Okkar maður.

Ég vil benda fólki á þessa tilnefningu.  Elvar Logi á heiður skilinn fyrir dugnað og atorku við að hlú að leiklist í bæjarfélagi okkar.  Við getum sýnt honum þakklæti okkar með því að velja hann til sigurs.  Sendi þetta inn hér með.   

Til fróðleiks ( og helst eftirbreytni): Eins og sést í neðanskráðri frétt er Elvar Logi Hannesson tilnefndur til menningarverðlauna DV fyrir einleikjahátíðina Act Alone.Það yrði mikil lyftistöng fyrir leiklist á landsbyggðinni ef hann yrði valinn í flokki leiklistar. Þeir sem vildu leggja honum (og leiklist á landsbyggðinni) lið í þessari baráttu geta gert það með því að smella á þessa slóð:  http://www.dv.is/menning/sida/42  og merkja þar við hann.Það eitt að vera tilnefndur er mjög gott en hitt væri enn betra.  Ath aðeins má merkja við eina grein.Ekki væri verra ef athygli fleiri yrði vakin á þessuMeð bestu kveðjum,

XXXXXX

 
Elfar Logi Hannesson.
untitled bb.is | 28.02.2008 | 10:24Elfar Logi tilnefndur til menningarverðlauna DVElfar Logi Hannesson, leikari á Ísafirði hefur verið tilnefndur til menningarverðlauna DV. Tilnefninguna hlýtur hann fyrir einleikjahátíðina Act Alone. Í tilnefningunni segir: „Einleikjahátíðin Act Alone, sem er eina reglubundna leiklistarhátíðin á Íslandi, hefur verið haldin á Ísafirði síðan 2004 og er að langmestu leyti framtak eins manns, Elfars Loga Hannessonar. Þar hefur komið fram fjöldi einleikara, bæði innlendra og erlendra, með verk af mjög ólíku tagi. Hátíðin hefur aukið á fjölbreytni íslensks leiklistarlandslags og er einnig mikilsvert framlag til menningarlífs á Vestfjörðum.“ Þrjátíu ár eru síðan Menningarverðlaunum DV var komið á fót en þau voru fyrst afhent árið 1978.

Þann 5. mars verða þau afhent í tuttugasta og níunda sinn en afhending þeirra féll niður í fyrsta sinn á síðasta ári í kjölfar eigendaskipta á DV skömmu fyrir þar síðustu áramót. Verðlaun eru veitt í sjö flokkum - bókmenntum, byggingarlist, hönnun, kvikmyndalist, leiklist, myndlist og tónlist - fyrir framúrskarandi árangur á listasviðinu á síðasta ári.
 

Enn af ófærð og snjó.

Það er ljóst að stubburinn spilar ekki fyrr en á morgun.  Kennarinn hans er veðurtepptur á Flateyri, búið að loka veginum vegna snjóflóðahættu.  Ég er eiginlega hálf feginn því ófærðin er mikil og erfitt að vera á litlum bíl. Elli er ennþá í Bolungarvík, og hefði ekki komist heldur.  Þetta er nú meiri ófærðin, barnsmóðir sonar míns hefur beðið síðan í gær að fljúga suður, en nú er vegurinn tepptur af snjóflóði.  Allt upp á eina bókina lært.

http://www.bb.is/Pages/26?NewsID=112776

 Að vísu ekki alveg svona mikið ennþá hehehe...

snjórá kúlu

En hver veit, hvort það verður svona mikið. 

 


1. mars hið daglega veður.

En fyrst til hamingju með með bjórdaginn. 

IMG_3040

Hehehehehe...

En veðrið er frekar muggulegt, og nú þarf ég að ösla snjóinn upp í mið læri.

IMG_3038

Svona lítur það úr.

IMG_3039

Jamm snjórinn er raunverulegur.

IMG_3037

Og litla gullið mitt heimt úr helju í gær.  Hún átti að vera með eitthvað gult, og það eina sem við fundum var blaðran hérna. 

En nú er stubburinn að fara á æfingu, það eru tónleikar hjá honum í kvöld.  Trommur og bassi, það verður spennandi.

Þá þarf að klæða sig og ösla snjóinn niður að bílnum og vona að okkar menn hafi mokað helstu strætóleiðir,  enda er ég viss um að það hafa þeir gert.  Hvergi eru götur og gangstéttar jafn vel mokaðar og hér. 


Bloggfærslur 1. mars 2008

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband