Pabbi kemur í heimsókn, og Úlfur eldar matinn.

Pabbi kom í dag.  og það voru fagnaðarfundir.  Hanna Sól var lasin svo hún fór ekki á leikskólann, og  Ásthildur litla var kvefuð, svo hún fór ekki heldur.  Það var nóg að gera með tvær uppátektarsamar telpur hjá ömmu sín í dag.  En það var bara gaman.

IMG_3386

Það voru fagnaðarfundir, full taska af dóti VEIII!

IMG_3388

Margt að skoða og muna eftir.

IMG_3389

Sú minnsta lét sitt ekki eftir liggja,  mjög áhugasöm hehehehehe...

IMG_3394

Og svo var voða notalegt að gantast við pabba sinn.

IMG_3397

Ójá !!!

En Úlfur eldaði matinn í kvöld, og það var TACO.  Hann bæði eldaði og lagði á borðið.

IMG_3401

SKreytti meira að segja borðið mjög flott.  Hann er rosalega duglegur.

IMG_3406

Og maturinn var mjög bragðgóður.

IMG_3408

Gott að eiga svona góðan kokk á heimilinu. 

En á morgun legg ég í hann, mjög snemma í fyrramálið.  Ég bið ykkur að gleyma mér ekki.  Knús á ykkur öll sömul, og góða nótt Heart


Erum við menn eða mýs ?

Það er von að fólki sé ofboðið, og er þó búið að vera langlundargeð í landanum, alveg með eindæmum.  Nú eru allir búnir að gleyma hver var dómsmálaráðherra í olíusamráðinu, og hvernig það mál allt saman gekk fyrir sig, eiginmaður ráðherrans spilaði frítt.  Núna er það menntamálaráðherrann sem vill SAMÚÐ fólksins í landinu, af því að hún hafi tapað svo miklu, og vill ekki liggja undir þessum grun.  Hversu lengi ætlum við eiginlega að þegja og sleikja valdið ?  Mér er spurn?  Í öllum öðrum vestrænum ríkjum væri ríkisstjórnin í heilu lagi búin að segja af sér, hefði verið þvinguð til þess.  En hér ónei, þeir ætla að laga til, og AXLA ÁBYRGÐ.  Það er bara hlægilegt að þeir sem eiga sökina þó ekki sé nema að hluta til, telji sig hafa það traust sem þarf til að laga til.

Er ekki komin tími til að við fylkjum liði og mótmælum öll sem eitt, litli verkamaðurinn, litli símamaðurinn, litli bankamaðurinn, og litli Jón og Gunna.  Við sitjum öll í sömu súpunni, en viljum ekki láta veiða okkur upp, því þá þurfum við að kalla á hjálp. Devil Og það er svo hallærislegt ekki satt ?  Þá er nú betra að muldara bara einn út í horni, eða æsa sig á kaffistofunni, eða skrifa reiðilestur á bloggið, en að mæta á staðinn og sýna samstöðu í verki....................... nei það er of kalt, of langt, of mikið vesen..... En hver er ég að dæma, ég hef ekki komist til að mótmæla, vonandi tekst mér að komst næsta laugardag, og þá vil ég sjá ekki bara nokkur þúsun, heldur gott meira en það.  Ég er rosalega ánægð með það fólk sem hefur haft frumkvæði að mótmælunum hingað til, þau eiga hrós skilið.  Við hin sem bara þurfum að mæta og láta sjá okkur, eigum tvímælalaust að gera það, hér er nefnilega okkar eigin framtíð í húfi, hvorki meira né minna.  Ef við látum þetta fólk komast upp með ósóman núna, þá verður endanlega ekki aftur snúið.  Því þá erum við búin að sýna að við erum ekki víkingar heldur þrælarnir sem þeir tóku með sér.  Þeir eru þá allir dauðir og kakkalakkarnir einir eftir. 


mbl.is Lykilmenn skulduðu 80 milljarða króna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 4. nóvember 2008

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband