Hið daglega veður og fleira smálegt.

Við fórum í sund í dag, fjölskyldan, á Suðureyri.  Það var ágætis veður allavega fram að fimmlelyti, en þá kom einhver mugga.

IMG_4512

Svona var veðrið þegar við lögðum af stað í sundið.

IMG_4514

IMG_4516

Það stóð náttúrulega yfir keppni á skíðalandsmótinu, eins og gengur, en þau eru sennilega hærra upp í fjallinu, svo það sést ekki vel frá veginum að göngunum.

IMG_4533

En það er svo sem margt annað sem minnir á þessa ágætu uppákomu.

IMG_4518

Barnalaugin var fremur heit, og þessi litla var smeyk við vatnið, hún var því á höndum allan tímann, öfugt við stóru systur sem syndir um alla laugina, þá stóru.  Stingur sér og leikur allar listir, alveg þrælklár.  ég ætla mér samt ekki að taka myndir fyrr en fer að hlýna.

En mikið var gott að fá sér smálögg þegar hún kom uppúr.

IMG_4522

Svo fá allir ís, náttúrulega það tilheyrir.

IMG_4526

Líka stóri frændi.

IMG_4528

Allt í sómanum með það.  Hanna Sól er stúrin, af því að hún skipti um skoðun með ísinn, vildi fá vanilluís eftir að hún var komin út í bíl, og byrjuð að borða ísinn.  En það bjargaðist allt saman, því hún fékk ísinn hans afa og líka Úlfs, það sem eftir var af þeim.

 

IMG_4532

Litla Evíta er með rauðu hundana.  Hún er öll útsteypt, en er að lagast, svo pabbi fór með hana í smágöngutúr.

IMG_4529

Hér erum við stödd á Suðureyri, gegnt sundhöllinni.

IMG_4536

Þessi var rosalega þæg og góð, þegar við komum heim, dundaði sér heilmikið sjálf.  En Hanna Sólin fékk að fara til Tinnu frænku, og Úlfurinn er hjá Sóley Ebbu. 


Bloggfærslur 29. mars 2008

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband