á henni í viðtalinu, að það væri strax breytingar til batnaðar og meiri umhyggja.  Hvað sem segja má um kynin þá er það þannig að konur hugsa oft meira með hjartanu og það er meira innbyggt í konur að hlú að og vernda. 

Það sem þarf að breyta er að það á alls ekki að setja fíkla inn í fangelsi, það á að vera til stofnun sem tekur inn fólkið sem er komið í ógöngur, áður en þau grípa til örþrifaráða.  Það verður að stoppa þetta ferli með öllum ráðum.  Það er ekki langt síðan einn vinur sonar míns, fannst látinn af of stórum skammti, þar áður hafði ung vinkona hans hengt sig á svipuðum slóðum, bara í fyrradag tók ung stúlka sitt eigið líf.  Sonur minn sagði við mig um daginn. Mamma ég sá myndir af mönnum sem höfðu stytt sér aldur framan á DV og ég þekkti þá alla.  Þetta gengur ekki, en málið er að þegar fólkið okkar er komið á ystu nöf, og sér ekki morgundaginn, þá er þetta úrlausnin.  Þau sjá enga aðra, og ég segi og skrifa, það sér það enginn annar heldur.  Foreldrar standa ráðalaus, og geta ekkert gert.  Kerfið hafnar þeim, og það er ekki bara biðlistar á meðferðarstofnanir, heldur taka þeir ekki við fólki nema það sé mótiverað fyrir því að hætta.  

Það er því lítið sem hægt er að gera, og því fer sem fer.  Líf þessara ungmenna er því á ábyrgð kerfisins.  Það er stjórnvalda að koma á stofn lokaðri meðferðarstofnun, þar sem hægt er að koma þeim ungmennum inn sem misst hafa fótana og komast ekki upp úr farinu.  Þar þyrfti líka að vera deild sem væri  hægt að dæma afbrotamenn til innlagnar, afbrotamenn sem eru fíklar og hafa ekki stjórn á lífi sínu.  Afbrotamenn sem eru gangandi hætta fyrir alla, þar sem þeir eru ekki sjálfráðir, vegna fíkniefna og áunninnar geðveiki. 

Hve lengi ætla stjórnvöld að líta til hliðar og neita að takast á við þennan fjanda ?  Hve mörg ungmenni þurfa að fara þessa leið, áður en einhver vaknar og fer að vinna í því að opna slíkt heimili ?

Eða skiptir engu hvað verður um þessa einstaklinga ? eru þeir ekki fólk, og nær ekki stjórnarskrá lýðveldisins yfir alla einstaklinga ríkisins ? Eða þarf að vera þrýstihópur sem hefur hátt og krefst þess að eitthvað sé gert ?

Það verður aldrei, því aðstandendur fíkla, eru löngu orðnir brotnir sjálfir, örvæntingafullir og orkulausir af endalausum áhyggjum og baráttu við fíkniefnadjöfulinn.  Með sífelldar áhyggjur af því að barnið gangi fram af stapanum.  En við getum ekki sem ein ríkasta þjóð heims horft  upp á að hópur sjúks fólks þvælist um,jafnvel heimilislaust, og hefur misst öll tök á lífi sínu.  Hér erum við öll samábyrg fyrir því að koma þeim undir læknishendur og inn á stofnun sem tekur á þeirra vandamálum, og hjálpar þeim út í lífið aftur án vímu.  Það er hægt, en ekki með því að loka augum og eyrum. 

Svo þarf að breyta um kúrs í baráttunni við eitulyf og sölumenn þeirra og innflytjendur efna.  En það er allt önnur saga.


Bloggfærslur 9. mars 2008

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband