Nei takk forseti ASÍ.

Stokka upp?  jamm ég er ansi hrædd um að slíkt sé orðið of seint núna.  Ef þau hefði gert það strax.  En það er forvitnilegt að vita hvað þessi verkalýðsforingi er að hugsa.  Hann er greinilega að vernda forystu Samfylkingarinnar, er hann ekki einn af þeim sem vill troða okkur inn í ESB með forgangshraði.  Nei þessum manni treysti ég ekki, allavega til að vera með heilindi.  Það er plott í gangi og ljótt að nota sér aðstöðu sína innan verkalýðshreyfingarinnar til að bjarga rassgötum.  Nei stjórnin á að fara frá.  Það má stofna utanþingsstjórn meðan flokkarnir útkjá sín mál, og gera klárt í kosningar.  En þetta dót sem nú ræður er gjörspillt og nýtur ekki trausts meirihluta þjóðarinnar. Eða heldur forsetinn að Ingibjörg Sólrún og Geir Haarde víki úr ríkisstjórninni, sem væri eina sáttaleiðin.  Nei læt mig ekki dreyma um það.

Þess vegna á að setja á að ráða sérfræðinga til að taka að sér fyrirtækið Ísland, og stýra því yfir verstu drullupollana.  Ekkert annað er ásættanlegt og hana nú.


mbl.is Kosningar eru hættuspil
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Smámyndir.

Hér er komin norðanhríð og snjókoma.  Vá hugsa ég, það verður ekki auðvelt að komast með börnin á Suðureyri á morgun, en við sjáum nú til.  Ég ætla að setja inn nokkrar myndir fyrir svefninn.

IMG_3776

Systur að búa sig undir leikskólann í morgun.

IMG_3778

Veðrið var fallegt í dag, en maður hugsaði um það sem koma skyldi, spáin er ekki góð.

IMG_3779

En fjöllin mín standa samt alltaf fyrir sínu.

IMG_3784

Hér er verið að vinna í SIMS, í kreppunni er gaman að leika sér, í SIMS er hægt að kaupa allt og innrétta á flottasta máta.

IMG_3786

Í SIMS má láta drauminn rætast LoL En rétt eins og útrásin, þá hverfur þetta allt um leið og þú slekkur á tölvunni.

IMG_3787

En knúsírófan mín, horfir á Lababæ eða bababa... bababa eru múmínálfarnir.

IMG_3790

Ef maður er svangur fyrir háttatíma, er bara gott að fá jógúrt, ekki verra að hún sé frá Húsavík heilnæm og góð, og ekki innflutt, sem betur fer.

IMG_3791

Ég er búin að vera að dást að þessari elsku núna um langa hríð, sjáið bara hún er gul, en ein rósin er rauð.  Er þetta ekki undur náttúrunnar ? Það er bara ein rós í pottinum.

IMG_3793

Svo leit ég út elskurnar áður en ég fór að halla mér, og þetta blasti við mér, norðan áhlaup með snjókomu. 

En ég segi góða nótt um leið og ég hjúfra mig niðru í rúmið mitt. Heart

 


Bloggfærslur 27. nóvember 2008

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband