Fólkið mitt.

Ég er að vona að ég sé ekki að ofgera ykkur með þessum myndum af mér og mínum.  Ég er stolt af þeirri veröld sem ég hrærist í, og ég er eins og aðrir sjálfhverf mest megnis, og vil miðla af þeirri hamingju sem umvefur mig.  Ég er líka að vona að það geti verið smá leiðarljós um forgangsröðun í okkar villta og tryllta samfélagi.  Það sem skiptir svo óendanlega miklu máli er fjölskyldan, börnin okkar og umhverfið.  Einhversstaðar langt þar aftan við er fjárhagur, peningar og allra neðst eru völd og frægð.  Það er sennilega það sem er mest fallvalt af öllu því sem hægt er að sækjast eftir.

IMG_3545

Hér er hún Tinna tengda og Evíta.  Við áttum öll saman góða stund í kúlunni í dag.

IMG_3548

Það er svo notalegt að hafa alla fjölskylduna í kring um sig, og finna bara hvað allt er gott og svo mikil vænt um þykja.

IMG_3549

Frábærir feðgar.

IMG_3550

Flottar mæðgur.

IMG_3552

Fólk segir hvað þeir séu líkir þessir feðgar.  Málið er að sú líking er á andlega sviðinu því þeir eru ekkert blóðskyldir, en eiga saman gott fjölskyldulíf.  Segir svo margt um lífsins skrýtna tilgang.

IMG_3561

Maríubæn ? nei bara barnaskapur eins og allt hitt.

IMG_3566

Súpermódel ? nei elskuleg tengdadóttir mín.

IMG_3583

Jamm það var sko grillað, þarna eru feðgarnir að grilla úti við.

IMG_3593

Gættu vel að því hvar þú gengur Kristjan minn segir stjúpinn, sem er frábær pabbi.

IMG_3597

Umm maður getur nú borðað sér til ánægju sko, ef maður er svangur.

IMG_3600

Tvær barnsmæður og tengdadætur kúlunnar.

IMG_3602

Já litli Arnar Milos og mamma hans, hún er frá Serbíu og er ekki hress með sjálfstæðisyfirlýsingu Kosovo.  Hún segir að við megum aðeins líta í eigin barm hvað það varðar.  Þetta var serbneskt land þar sem innflytjendur bókstaflega tóku yfir í krafti þess að eignast fleiri börn og verða að lokum í meirihluta.  Við fáum stundum bara hálfa söguna af atburðum frá útlandinu, þangað til við hittum fólkið sem kemur þaðan.

IMG_3608

Knúsí krúsí.

IMG_3610

Töffarinn Ólöf Dagmar, flott ömmustelpa.


Hið daglega veður, og fjölskylda hittist.

Fimmtudags morgun og allt í góðri harmoníu hjá mér.  ég heyrði í flugvél, svo það er flugfært sem betur fer fyrir fólkið sem er að koma í heimsókn.  Það er lika allt í lagi með veðrið, þá komi smá gustur annað slagið.

IMG_3533

Fánarnir komnir upp sem bjóða fólkið velkomið á dalina og skíðasvæðin.

IMG_35331

Skíðavikufánin og fleiri fánar sem blakta víða um bæinn aðallega á leiðum að skíðasvæðunum.

IMG_3534

Og þegar ég set þetta inn, þá sé ég að það birtir upp, svo það gæti orðið sól í dag.  Það væri yndælt.

IMG_3518

Systkinin stolt með afkvæmin sín, Bjössi með sitt fyrsta barn.

IMG_3519

Gaman að sjá hvað hann er duglegur og natinn við drenginn sinn, reyndar eru allir synirnir rosalega natnir og duglegir við börnin.

IMG_3522

Hér sváfu þessir piltar í nótt, vildu endilega gista.

IMG_3530

Sumir voru að hjálpast að.

IMG_3531

Aðrir bara að hafa það notalegt.

IMG_3525

Nafna mín og litli serbinn.

IMG_3529

Hér sést hvað hún er krambúleruð þessi elska.

IMG_3536

Og svo getur maður alveg leikið við litla frænku, þó maður sé töffari og íþróttahetja, en Daníel er í landsliði í Íshokkey, og hefur leikið allmarga leiki bæði í Reykjavík og Akureyri.  Hann er flottastur.


Ærsl tilheyra unga fólkinu okkar.

Það var mikið fjör í kúlunni í dag.  Undirbúningurinn var svo spennandi.  Og svo þurfti náttúrulega að ærslast alveg heilmikið.

IMG_3507

En það var byrjað að máta sig við nýtt bretti sem Hanna Sól fékk frá pabba og mömmu, hér er Óðinn Freyr að fá að prófa.  Þau fóru svo út á lóð að renna sér, og það var voða gaman. 

IMG_3509

En svo var keypt nýtt rúm, og það var nú heldur betur spennandi fyrir prakkarana mína.

IMG_3511

Á öllum aldri reyndar.

IMG_3512

En dagurinn gekk nú samt ekki áfallalaust fyrir sig, því vegna þess að allir voru svo uppteknir þá gerðist það að sú litla datt niður tröppurnar, og fékk þungt höfuðhögg.  Það var rokið með hana upp á spítala.  En sem betur fer fór betur en á horfðist og hún slapp með skrekkinn og dálítið krambúleruð, kúla ofan á kúlu.  En hún er hörð af sér hún nafna mín. 

IMG_3514

Svo var slakað á fyrir framan sjónvarpið, milli tveggja stórra frænda.  En þau eru samtals  6 stykki sem gista hjá afa og ömmu í nótt.  Minnsti prinsinn kom með pabba sínum og mömmu í kvöld, Arnar Milos, eða litli serbinn eins og afi kallar hann. 

En ég segi bara góða nótt. Heart


Bloggfærslur 20. mars 2008

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband