Ammæli.

Já hér var heljarmikið afmæli.  Ég pantaði 10 pizzur með tilheyrandi gosdrykkjum.  Og það hvarf allt eða svo til, ofan í svanga en skemmilega gesti.

IMG_3186

Skvísurnar létu sitt ekki eftir liggja, og píanóið trekkir.

IMG_3191

Líka strákana sko !

IMG_3189
Sumir vildu þó bara klifra í stiganum hennar ömmu.

IMG_3193

Afmælisbarnið var náttúrulega miðpunkturinn eins og vera ber.

IMG_3194

Og pabbi liðtækur við að uppvarta.

IMG_3195

Tvær flottar Heiða Bára frænka og Alejandra frænka.

IMG_3196

En sumir ákváðu að þeir vildu ekki koma inn og vera með, því þeir "þekktu" engan, hehehe þessi kom með frænda Úlfs, og það var reynt að fá hann til að koma inn, en hann þáði þó veitingar í garðskálanum, og var veitt vel. 

IMG_3200

Systir hans var þó alveg á því að koma inn, og vera með í ammælinu.

IMG_3201

Sumir höfðu þó meiri áhuga á því að vera í tölvunni.

IMG_3202

Frændu að skemmta sé saman.

IMG_3203

Hver segir að stákar geti ekki slegist út af bangsa.

IMG_3205

Tvær flottar saman, Tinna tengdadóttir og hún Natalía heimilisvinur.

IMG_3206

Og það þarf að fá sér stórt glas til að drekka úr, þó það sé bara vatn sem maður vill.

IMG_3207

Og þau litlu höfðu bara skotið út af fyrir sig.

IMG_3209

Sumir voru meira spenntir fyrir sjónvarpinu, eða eins og þessi ungi maður sagði við vin sinn til að fá hann inn, þetta er hjá ömmu í kúlu, þar má gera allt, hér eru líka trommur og svo hoppiherbergi. LoL

IMG_3210

Já það var svona standandi borðhald, og allir fengu sér eins og þeir vildu.

IMG_3212

Og svo eru sumir bara alveg æðislega flottir Heart

En stubburinn er ánægður með daginn, og hann vill þakka ykkur fyrir góðar óskir, og að hugsa til hans á þessum merkisdegi. 


Hið daglega veður og nokkrar aðra myndir.

Til hamingju með daginn konur.  Ég keypti þessa flottu rós í gær. 

IMG_3181

Það var víst metsala á rósinni hér á Ísafirði. Sjá hér http://bb.is/Pages/26?NewsID=113120

 

Hið daglega veður.

IMG_3179

En svo er hið daglega veður.  Það er prýðisveður hér í dag.  Eins gott því Úlfur minn á afmæli í dag, hann er 11 ára í dag stubburinn minn, og hér verður haldinn veisla, það verða pizzur og gos.  Svo það verður fjör í kúlunni í dag. 

IMG_0458

Þau Alejandra saman í tölvunni.

Svo er hér ein mynd sem er tekinn spes fyrir hann Jóhannes bloggvin minn og kommúnista.

IMG_3180

Þessir tveir félagar eru í svefnherberginu mínu.  Og þeim líður báðum held ég bara nokkuð vel.

Eigið svo gleðilegan laugardag. 


Bloggfærslur 8. mars 2008

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband