Börn og bura, skíði og dagsendi.

Ég hef ekki komist nema brot af blogghring í dag.  Hef svo sem reynt, en það kemur alltaf eitthvað eða einhver sem þarf athygli, og það verður ekki við gert nema að sinna því.  Nú er sú litla sofnuð hin að horfa á Bamba, strákarnir í sundi og svo Úlfur í ThaiKvan Do. 

Það er smánæði en þá er orkan farin Smile Sú litla saknar mömmu mest á kvöldin þegar hún á að fara að sofa.  Þá endar með að ég leggst með henni niður og bía henni.  Það er dálítið raunarlegt, en við því er ekkert að gera.  Hún hefur að öðru leyti alveg samþykkt ömmu sína, sem aðal, og á enn svolítið í land að samþykkja afa.  Þó er hún eins og aðrar dömur, þykist ekkert vilja við hann tala, en horfir svo á eftir honum þegar hann fer, og vill að hann komi aftur, svo hún geti þóst ekki sjá hann LoL

Mér brá verulega í dag, þegar þessi eldri kom með bleyju og sagði amma viltu binda hana á mig, ég ætla að vera með hana alltaf Undecided

IMG_4500

Jamm.

IMG_4502

Ekki veit ég hvaðan hún hafði þessa hugdettu.

IMG_4499

En hún gaf ömmu sinni blóm í dag, prímúlur úr garðkálanum.

IMG_4504

Hér eru fánarnir uppi á leið upp á Seljalandsdal, þar sem göngukeppninn fór fram. 

IMG_4505

Á Tungudal var verið að sækja keppendurnar, eftir erfiðan dag.

IMG_4507

Einhverjir örugglega lúnir og til í að hvíla sig fyrir sigra morgundagsins.

IMG_4509

Séð af Tungudal yfir fjörðin.

IMG_4510

Sólarglætur hér og þar.

IMG_4511

Líka niður í bæ. 

En dagurinn í dag er á enda runninn, og á morgun er nýr dagur.  Dagur til að vinna sigra og standa sig í hlutverkinu sem maður hefur tekið að sér.  Reyna allavega allt sitt besta.   


Kúlubúarnir í dag.

Amman;   Hanna Sól mín viltu ekki láta mig hafa þennan keramikflöskukarl ?

Nei ég vil ekki það!

En ég verð rosalega reið ef þú brýtur hann.

Það má ekki vera reið við börn.

Víst má maður verða reiður ef þau brjóta eitthvað fyrir manni.

En þá fer ég bara að gráta og gráta, og þá huggar mamma mig því að hún elskar mig svo mikið.

Já ég elska þig líka rosalega mikið.   Æ takk elskan mín, ég ætla nefnilega að setja hann á öruggan stað. Smile

IMG_3453

Sú stutta var í smáleik í morgun.

IMG_4489

Sandur í tjörnina.

IMG_4490

Já það er gott að setja hann þarna niður.

IMG_4493

Best að vökva fyrir ömmu.

IMG_4494

Best að fá sér sopa líka.

IMG_4496

M þetta er gott vatn.

IMG_4497

A þetta var gott.

IMG_4498

Ekkert jafnast á við vatnið í fiskatjörninni hennar ömmu.

Lena hin Krótíska, hér er mynd af herberginu í Kúlunni.

IMG_4484

Ekki stórt en notalegt.

IMG_4486

Svo er hér mynd af hinu daglega veðri.

IMG_4487

Það er kallt ennþá, en ég heyrði að það var flogið, svo þeir sem voru veðurtepptir í gær hafa komist í dag, þar á meðal forsetinn, hann komst ekki til að setja hátíðina.

IMG_4488

en vonandi er þetta ágætt veður fyrir skíðafólkið sem hér er.  Og sólin er að brjóstast fram.

 


Bloggfærslur 28. mars 2008

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband