7.12.2008 | 17:24
Myndir úr kúlunni.
Þá eru það nokkrar myndir. Við erum tvær heima Ásthildur og Ásthildur, Hanna Sól er í jólabaksti með Tinnu frænku sinni, afi á lúðrarsveitaræfingu og Úlfur í afmæli hjá Daníel Erni, en hann er 9 ára í dag, ömmu strákurinn.
Afmælisbarnið kíkti við hjá ömmu í dag, og ég bakaði vöfflur í tilefni dagsins. Innilega til hamingju með afmælið elsku Daníel minn
Svona var veðrið í gær, fallegt eins og venjulega.
Doddi búin að setja upp jólaskreytingarnar á Engi, þessi er fyrir Magný og Rannveigu.
Svo þarf að ditta að jólaseríunum á þessum tíma og Hanna Sól er dugleg við það að hjálpa afa.
En sú litla hehehe.. afi klæddi hana í sokkabuxur og henni er svo sem alveg sama hvernig þær snúa.
Það þarf líka að hengja upp seríurnar, þegar búið er að laga þær og þá er nú gott að hafa lítinn aðstoðarmann.
Jamm þetta er spennandi
Stóra systir þarf nú líka að prófa...
Æ það verður einhvernveginn allt svo miklu skemmtilegra með svona kríli sér við hlið, í jólaundirbúningnum.
Sæta stelpan mín.
Og litli prakkarinn.
Þetta kemur vel út, satt að segja.
Einhvernveginn náðu þær í skæri, og Hanna Sól ákvað að gefa litlu systur jólaklippingu ég vona að mamma hennar sjái þetta ekki. En Matta lagar þetta örugglega fyrir mig áður en hún kemur.
Eigið góðan dag elskurnar mínar.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
7.12.2008 | 04:01
Mín prívat og persónulega hugleiðing.
Ég er örugglega skrýtin skrúfa. Og hugsa ef til vill öðruvísi en flestir. Það verður þá bara að hafa það.
Ég hef verið hugsandi yfir flokknum mínum nú í nokkurn tíma. Þegar ég gekk til liðs við Frjálslynda flokkinn, sem þá var bara örflokkur, eins og hann er reyndar enn í dag, þá voru það hugsjónirnar og eldmóður forystumannanna, sem ég heillaðist af, og síðan málefnasamningurinn, sem ég átti reyndar þátt í að semja með félögum mínum. Þetta voru góðir og skemmtilegir tímar, með góðu fólki, sem var fyrst og fremst af hugsjón í baráttu gegn óréttlátu fiskveiðistjórnunarkerfi, og að benda á yfirgang ráðamanna, gagnvart þjóðinni, ráðstjórn kallaði Sverrir Hermannsson stjórnina, þegar hann ræddi um hana. Það sem rætt var um allt frá því að flokkurinn var stofnaður, hefur komið fram, hrakspárnar, um froðuféð, svo ég vitni aftur í gömlu kempuna.
Málefnin eru góð, og ég fullyrði að hvergi eru þau betri en hjá okkur. Það hefur bara aldrei komist á framfæri, vegna þess að fjölmiðlar, hafa þaggað talsmenn flokksins og forystu í hel, eins og þeir hafa getað, nema þegar eitthvað hefur komið flokknum illa, þá hefur verið blásið upp, allt sem miður fer, og gert grín að, og menn settir í versta ljós sem hægt er.
Þetta hefur gengið svona alltaf. En meðan við vorum, þessi við, sem stofnuðum flokkinn, og vorum samtaka og sammála um helstu hluti, þá gerði þetta ekki mikið til, því við gátum varist og staðið bak í bak.
Mér finnst skrýtið að flokkurinn mælist ekki með meira fylgi í skoðanakönnunum, en þrjúprósent, miðað við málefnin, og miðað við að flokkurinn hefur hvergi komið að spillingunni.
Ég hallast að því, að það sé mest vegna illinda, úrtölumanna, og óheilinda.
Ég ásamt þremur öðrum úr flokknum, skrifaði grein sem birtist í Morgunblaðinu og fleiri blöðum, sem við kölluðum; Aðför að grunngildum Frjálslyndaflokksins.
Ég hef legið undir feldi nú um tíma, og satt að segja ekki almennilega vitað, hvað ég ætti að gera, eða hvernig ég ætti að snúa mér.
Málið er að ég þekki marga í forystunni mjög vel, Guðjón Arnar er fermingarbróðir minn, og hann er gegnheill, þó sumum finnist hann ekki koma nógu vel fyrir, eða ekki nógu afgerandi persónuleiki, Þá fer þar traustur maður. Magnús Reynir framkvæmdastjóri flokksins er líka fermingarbróðir minn, og ágætis drengur, hann vinnur af hugsjón. Kristni H. Gunnarssyni hef ég kynnst eftir að hann byrjaði að starfa með flokknum, afskaplega fylgin sér, og stendur við orð sín.
Þessir menn sem ég tilnefni hér sérstaklega, hafa mikið legið undir ámæli frá sumum í flokknum, bæði opinberlega og í bréfaskriftum. Menn vilja skipta um formann, skipta út Kristni H. og fá annan framkvæmdastjóra.
Og ég hef komist að niðurstöðu. Ég ætla mér að fylgja mínum mönnum, ef skipið fer niður, þá fer ég með því. Ég vil bara fá gamla góða kjarnann til baka. Fyrir mér skiptir ekki máli hvort flokkurinn stækkar meira, eða við fáum fleiri til liðs við okkur, ef það þýðir að málefni flokksins verða að víkja, fyrir nýjum áherslum, þá verð ég ekki með.
Það getur vel verið að þessi ákvörðun mín sé alröng, og vitlaus. En þá verður bara að hafa það. Frjálslyndiflokkurinn er fyrst og fremst dreyfbýlisflokkur. Hann er flokkur sjómanna, bænda, aldraðra og öryrkja. Hann er flokkur mannúðar, og sjálfstæði einstaklingsins. Frelsi til orða og athafna. Það gæti farið svo að flokkurinn yrði bara pínulítill örflokkur vestfirðinga. Þá verður bara að hafa það. En sú rödd sem varð til þess að flokkurinn var stofnaður, má ekki þagna.
Sú rödd þarf að hljóma á alþingi Íslendinga, í nýju Íslandi. Sem ég vona að verði. Það er bara þannig, að þó fólk vilji breytingar, ný sjónarmið og nýjar áherslur, þá gengur erfiðlega að koma þeim til skila. Þrautarganga Frjálslynda flokksins er dæmi um það. Allt það góða sem lagt var upp með, fær ekki að heyrast. Flokkurinn hefur verið kallaður allskona ónöfnum, og stundum bara út af einni fyrirsögn í blaði, en líka út af afstöðu fólks, sem ekki ber samhljóm kjarnans í fyrirrúmi.
Ég vil óska Röddum fólksins alls hins besta, og svo Nýjum tímum, í öllu sem þau ætla að gera. Það er bara svolítil viðvörun frá gamalli norn. Gætið ykkar á tækifærissinnunum, sem alltaf koma með fagurgala og sjá tækifæri í að koma sjálfum sér á framfæri. Fylgist allavega vel með því hverja þið veljið til þess að standa í forsvari. Það virðist nefnilega vera svo, að þarna úti sé fullt af fólki, sem þráir að komast að bara til að komast að. Verið því varkár hverja þið veljið ykkur til að fara áfram með málin. Það er svo auðvelt, sérstaklega á svona tímum, að missa sig, í að treysta fólki, sem er ekkert annað en framlenging af spillingaröflunum, úlfar í sauðagæru, sem tala fagurlega, en hugsa flátt.
Ég tek það fram, að ég er hér að tala fyrir mig sjálfa og engann annan. Ég veit ekkert hvað verður um flokkinn minn,hvort honum tekst að komast út úr erfiðleikunum, og láta að sér kveða, eða hvort hann kvarnast niður í frumeindir.
Málið er nefnilega að um leið og við köllum á réttlæti, og að rödd almennings heyrist, þá hlustum við ekki á fólkið sem reynir að tala fyrir fólkið. Menn kynna sér ekki, hvað viðkomandi hefur fram að færa, hvaða mál eru borin fram á alþingi.
Verður eitthvað meira hlustað á það fólk sem nú vill koma fram fyrir hönd fólksins, eða verður fjölmiðlum beitt, eins og nú til að þagga þær raddir niður, gera þær tortryggilegar.
Ég sé ekki betur en öllu sé tjaldað til nú þegar, Þorgerður Katrín og Geir Haarde koma í stjörnuviðtölum á Rúv í hverjum þættinum af öðrum, meira að segja í popplandi. Svo það fari nú ekki á milli mála, hversu klár þau eru og frábær, og vel meinandi og flott.
Það er í raun og veru hlægilegt að það skuli vera til fólk sem heldur að Rúv sé hlutlaus stofnun, eins og henni hefur verið beitt í þágu ríkjandi stjórnmálaafla.
Ég man svo langt aftur, að sjálfstæðismenn voru arfavitlausir yfir því að kommúnistar væru að hreiðra um sig í öllum stöðum í ríkisútvarpinu, það var á tímum Jóns Múla og fleiri. Þá strax gerðu þeir sér grein fyrir hvernig hægt væti að nota þennan miðil til að hafa áhrif. Er einhver svo bláeygður að hann haldi að þeir hafi ekki sjálfir notað þau meðul, sem þeir voru vissir um að aðrir beittu?
Það er talað um að pólitík sé rotinn, og allir séu rotnir inn að beini sem stunda hana. En það skyldi þó aldrei vera að okkur sjálfum væri um að kenna. Að við viljum ekki að nýjar raddir óma. Viljum ekki fá ferska vinda inn, heldur bara sömu gömlu flokkana; við vitum þó hvað við höfum, segir fólk. Þó þeir séu ömurlegir, þá tekur örugglega ekkert betra við!
Hverslags eiginlega afstaða er þetta?. Það er von að siðferðið sé ekki betra hjá okkur en er í dag.
Eitt er alveg víst, að meðan við sjálf breytum ekki hugarfarinu, þá breytist heldur ekkert það sem í kring um okkur er.
Við þurfum að hafa kjark til að breyta, hugsa öðruvísi, og gefa nýjum hugmyndum gaum. Þora að taka afstöðu til málefna, eins og þau blasa við okkur, en ekki út frá einhverjum óskilgreindum tilvísunum sem við höfum fengið, eða kröfum frá fólki sem vill halda völdum, sem auðvitað reyna allt til að fá að vera lengur í hlýjunni.
Nei ég hef sagt það áður og segi það enn, við pöpullinn getum ráðið. Valdið er okkar, ef við viljum nota það. Það verður ekki með því að bara kjósa alltaf það sama aftur og aftur, af því að ekkert betra býðst Eða af því að Ég gæti huganlega grætt á því, eða bara af því bara
Lýðræðið er brothætt, og til að það virki, þarf að taka þátt í því, einmitt eins og fólk er að gera núna.
Það verður hver og einn að velja sína leið. Í augnablikinu hef ég valið mína leið, og á meðan ég veit að þar eru hugsjónir hafðar í fyrirrúmi mun ég fylgja þeim, en um leið og ég sé, að eitthvað annað er í gangi, þá er ég farin eitthvert annað.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (34)
Bloggfærslur 7. desember 2008
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 37
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 26
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar