Sól og snjór og Skíðavikan nálgast, og svo auðvitað Aldrei fór ég suður.

Já Sólin braust fram eftir hádegið, og það var sérdeilis fallegt veður og fallegur bærinn minn.

IMG_3243

Hér er byrjað að rifa í skýin, og þá á maður að syngja sól sól skín á mig.

IMG_3245

Nýr sjónarhóll á kúlunni ekki satt.

IMG_3246

Blár himininn brosir við Ísfirðingum.

IMG_3250

Og sólin skríður niður Eyrarfjallið.

IMG_3247

En inni dafnar sáningin.

IMG_3248O

Og græðlingarnir.

IMG_3251

Snjóhúsið mitt.

IMG_3252

Við fórum svo í sund á Suðureyri af því að veðrið var svo gott, en það er pínukalt í snjónum fyrir litla dömu.

IMG_3253

Þau eru líka tignarleg fjöllin í Súgandafirði.

IMG_3255

Og Ísafjörður og Tungudalur skörtuðu sínu fegursta, Tungudalurinn og skíðasvæðið eru alveg tilbúin að taka á móti skíðavikugestum, sem fara að streyma í næstu viku, því hún verður sett næst komandi miðvikudag.

IMG_3258

Bærinn minn fallegi.

IMG_3260

Og snjóhúsið hehehehe.

IMG_3262

Amma keypti ný náttaföt á prinsessuna, og hún var orðin rosalega þreytt, og var sofnuð fyrir átta.  Þegar mikið er að gera, þá þarf maður að fara snemma að sofa.  Heart


Hið daglega veður.

Já hér er gott veður bjart þó ekki sé sól, og logn.

IMG_3239

Heilmikill snjór náttúrulega.

IMG_3241

Hér sést birtan í fjallatoppum.

IMG_3242

Þessi er svo tekin í hádeginu, og sést að það er farið að sjá í bláan himin í norðrinu. 

Vonandi eigið þið öll góðan mánudag.


Bréf frá Dísu vinkonu og skilaboð frá Lóu frænku.

Já vegna þess sem ég skrifaði um Margréti Frímanns fékk ég eftirfarandi skilaboð frá Lóu frænku minni, sem hefur oft sent mér myndir af fjölskyldunni, sem ég hef birt hér.

hæ Íja mí veistu ekki að Margrét er skild þér Elísa lángamma okkar var systir Árna lángafa Margrétar ha heimurinn er lítill kveðja Lóa Júl

Og það er einmitt það.  Ég vissi svo sem að hún Margrét var frænka mín, vissi bara ekki alveg hvernig við vorum skildar, en þarna er það svart á hvítu.  ´

Síðan fékk ég svo fallegt bréf frá Dísu vinkonu að mig langaði að setja það hér inn, og fékk til þess góðfúslegt leyfi.  En við Dísa erum búnar að vera nágrannar og vinir frá því að við vorum bara smápúkar.

Fengum alveg yndislegt veður hér í dag og ég fór í tvær gönguferðir. Geri það reyndar venjulega á laugardögum, fer fyrst með vinkonum sem eru eins og ég með vefjagigt og hittast alltaf á laugardögum kl. 11 í Laugardalnum og svo förum við í kaffi á eftir í bakaríinu Korninu í Borgartúni og spjöllum þar yfir veitingum að eigin vali. þar bætast oftast fleiri við sem ekki treysta sér í göngu. Síðan fór ég þegar ég kom heim í aðra göngu með Steinunni í Elliðaárdalnum. Hvor ganga er um þrír kílómetrar, en í morgun tóku þær lengri tíma en venjulega því ég tók með mér myndavél í bæði skiptin í dag til að geyma aðeins fegurðina sem er í náttúrunni á svona svölum sólbjörtum síðvetrarmorgnum þegar sólin bræðir nýfallinn snjóinn af trjánum. Svona stundir gera mig hamingjusamari en flest sem fæst fyrir peninga, sérstaklega þegar ég er í góðum félagsskap. á báðum stöðum gengum við um og hrópuðum upp "sjáðu hvað þetta er fallegt" sitt á hvað og nutum þess í botn hvað við eigum fallega náttúru. Mér finnst svo gaman að komast svona útúr öllum ysnum og umferðinni, að vísu var Elliðaárdalurinn eftir hádegi næstum eins og Laugavegurinn, fullt af ólki á göngu og gleðin skein úr öllum andlitum. Það finnst mér mikill munur eða þegar rignir í tíu mínútur og fólk segir "það er bara alltaf rigning" þó kannski hafi verið gott veður daginn á undan. Þessa viku til dæmis hefur verið gott veður annan hvern dag. Af hverju ekki að gleðjast yfir því frekar en sjá alltaf það lakara? En ég er bara ánægð með að vera Pollíanna því ég hef umgengist fólk sem alltaf sér dökku hliðina og er aldrei ánægt. En ég er auðvitað "þorpari" í þess orðs bestu merkingu, ólst upp við leiðbeiningar frá fólkinu í kring og nýt enn góðs af. Ég væri miklu fátækari andlega ef ég hefði ekki haft mína foreldra, þína, ömmu þína og afa og foreldra allra hinna vegapúkanna til að gera mig það sem ég er.

Kær kveðja,

Dísa

Með þessum fallega pistli kom svo mynd af þeim frænkum Ellu og Dísu, og svo bróður Dísu Óðni 

Dísa Ella og Óðinn

Flottir krakkar ekki satt ?

 


Bloggfærslur 10. mars 2008

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband