Palli einn í heiminum.

Mér líður núna eins og Palla sem var einn í heiminum.  Ekki hægt að komast inn á bloggið nema bakdyrameginn.  Svo er maður að spá, er þetta bilun, eða eru þeir að loka búllunni, er umræðan orðin of óþægileg þrátt fyrir að ætla að henda nafnleysingjunum út? Happy Nei segi bara svona. 

En ég ætlaði að minnast á hugmyndina hennar Lilju Guðrúnar, mér finnst hún rosalega flott sjá hér http://lillagud.blog.is/blog/lillagud/entry/756330/#comment2055611

Við ættum í rauninni að gefa okkur fimm mínútur í þögn rétt um kl. tólf á miðnætti á gamlársdag. Hugsið ykkur hver áhrifaríkt það yrði ef allt hljóðnaði niður fimm mínútum fyrir tólf og svo byrjaði fjörið aftur fimm mínútum yfir.  Hugsið ykkur hvað þetta yrði sterk aðgerð.  Hvað fólk myndi hugsa, þegja saman, líta hvort á annað og finna nálægðina við hvort annað og almættið, samtakamátturinn yrði algjör.  Hverjum nema frábærri leikhúsmanneskju gæti dottið svona í hug.  Mín kæra ég var að hlusta á hann Jón Viðar í dag ræða um pólítískt leikhús, nú skora ég á þig að hafa samband við karlinn og koma af stað verkefni, pólitísku leikhúsi sem hefði það verkefni að knýja á um vakningu meðal fólksins, með rammpólitísku leikhúsi.  Þetta var gert i Rússlandi, og örugglega mjög víða, þar sem kúgun og alræðisstjórnir fara með völdin.  Þá er það hlutverk menntamanna, leikara og listamanna að koma fram og vekja þjóðir til umhugsunar. 

post-6389-1132924550


Svo líða dagar....

Jólin að baki og senn koma áramótin.  Litlu prakkararnir mínir eru farnir til ömmu og afa á Hellu.  Það ríkir því kyrrð og friður í húsinu.  Þeirra er reyndar sárt saknað af okkur öllum.

IMG_4480

Það var mikið dansað hér.

IMG_4483

Stóra systir og sú litla dansa af hjartans list og stóri strákurinn okkar spilar á ukelele, sem hann fékk í skóinn, fyrir að vera aðstoðarmaður jólasveinsins.

IMG_4489

Allir dansa með.

IMG_4520

Dansað hátt og lágt.

IMG_4563

Og enn er dansað...

IMG_4553

Með stæl ....

IMG_4559

Og tilþrifum..

IMG_4595

Svo er hægt að fara út að ná sér í ís.

IMG_4596

Hér eru þau frændkinin að leika sér með púsl sem Júlli gerði úr steinum.

IMG_4598

Þau eru bæði mjög áhugasöm.

IMG_4601

Notalegheit í eldhúsinu.

IMG_4616

Og ærsl og skemmtilegheit.

IMG_4634

hér er líka spilað vestfirska kvótabraskspilið.

IMG_4638

sumir vilja skreppa í garðskálann.

IMG_4661

það er líka rosalega gaman að púsla.

IMG_4664

allt púsl komið á sinn stað!!!

IMG_4672

Allt klárt til að fara í bílinn og keyra á Hellu.

IMG_4679

Við vorum svo boðin í alþjóðlegt súpukvöld hjá þýskum vinum okkar. 

2008.12.28. jóladagur.boð hjá Abrecht044

Virkilega skemmtilegt jólaboð, frá öllum heimshornum, eða frá Þýskalandi til El Salvador.

2008.12.28. jóladagur.boð hjá Abrecht045

Súpan var alveg einstaklega góð.

2008.12.28. jóladagur.boð hjá Abrecht050

Hér má sjá Leon Abrecht og mömmu hans.  Leon hefur ákveðið að reyna að fá vinnu á ísafirði í sumar, hann þarf að vinna einhverskonar samfélagsþjónustu í skólanum sínum.   Ég vona að Heilsugæslustöðin á Ísafirði taki honum vel.  Leon er duglegur drengur. 

2008.12.28. jóladagur.boð hjá Abrecht054

Hér var líka Alejandra mín.

2008.12.28. jóladagur.boð hjá Abrecht056

Úlfur og Ísaac Logi.

2008.12.28. jóladagur.boð hjá Abrecht064

Það var spilað.

2008.12.28. jóladagur.boð hjá Abrecht072

Knúsast.

2008.12.28. jóladagur.boð hjá Abrecht073

og kitlað.

2008.12.28. jóladagur.boð hjá Abrecht077

Hér er verið að spila Hornstrandaspilið, heimagert af okkar þýsku íslandsvinum.  teiknað á blað og málaðir litlir fjörusteinar sem taflmenn.

IMG_4603

Svo er það veðrið.  Ég get alveg sagt ykkur það að ég hef ekki gert neitt við þessar myndir.

IMG_4631

Þó veðrið hafi verið rysjótt undanfarið, þá hefur það líka verið fallegt.

IMG_4632

Með þessum fallegu myndum sendi ég ykkur kveðjur inn í daginn. Heart 


Bloggfærslur 29. desember 2008

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband