Maskadagurinn í dag.

Ísfirðingar eins gott að muna eftir namminu í kvöld, þegar litlir gestir berja að dyrum og syngja eða bara sníkja nammi.

bb.is | 04.02.2008 | 10:22Maskað í dag

Upp er runninn bolludagur og samkvæmt rótgróinni ísfirskri hefð ganga börn í hús íklædd grímubúningum og sníkja nammi. Þrátt fyrir að aðrir Íslendingar hafi kosið að nota öskudaginn til þessara hluta halda Ísfirðingar sínu striki á bolludaginn. Sá siður að flengja sína nánustu með bolluvendi í því skyni að fá að launum gómsætar bollur hefur einnig löngum verið viðhafður á Vestfjörðum og ekki er líklegt að hann leggist af meðan bollur reynast jafn gómsætar og raun ber vitni en í dag nær bollusala Gamla bakarísins og Bakarans á Ísafirði hámarki. Öllum þeim sem aðfluttir eru og ekki orðnir aðlagaðir siðum og venjum Ísfirðinga er bent á að birgja sig upp af sætindum og undirbúa sig fyrir stórkostlega búningasýningu ísfirskra barna í kvöld.

 

maskadagur

Þessar verða sennilega ekki að maska í kvöld, því samkvæmt BB er hún fjögurra ára gömul, svo þessar dömur telja sig örugglega of gamlar til að maska.

En ég óska ykkur öllum góðs maskakvölds, og krýlin mín sem eru að maska, afi lumar vonandi á sælgæti fyrir þá sem banka uppá hjá honum.  Heart


Hafa skal það sem sannara reynist, segir Svanfríður Gísladóttir. Og það er mikið rétt, enda lýsi ég yfir trausti á henni og hennar málfluttningi.

Ég ætla að setja hér inn færslu frá vinkonu minni henni Svanfríði Gísladóttur.  Þar sem hún ræðír um ósk um inngöngu á Reykjalund.  Læknirinn sem hún talaði við, tilkynnti henni að hún væri orðin of gömul til að á inni.

Hann hefur svo reynt að draga í land og gera hana ótrúverðuga, sem er honum ekki til sóma.  Ég veit að Svanna fer ekki með rangt mál, er alveg sannfærð um það, og ég veit líka að hún er með stálminni.  Þannig að þessi læknir má blása eins og hann vill, en hann á líka að skammast sín.

 

En hér kemur innleggið hennar.

 

Meira um Reykjalund!

 

 Hafa skal það sem sannara reynist!

Í grein sinni í Morgunblaðinu í dag(3.febr.) hefur Magnús Jónasson yfirlæknir á Reykjalundi ekki rétt eftir mér.

Orðrétt skrifaði ég:

Vegna tíðra innlagna út af hjartabilunn, síðast nú um helgina með vatn í lungum,vonaðist ég til að komast enn einu sinni í endurhæfingu á hjartasviði ReykjalundI, ( tilv. líkur) .

Það er breyttur tónn hjá Magnúsi lækni í frétt Mbl. ( í dag sunnudag 3.febr. ) og nú bíð eg bara eftir að hringt verði í mig og og mér boðið pláss, því að ekki er lengur í gildi það aldurstakmark er hann tjáði mér að væri , eða að ég 62 ára væri of gömul til að komast í endurhæfingu á Reykjalundi.

Þegar Magnús læknir hringdi í mig í seinna skiptið  (þá búin að frétta af BLOGGINU mínu) var honum  mikið niður fyrir og viðhafði orð sem engum er sómi af, allra síst manni í hans stöðu.

Rétt er að ég var siðast á Reykjalundi fyrir ca. tveimur árum, en frá þeim tíma hef ég lagst í nokkur skipti inn á Landspítala hjartadeild síðast nú í október sl. er ég datt niður út á götu niður í bæ.

Með þessum orðum lýkur skrifum mínum um um þetta tiltekna mál og með góðum kveðjum til Magnúsar læknis.

Guð blessi Reykjalund og þá starfsemi er þar fer fram.


Bolludagur - verði ykkur að góðu landar mínir.

Til hamingju með bolludaginn þarna heima.  Hér er víst engar rjómabollur að fá, en ég get svo sem alltaf skroppið á kaffihús og fengið mér kakó með rjóma og rjómatertu.  Ég geri það ef til vill seinna í dag, dóttir mín er í prófi frá kl. 14.00 til 16.00 og þá kemur hún heim, og getur loksins slakað aðeins á.  Við ætlum að eiga tvo góða daga saman áður en ég fer heim. 

En ég sendi ykkur smá bollumynd frá Ísafirði, þetta er hún Rut Tryggvason, hún er heiðursborgari Ísafjarðar alveg frábær yndisleg manneskja, og kraftakona. Hún kom frá Danmörku og þau stofnuðu Gamla bakaríið saman maðurinn hennar og hún.  Og eftir að hann dó, hélt hún áfram rekstrinum og starfar þar enn.  Dugnaðarforkur og góður vinur minn.  Sonur hennar og tengdadóttir hafa að mestu tekið yfir reksturinn.  En hver heima vildi vera án Gamla bakaríisins. 

bolludagur

Myndina fékk ég lánaða úr Bæjarins besta.  Þetta eru einu bollurnar sem ég sé í dag.  Heart


Bloggfærslur 4. febrúar 2008

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband