Still here.

Já eins og veðrið hefur verið gott hér í henni Reykjavík, þá hefur það verið frekar rysjótt heima, svo ekki var fært að fara heim í dag.  En við höfum samt átt góða daga.

Við fórum á mjög notalegan kínverskan matsölustað í hádeginu í gær.

Í reykjavík febrúar 2008 001

Hanna Sólin og pabbi hennar. 

Í reykjavík febrúar 2008 003

Heimsótti yndislegu barnabörnin mín, sem búa hér í Reykjavík, hér eru þau Júlíana og Daníel með litlu systur sína.

Í reykjavík febrúar 2008 005

Svo bauð Laufey vinkona mín og bloggvinur okkur í mat í kvöld og við áttum ferlega skemmtilegt spjall um gamla daga, Sara var eiginlega með okkur, því þarna eru mörg verk eftir hana, m.a. þessi mynd sem er fyrir ofan okkur.  Myndin greinilega af húsmóðurinni.

Við fengum mjög ljúffengan pönnurétt, og hittum hennar elskulega, hann er jafnvel ennþá flottari en hún hefur lýst honum.

Í reykjavík febrúar 2008 006

Sú litla hafði það líka rosalega nice eins og sjá má, þessi er fyrir mömmu hennar.

Í reykjavík febrúar 2008 007

Við erum sko flottastar, takk elsku Laufey mín fyrir frábært kvöld. Heart


Strandaglópar enn og aftur.

Ég er ennþá í góðu yfirlæti í henni Reykjavík, það er ófært um Ísafjarðardjúp, Steingrímsfjarðarheiði og Súðavíkurhlíðina.  En vonandi kemur betra veður fyrir vestan á morgun. 

En í vetrarhamnum hér er ágætt að ylja sér við vorið í Vín.

2008 heimferð frá Vín. febr. 010

Jasmín brosir glaðlega við sólinni og vegfarendum.

2008 heimferð frá Vín. febr. 026

Sennilega er þó sælgætið frá Belgíu sætara, en þetta er bara til að horfa á en ekki eta, því þá verða línurnar ekki í lagi. 

2008 heimferð frá Vín. febr. 027

Og á tankgólfinu eru stjörnurnar, hér er Bill Wyman.

2008 heimferð frá Vín. febr. 028

Toto hefur líka átt sín spor hér.

2008 heimferð frá Vín. febr. 029

Og norsku drengirnir í Aha.

2008 heimferð frá Vín. febr. 035

Hér erum við í lyftunni á leið í ferðalagið okkar, þetta er Trölli sem gægist þarna í töskunni. Hann er dálítið dapur á svipinn.


Bloggfærslur 12. febrúar 2008

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband