Hið daglega veður.

Veðrið í dag var einskonar bómullar veður.  Það var eins og Ísafjörður væri vafinn inn í bómul.  En fyrst smá knúsimynd.

IMG_2883

Afaknús.

IMG_2884

Birtan er sérstök og allt einhvernveginn eins og dúnmjúkt.

IMG_2990

Og litirnir alveg frábærir.

IMG_2992

Flott ekki satt.

IMG_2993

Hrein mjöll og hreinar meyjar fegurðin sjálf.

IMG_2995

IMG_2996

Hvað er fallegra en lognkyrr pollurinn.

IMG_2998

Eða þegar kvöldar og sólin situr á fjallatoppum áður en hún legst til hvílu.

IMG_3000

Og þá er líka komin tími fyrir börnin til að læra.

IMG_2750

Og svo loks fjöllin fjörðurinn og bærinn minn.  Heart


Litli ljósmyndarinn.

Jamm við erum búnar að eyða stund úr degi hér heima ömgurnar, og eins og ég segi þá stenst ég endan veginn snúning við þeirri stuttu.  Núna áðan fékk hún myndavélina "lánaða" Og var svooooo stillt og góð.  Þegar ég ætlaði svo að taka mynd sjálf, var myndavélina hvergi að sjá, en mín vissi um hana hehehe... þegar ég svo skoðaði kubbinn voru komnar yfir 120 myndir.  'Eg ákvað að gefa ykkur sýnishorn af ljósmyndunarhæfileikum þessarar ungu dömu.  Þeir eru óvéfengjanlegir, eitthvað svo listsrænir. LoL

IMG_2881

Amman tekin í bakaríið.

IMG_2889

Hin ýmsu mótív.

IMG_2897

Best að prófa að taka sjálfsmynd.

IMG_2898

Jamm þetta gengur bara vel.

IMG_2917

Aha ég held að amma geri einhvernveginn svona.

IMG_2931

Einbeitningin er meira að segja í tánum.

IMG_2934

Já hér er skemmtileg fyrirmynd

IMG_2945

Best að skjóta á Brand líka.

IMG_2946

Púðarnir hennar ömmu eru spennandi.

IMG_2953

Ég er viss um að amma hefur aldrei sýnt húsið frá þessu sjónarhorni.

IMG_2980

Trommusettið hans Úlla Búlla Bí.

IMG_2981

Keramik listaverk af bestu gerð.

IMG_2983

Og það sem tilheyrir hehehehe...


Ætla íslendingar að taka Lúkasin á Friðriki Ómari ?

Friðrik Ómar hefur læst bloggi sínu.  Las þetta hjá einum bloggvini mínum http://blogger.blog.is/blog/blogger/ 

Friðrik Ómar skráir sig úr símaskránni

Friðrik Ómar Hjörleifsson verðandi Eurovisionfari hefur tekið númer sitt úr símaskránni. Friðrik var skráður með símanúmer og heimasíðu í skránni (tilvitnun lýkur)Ég fór síðan inn á Google og kannaði málið, og sá að þar var enginn umfjöllun um Friðrik Ómar og Evrovision 2008.  Bara eldri færslur Og sá þetta.

http://fridrikomar.blog.is/blog/fridrikomar/

 Það hefur margt verið rætt um ummæli sem Friðrik Ómar lét falla eftir sigurinn.  Ég tek það fram að ég sá það ekki, þar sem sjónvarpsupptakan náði ekki nema fram að hléi, af hverju sem það nú annars var.En ég sá umræðuna í Kastljósinu,  þar sagði Friðrik að ummæli framm úr sal hefðu sett sig úr jafnvægi, orð sem ekki voru hafandi eftir, jafnvel um móður hans hefðu gert það að verkum.  Hann sagði jafnframt að þessi framíköll hefðu ekki heyrst í sjónvarpinu, og því kæmi þetta illa út fyrir hann. Ég verð að viðurkenna að mér ofbýður stundum hvað íslendingar geta verið illskeyttir haldi þeir sig einhverstaðar geta grýtt menn í kaf, stundum af litlu tilefni.  Það er róið- og kynt undir illmælginni þangað til það verður að stórum suðupotti, besta dæmið hingað til er hundsmáli svokallað Lúkasarmál.  Vilja menn virkilega gera öðrum svona illt, jafnvel þó viðkomandi hafi ekki gert nokkrum manni neitt ?Eru menn ekki ennþá komnir út úr hellinum, með kylfurnar enn á lofti dragandi fólk á hárinu.  Hvar er siðferðið og kurteisin og já umburðarlyndið.  Ég geri mér grein fyrir að það er oft erfitt að sitja á toppnum.  Það vekur oft öfund þegar einhver gerir eitthvað sem vekur athygli, mönnum hættir til að tala illa um þann sem þannig kemst, en þeir sem taka undir eru bara ekkert betri.  Það fólk sem hvað hæst hefur látið ætti að biðja Friðrik Ómar, og aðstandendur vinningslagsins afsökunar og skammast sín síðan. 

 

 

 


Litill prakkari.

Sú litla er afskaplega uppfindingarsöm.  Amma hefur ekki roð við henni.  Í gær hafði hún fundið (Guð veit hvar) spúnabox frá Úlfi.  Ég gat tekið það af henni með lægni, svo varð ég vör við að hún fór inn í svefnherbergið og lokaði vendilega á eftir sér.  Hvað er nú hugsaði ég, en hélt áfram að horfa á kriminalinn í danska sjónvarpinu.  Eftir smástund kom hún fram aftur dálítið furðuleg á svipinn, svo ég spurði hvað varstu að gera?

Ekki neitt, sagði hún,

Ég fór inn og sá að hún hafði þá fundið annað spúnabox og hafði sett krókana í lakið sitt.Whistling

Hanna Sól, sagði ég.

Fyrrrirgefðu, fyrrrrirgefðu !!

Svo amma gat náð krókunum úr, og hún sættist að leggjast í holuna og horfa á eina mynd undir svefninn.  Hjúkket.  Svona krókar eru stórhættulegir í höndunum á svona litlum grísum. 

IMG_2875

Beðið eftir að fá kjúllann á diskinn sinn. 

IMG_2877

Það  er mugga í dag, og sést ekki í fjöllinn.  En prýðisveður samt sem áður. 

Ég er glöð að sjá að Jenný vinkona er komin heim aftur.  Hún er hetja sem fleiri ættu að taka sér til fyrir myndar. 

Ég vona svo að allir góðir vættir vaki yfir ykkur öllum í dag.  Og munið að brosa; ekki geyma bros dagsins þangað til á morgunn.  Ef þið eruð kærleiksrík til annara fáið þið það þúsundfalt til baka.


Bloggfærslur 27. febrúar 2008

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband