Munið Fundinn i dag kl. þrjú. Munið að klæða ykkur vel. Það er okkar lýðræðislegi réttur að mótmæla ástandi sem við höfum lent í flest okkar að ósekju.

Ég er löt þessa dagana við bloggið.  Það er svo margt sem þarf að gera, og á þessum tíma verð ég rosalega orkulaus.  Nú er snjór yfir öllu hér. 

IMG_3811

Þessar voru teknar fyrir augnabliki síðan.

IMG_3812

Það birtir ekki meira en þetta.  En það er samt eitthvað notalegt við bæði snjóinn og birtuna, sennilega bara vani.  En það er samt einhvernveginn alltaf hlýrra þegar það liggur snjór yfir öllu.

IMG_3794

Litli Sigurjón Dagur kom í heimsókn í fyrradag með pabba sínum.

IMG_3795

Í dag er hann íþróttaálfur, algjör. 

IMG_3797

Og Ásthildur er á kossastigi í dag hehehe Heart Hún kissir fóstrurnar á leikskólanum, krakkana líka og alla hér heima. 

IMG_3800

Í gær var svo sett saman piparkökuhús.  Nei ég bakaði ekki, nú er hægt að fá þau tilsniðin í Samkaup.

IMG_3801

Hanna Sól og Úlfur límdu húsið saman með bræddum flórsykri.

IMG_3802

Meðan sumir bjuggu um sig og lögðust í tröppuna.

IMG_3804

Nú er bara eftir að skreyta.

IMG_3805

Og svo má skreyta hjörtu.

IMG_3806

Það er alveg rosalega spennandi.

IMG_3807

Jamm það er gert af stakri alúð LoL

IMG_3809

Svo á ég rosalega góðan nágranna.  Það var kominn svo mikill snjór í uppganginn hjá mér, og drengurinn bauðst til að moka fyrir mig líka.  Það var frábært.

IMG_3810

Hann á sjálfur þessa fínu græju.  Takk Hilmar minnHeart

IMG_3814

En það er nóg að gera hjá mér núna, Evíta komin í heimsókn,  Sóley Ebba er hér líka, hún og Úlfur eru að fara á TaiKvonDo æfingu á eftir, þá er beltapróf, og vonandi nær Úlfur gulabeltinu.  Hann er mjög spenntur og er aðstrauja búninginn sinn.

IMG_3815

Og skotturnar eru að leika sér í rólegheitum eins og er.  Veit samt að það breytist fljótlegaLoL

En svo þetta;

Munið fundinn í dag.  Munið að klæða ykkur vel, og vonandi mæta helmingi fleiri í dag en síðast.  Og innilega takk fyrir að berjast fyrir okkur hin líka, sem sitjum heima af ýmsum orsökum.  En ég og miklu fleiri eru með ykkur í anda.  Vonandi verður fundinum útvarpað.  Það er gott fyrir sálina að geta tekið þátt.

Knús á ykkur öll og góða helgi. Heart

 


Bloggfærslur 29. nóvember 2008

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband