Manngerð fjöll.

Snjórinn getur tekið á sig hinar ýmsu myndir, en það er líka hægt að gera ýmislegt fallegt úr snjónum, og hér getur að líta nokkur falleg manngerð snjófjöll. 

IMG_3172

Þessi glæsilegi fjallahnjúkur er í Prestabugtinni.

IMG_3173

Þessi glæsilegi snjóhnjúkur er með kirkjuna í baksýn.

IMG_3174

Jamm hér má sjá fjall stærra en Himmelbjerget fyrir neðan Túngötuna.

IMG_3175

Þessi væni haugur er á Sjúkrahústúninu.

IMG_3176

Sést betur hér.

IMG_3177

Og stærðin sést betur hér.

IMG_3178

Jamm þó við séum fræg fyrir reyksnjóhús, þá eru þetta bara skaflar.

IMG_31783

Þessi rétt hjá einum leikskólanum eða Sólborg.  En ætli væri hægt að flytja snjóinn út, eitthvert og koma honum í verð.  Það er svo sem nóg af honum hér núna LoL


Í tilefni umræðna um sjálfstætt ríki Vestfjarða.

Það hringdi í mig blaðamaður frá 24 stundum til að ræða um sjálfstæða Vestfirði http://asthildurcesil.blog.is/blog/asthildurcesil/entry/465490/#comment1146385 ég sagði honum að mér væri fullkomin alvara, hann ræddi líka við Jakob Fal. Svo það gæti verið fjallað um þetta í 24 stundum á morgun. 

En þetta er líka hér; http://bb.is/?PageID=26&NewsID=113101  Svo Þetta framlag Jakobs hefur vakið dálitla athygli. 

En við skulum sjá hvert þetta leiðir okkur.  Ég hef rætt um þessi mál í 40 ár, því ég skrifaði grein í Morgunblaðið þá,  þá voru sunnanmenn einmitt að ergja sig yfir peningum sem færu í vegalagnir á Vestfjörðum, og ég skrifaði og benti á að allt fjármagn sem kæmi inn í samfélagið hér fyrir vestan færi suður.  Allt fé sem færi inn í bankana, og allt fé sem kæmi inn fyrir rafmagn og allt fé sem færi í sameiginlega sjóði.  Þá voru Vestfirðir ríkir og hér voru hæstu meðaltekjur.  Þá voru mikil umsvif og fjársterkustu mennirnir voru hér.  Allt þetta hefur verið frá okkur tekið og meira til.  Nú er svo komið að margir eru að kikna undan álaginu af því hvernig þeim reiðir af.  Við höfum verið arðrænd og niðurlægð á allan hátt. Og nú er enfaldlega komið nóg. 

Þess vegna stend ég við það, að við eigum að huga að því að stofna sjálfstætt ríki.  Sjá hvert það leiðir okkur, og hvernig við högum okkur í því. 


Hið daglega veður.

Hér er yndælis veður í dag, í gær var mugga, og hefur bætt í snjóinn, fuglarnir eru svangir, og koma í stórum hópum þegar maður gefur þeim korn.

IMG_3170

Ósköp kalsalegt, en þó er ekki kallt þegar maður kemur út.

IMG_3171

Ef til vill gægist sólin fram seinna í dag, hver veit.

Danmark 524

Hér er svo ein fyrir hitapúkana mín, þessi er tekin á ströndiinni í Mazatlán í Mexico, þar er heitt og notalegt.  En ég held að ég vildi samt heldur bara vera hér heima í snjónum. 

Sendi ykkur öllum knús inn í þennan föstudag. Heart


Bloggfærslur 7. mars 2008

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband