29.2.2008 | 21:49
Smá ylur undir nóttina.
Smáylur svona fyrir nóttina.
Vinkona mín Christina Gobbe tók þessa mynd á Havai, en hún er heit og hlý. Hun er örugglega að kalla ALOAH!!! Skál.... held ég
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
29.2.2008 | 15:44
Það er veður á Ísafirði í dag.
Ég sit hér inni með stubbnum, en er hálfpartinn um og ó. Litla prinsessan á Suðureyri og minn ektamaki í Bolungarvík. Og það snjóar og snjóar.
bb.is | 29.02.2008 | 15:07Ekkert ferðaveður á norðanverðum Vestfjörðum
Ekkert ferðaveður er nú á norðanverðum Vestfjörðum samkvæmt upplýsingum frá vegagerðinni og má búast við snjóflóðahættu á vegum undir fjallshlíðum víða á svæðinu. Á sunnanverðum Vestfjörðum er snjóþekja og skafrenningur á milli Patreksfjarðar og Bíldudals og yfir Kleifaheiði. Þá er hálka á Barðaströnd og yfir Klettsháls.
Þessi mynd er úr BB, reyndar er miklu meiri snjór hér allstaðar. En svona er að búa hér, stundum alveg yndislegt, en svo kemur veður þar sem fjölskyldan væri best bara geymd innan fjögurra veggja.
Í raun og veru er veðrið svona, og mikill skafrenningur. Elli kemur ekki heim fyrr en í kvöld í fyrsta lagi, og þá er óvíst hversu mikill snjór hefur safnast á Óshlíðina. Þar er alltaf hætta á snjóðflóðum þegar svona viðrar. En vonandi komast allir mínir menn heilir heim.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
29.2.2008 | 13:33
RUV í rugli og róli.
Ég er búin að skemmta mér endalaust núna í morgunn. Í tilefni dagsins þá svissuðu þau yfir, þannig að þá sem venjulega er að finna á Rás 1, eru nú á Rás 2, og öfugt. Það er bara svo skemmtilegt að fylgjast með þeim, Óli Palli í Óskalögunum hennar Gerðar G. Bjarklind, og kom henni svo rækilega á óvart með að hringja í hana og bjóða henni óskalag.
Og svo er Svanhildur Jakobs, Ævar Kjartansson og tvö önnur á rás 2 með poppland. Þau eru frábær. Þið ættuð endilega að kíkja við og hlusta. Ég veit ekki hver átti þessa hugmynd en hún er aldeilis frábær.
Ævar sagði að vera þarna væri eins og að setjast upp í nýjan bíl sem maður þekkti ekkert til.
Takk Rúv fyrir þessi skemmtilegheit í tilefni af hlaupári. Þið ættuð ef til vill að gera meira af að stokka svona upp og fríska upp á allt.
Takk fyrir mig Enda eruð þið öll að standa ykkur þvílíkt vel, og greinilegt að þið hafið öll saman gaman af uppátækinu.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
29.2.2008 | 10:30
Afa saga.
Ég fékk í hendur spólu þar sem afi minn hafði samtal við útvarpsmann. Þeir voru samsveitungar, og þetta hafði sem sagt verið tekið upp. Ég fékk spólurnar í hendur og skrifaði upp frásagnirnar eins og afi sagði frá.
En hann var frábær sögumaður, og ég hafði heyrt allar þessar sögur mörgum sinnum þegar ég var lítil. Ég svaf inni hjá afa og ömmu þangað til ég var um það bil 13 ára, þegar ég fékk herbergi fyrir mig. Amma mín var mikið úti á fundum og allskonar samkomum. Svo þegar við afi lágum sitt í hvoru rúminu í rökkrinu, þá sagði ég; afi segðu mér frá. Eina sögu af því sem þú lentir í.
Þessi er ein af þeim, sögð með hans eigin orðum, gjörið svo vel.
Sagan um týnda lykilinn.
Þátttakendur eru: Karen Jóhannsdóttir systir Magnúsar. Ragnar Bárðarson brúarsmiður frá Ísafirði. Þegar þessir atburðir gerast búa á Ármúla Rósa Jóhannsdóttir, og Sigurður Hannesson. Karen sem var ógift var systir Rósu. Guðbjörg Jónsdóttir og Kristján Hannesson bróðir Sigurðar. Ragnar hefur sennilega leigt herbergi á Ármúla. Meðan þeir voru í brúarsmíðinni.
SP.Komdu með hana aftur, þessa sögu með hana Kæju, þegar þú varst í brúarvinnunni.
Já þegar ég var í Brúarvinnunni, við Selárbrúna, þá ætlaði ég að fá bílinn hjá honum Ragnari til að fara fram að Laugalandi um kvöldið, þetta er laugardagskvöld. Og þegar ég kem úr vinnunni þá er hann kominn inn að Ármúla, svo ég borða í hasti og hleyp svo fram að Ármúla, þegar ég kem heim á túnið, þá mæti ég Karen, þá kemur hún á móti mér og segir mér að nú séu ljótu vandræðin sem hafi komið fyrir sig, nú sé hún búin að tína lyklinum af herberginu sínu. Ég segi henni það að ég geti ekkert við það átt nema það komi fyrir mig að ég sjái, þá skuli ég reyna að athuga það. Svo höldum við nú á heim og ég fer til Ragnars inn í eldhús.. nei inn í borðstofuna, hann er inn í borðstofunni sem er inn af eldhúsinu, í gamla húsinu á Ármúla. Ég heilsa Ragnari og segi honum það að ég hafi ætlað að ná í hann og biðja hann um bíl fram að Laugalandi, en hann hafi verið kominn heim að Ármúla áður en ég hafi fengið svar. Hvurt hann vilji lána mér hann, hann Gummi ætli að keyra mig frameftir. Já já segir Ragnar það er velkomið. Að þið fáið bílinn. Svo er er eins og við manninn mælt maður, að ég veit ekki meira. Ég rakna við aftur eftir dálítinn tíma, þá er Ragnar að kalla; og segir Hvað er að þér maður ertu veikur Þá náttúrulega hrekk ég við og bið hann fyrirgefningar á þessu. Já þú heyrðir ekki neitt af því sem ég var að segja segir Ragnar Ég var að segja þér að þið þyrftuð að muna eftir að taka benzín á bílinn, þá varstu eins og ég veit ekki hvað, værir sofnaður eða liðið yfir þig, þú ansaðir ekki og starðir og gláptir út í loftið Já það var allt annað, ég var að fylgja fólkinu, sem var þarna með henni Karen sagði ég. Hvar ætli Kaja sé nú skal ég fara og vita hvort ég geti ekki fundið lykilinn. Kaja kemur undir eins og við af stað.
Sp. Ja há ?
Já já já hún er að segja við mig á leiðinni að hérna hafi hún verið að fylgja því niður eftir fólkinu þessu sem kom og það sé nú margbúið að fara þar attur og attur út túnið til þess að leita og niðrettir, þegar við komum dáldið út á flatirnar fyrir utan þá segir hún allt í einu; Hingað fór ég hérna snéri ég við því það gleymdist böggull heima á borði Sem hann átti þessi skipstjóri hvað hann nú heitir
Sp. Leifur.
Já. Nei segi ég þú snérir ekki við hérna, meðan við erum að tala þá höldum við á, svo bara beygi ég mig til hliðar og gríp svona niður í grasið og kem með lykilinn svona bara.
Sp. Upp úr grasinu?
Hún alveg fölnaði upp henni brá svo við.
Sp. Ég skal trúa því.
Þetta er alveg merkilegt skal ég segja þér.
Sp. ja há.
Ég ræð ekkert við þetta sjálfur.

Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Bloggfærslur 29. febrúar 2008
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 37
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 26
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar