19.3.2008 | 12:51
Hið daglega veður og undirbúningur fyrir helgina.
Já lognið er víst eitthvað að flýta sér í dag, og ekki hefur verið flogið. Það eiga að koma hingað 17 aukavélar yfir páskana, svo það er eins gott að veðrið lagist, eða menn sendi rútur vestur svo allir komist sem ætla sér.
Tengdasonur minn tók tvo puttalinga upp í við eitt Hringtorgið í Mosó, þau ætluðu bara eitthvað út á land yfir páskana, bara þangað sem þau fengju far. Og hann skilaði þeim niður á Silfurtorg á Ísafirði, vonandi fá þau gistingu. Flippdýr sýnist mér, mér líkar vel við svoleiðis fólk.
Já það hefur leyst heilmikinn snjó, það er nefnilega hlýjindi úti og vindur, sem er ákjósanleg skilyrði fyrir leysingum. Það er samt nógur snjór á Dölunum tveimur.
Vonandi lægir í dag.
Sú stutta er farin að gera sig heimakomna í kúlunni, fiktsöm er hún var búin að krækja sér í pennaveskið hans stóra frænda þar var límtúpa sem hún hafði mikinn áhuga á að opna, amma sá samt við henni í það skiptið.
Svo eru tvær duglegar stelpur komnar í heimsókn til að hjálpa til að passa og laga til.
Sonur Ella kemur í kvöld akandi með sína konu og barn, og það þarf að koma þessu öllu heim og saman. En það er bara skemmtilegt.
Vonandi eigið þið góðan dag.
Einn smábrandari upp úr kryddbókinni.
Guðrún Erlendsdóttir, hæstaréttardómari og áður kennari við lagadeild Háskóla Íslands, var einu sinni þulur hjá Útvarpinu.
Helgi heitinn Hjörvar var feikilega mikill íslenskumaður og var honum mikill ami af því ef fólk talaði slæmt mál eða framburði þess væri áfátt. Honum fannst Guðrún ekki bera stafinn "æ" fram á réttan hátt, sagði að hún talaði um Granland, segði harra, lagra og svo framvegis.
Helgi minntist oft á þetta við Guðrúnu en fannst hún ekki taka leiðbeiningu og héldi áfram að bera æ-ið rangt fram.
Svo gerðist það að Guðrún datt í húsakynnum Útvarpshússins og handleggsbrotnaði. Þegar Helgi frétti þetta spurði hann aðeins;
000, og gat hún þá loksins sagt "Æ" ?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
Bloggfærslur 19. mars 2008
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 37
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 26
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar