Jólin eru hátíð barnanna.

Jólin hafa verið yndæl hjá mér, ég hef notið þess að hafa dóttur mína hjá okkur, og tengdason.  Stelpurnar hafa líka verið afskaplega ánægðar að hafa pabba og mömmu hjá sér.  Þær fara svo með þeim suður og halda áramótin á Hellu.  En koma svo aftur eftir áramótin, þá hefst hið daglega líf aftur.

IMG_4335

Þetta er ekki Hamraborgin, en ef til vill fimm litlir apar..... sem hún er að syngja.

IMG_4341

Það er allt svo spennandi og tíminn lengi að líða á aðfangadag.

IMG_4342

Úlfur pakkar inn gjöfinni fyrir ömmu.

IMG_4344

Og loksins kemur að því að það er farið í að opna pakkana.

IMG_4348

Og allir eru góðir hver við annan.

IMG_4350

Prinsessan var ánægð með kjólinn sem mamma keypti á hana.

IMG_4353

Það var reyndar litla skottið líka, enda fékk hún alveg eins.

IMG_4361

Og svo er það gamla hefðin hér að hafa tómatsúpu í forrétt.  Þetta byrjaði þegar við vorum ung og höfðum lítið milli handanna, þá var alltaf tómatsúpa með cream crackers á undan steikinni, til að spara.  En svo komst ég að því seinna, að börnunum mínum fannst ekki vera jól nema fá þessa súpu á aðfangadag, og núna var það Úlfur sem bað sérstaklega um hana.  Svona geta einfaldir hlutir orðið að hefð í einni fjölskyldu.

IMG_4368

Úlfur las utan á pakkana og Hanna Sól bar þá til viðkomandi, flestir voru reyndar til þeirra, en allt gekk þetta snurðulaust fyrir sig.

IMG_4369

Þetta er hápunktur jólanna hjá börnunum í þessu húsi allavega.

IMG_4371

Vá hver gægist þarna út úr pakkanum. Lala!!!

IMG_4381

Ég fékk þennan flotta krabba.

IMG_4404

Þetta er ævintýrið um Loðfílana, saga sem amma samdi fyrir börnin í kúlunni.

IMG_4415

En það var líka gaman að púsla saman Lababæ....

IMG_4425

Og gæla við dýrin.

IMG_4431

Eða bera fram kaffi.

En svo var skemmt sér frameftir kvöldi, þegar litlu stelpurnar voru sofnaðar var dregið fram Vestfirska kvótasvindlið og spilað.  Skemmtilegt spil.

IMG_4459 

Morgunin eftir var bara notalegur, hér eru tvær slæðukonur að spjalla LoL

IMG_4463

Já vestfirska kvótabraskið er staðreynd.  LoL Gleðilega rest elskuleg mín öll. Heart

 


Bloggfærslur 26. desember 2008

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband