Heimför.

Jæja þá leggur maður í hann heim.  Hér er sól og blíða, en minn elskulegi eiginmaður var að hringja og sagði að það væri allt fullt af snjó og ófært að fljúga frá Reykjavík vegna fannkomu.  Úff, en ég á nokkra klukkutíma í Danmörku, og systir mín ætlar að sækja mig út á völl, hún býr í Köge.  Svo það verður yndislegt að hitta hana.  Við erum að ljúka við að pakka niður ömmgurnar.  Og svo er kvíðin í mér út af þessu flugi.  En það bjargast allt.

Sjáumst seinna. 


Krúttfærsla, ömmustælar og Vínararkitektúr.

Já ég ætla að byrja á byggingunum.

IMG_2359

Eins og ég sagði þá er þeim ekkert heilagt í arkitektúr og að blanda saman gömlu og nýju.

IMG_2363

Gler/stál og gamli tíminn hlið við hlið. Í forgrunni rólóinn við leikskólann.

IMG_2364

Skelin frá nýju sjónarhorni, hún stendur reyndar á nokkrum steypustöplum.

Arnar_Milos022

En þann 26. janúar kom þessi litli drengur í heimin hann Arnar Milos, 17jánda barnabarnið mitt, takið eftir hvað hann er fallegur og sléttur í framan.  Yndislegur drengur. 

Arnar_Milos038

Og virkilega stoltur faðir, með einkasoninn.  Til hamingju elsku Bjössi minn og þið bæðiHeart

IMG_2357

Hér er svo skottið Ásthildur Cesil, sem samkvæmt mannanafnanefnd má ekki heita Cesil.  HUH 

IMG_2366

En við fórum í dýralæknaskólann hennar Báru dóttur minnar í dag, sem er eiginlega miklu meira en bara einhver dýralæknaskóli, þarna er hátækni sjúkrahús fyrir dýr, og heilt háskólaþorp.  Þar eru skurðstofur fyrir hesta kýr og önnur stór dýr, önnur skurðstofa fyrir smærri dýr, röntgen stofur fyrir stór og lítil dýr, og allt sem lýtur að menntun dýralækna, en mér skilst að þeir þurfi að mennta sig meira en mannalæknar.  Þessi dýralæknaskóli og sjúkrahús er sá elsti í Evrópu, og það var María Theresa keisaraynja sem kom honum á fót, á sama tíma og Napoleon vinur hennar setti sinn skóla á stofn, af því að hann þurfti að hafa heilbrigða hesta.  En sá skóli leið undir lok, meðan þessi starfaði og starfar ennþá.

IMG_2372

Hér sjáum við póníja frá Hjaltlanseyjum.  Krúttlegir alveg.

IMG_2373

Hanna Sólin var afskaplega hrifin af þessum smáhestum eins og sjá má, og líka Ásthildur.

IMG_2373

Þeir eru frá Hjaltlandseyjum þessar elskur. 

IMG_2382

Ungviðið er samt við sig og yndislega og forvitin.

IMG_2400

Þessi er austurrískur að ætterni, haflinger heitir kynið sem hann er af, og þeir eru allir svona á litinn.

IMG_2405

Og þeir þáðu svo sannarlega heyið sem Sólin gaf þeim.

IMG_2406

Þessi er algjört krútt, móðir komin að burði.

IMG_2407

Þessi líka. Þ.E.krúttmoli.

IMG_2408

Hér er annar austurrískur hestur, honum þótti gælurnar góðar.

IMG_2412

Þau náðu vel saman, enda er Hanna Sól vön hestum, þar sem foreldrar hennar eiga hesta heima á Íslandi.

IMG_2415

Sú stutta kemur líka til, hún er gott efni í hestamann. 

IMG_2417

Jamm krútt öll þrjú.

IMG_2418

Hér eru svo aftur á móti íslendingar.  Þeir eru náttúrulega bestir.

IMG_2419

Þetta er ekki bara skóli, heldur heilt þorp, sem telur ekki minna en 10.000 manns, þegar allt er talið, hér er ríki í ríkinu, eins og risastór Bifröst, með götum sem heita Röngengata, Skurðstofugata, Höfuðgata, og svo framvegis, hér eru búðir, mötuneyti og allskonar deildir.

IMG_2424

Hér rakst ég á agave plöntuna, en hún er notuð í Tequilahéraðinu til að framleiða Tekíla, þá eru blöðin í miðjunni fjarlægð og þá myndast eins og skál, í þessa skál myndast svo vökvi sem er agave sem er uppistaðan í Tekíla.  100 % Agave er rosalega dýrt og gott vín.  Þetta er ættingi Alua vera plöntunnar, í enda þessarar plöntu er svo oddur mikill og beittur, og ef hann er rifinn frá plöntunni, fylgja þræðir, þetta notuðu indíjánarnir til að sauma með.  Þetta er því margnota planta.

IMG_2426

Hér má sjá eina götuna í þessu litla dýralæknaþorpi, í miðri Vín.

IMG_2427

Hér erum við í mötuneytinu,

IMG_2428

Litla skottið undi sér vel í glugganum á byggingunni.

IMG_2430

Amma lét ekki sitt eftir liggja.

IMG_2444

Og stóra stelpan mín varð að fá að klifra svolítið.

IMG_2450

Sú stutta stendur keik og labbar ef maður heldur í hendina á henni, annars sígur hún bara niður á rassin og skríður svo.

IMG_2478

Það er í lagi að labba svona í hundaólinni hehehe

IMG_2462

Og amman ekki langt í burtu.

IMG_2480

Móðir, dóttir, hundur og börn, þannig á lífið að vera.

IMG_2498

En máli hafa æxlast þannig að amma fær að fara heim með stóru stelpuna sína hana Hönnu Sól.  Hún vill koma heim og vera hjá ömmu og afa í mánuð eða svo, svo mamma geti aðeins andað og verið til.  Og sú verður nú aldeilis prinsessa. 


Bloggfærslur 7. febrúar 2008

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband