Austurvöllur á morgun - burt með spillingarliðið.

Lýðræðið er brothætt.  Það getur einungis virkað ef hver og einn tekur þátt í því, en skorast ekki undan, annað hvort af hræðslu eða kæruleysi.  Ég vil vísa hér í færslu bloggvinkonu minnar og baráttukonu Katrínar Snæhólm í gær, en þessi færsla hefur verið í kollinum á mér síðan, og ég er sífellt að átta mig á því hve í raun og veru lýðræðið er hverfult, þegar lýðurinn er jafn kærulaus og hann virðist vera.  http://katrinsnaeholm.blog.is/blog/katrinsnaeholm/entry/709991/

Ég myndi sko taka mér stöðu með ykkur ef ég væri ekki hrædd um að fá sekt á bílinn minn.....

Hvernig getur fólk haldið að eitthvað jafn dýrmætt og sjálfstæði okkar og afkoma geti verið sett í annað eða þriðja sæti.  Hvernig heldur fólk að það sé hægt að geyma lýðræðið upp í skáp, eða skúffu, milli kosninga, og örugglega kjósa alltaf sama flokkinn, hvað sem á dynur.  Lýðræði snýst um að við lýðurinn verndum rétt okkar til að taka þátt, hafa áhrif og ráða samfélaginu.  Það gerist ekki með því að hafa ekki tíma til að sinna þeim skyldum sínum að hafa áhrif á samfélagið, til dæmis með því að mótmæla, þegar svo mikið er í húfi eins og nú er.  Hvernig er hægt að vera á staðnum, en skorast undan og flýta sér framhjá, með þeim orðum sem hér eru tíunduð ?  Hversu dýrmætt er lýðræðið því fólki sem þannig hagar sér ? 3000 krónu ef til vill, eða minna ? hvað kostar stöðumælasekt ?

Nei ágætu íslendingar, lýðræði getur aldrei orðið virkara en við sjálf.  Um leið og við slökum á, og látum bara ráðast, þá er það ekki til staðar lengur.  Þá höfum við afsalað okkur réttinum til að taka þátt.  Og þá er fjandinn laus.  Eins og vel sést á ástandinu núna. 

Það er verið að hneykslast á stjórnvöldum fyrir að hlusta ekki á lýðinn, fyrir að sitja í fílabeinsturni og hvorki skilja, né láta hafa áhrif á sig hvað nokkrir einstaklingar eru að druslast við að gera á Austurvelli. 

En því miður er þetta mikið til okkur sjálfum að kenna, við höfum skapað þessi skrýmsli, með einmitt svona kæruleysi.  Það er jafngamal mannkyninu sú vitneskja að "Vald spillir"  svo ekki sé talað um langvarandi vald, og þegar svo er komið að ákveðnar manneskjur álíta sem svo að þær bókstaflega "EIGI" landið og miðin, og að þeir sem þar dvelja séu líka þeirra eign og þeir einir eigi að ráða og ráðskasta með allt og alla. 

Meðan Róm brennur, þá hleypur maður ekki framhjá af því að gjaldið er að renna út í mælinum.  Eða af því að maður er að missa af fundi, eða lokun skrifstofu.  Nei maður stansar og tekur þátt, réttir hendurnar að fólkinu sem þar stendur og tekur þátt.  Gerir stjórnvöldum grein fyrir, að það er í raun og veru hingað og ekki lengra sem við hleypum þeim.  Maður tekur undir réttlát skilaboð. 

Í litlu gulu hænunni sögðu allir EKki ég, litla gula hænan varð að gera allt sjálf, og þegar komið var að því að njóta þess sem gert var, þá vildu allir vera með.  Þessi litla saga er sögð í barnaskóla, og er dæmisaga um það hvernig fer, þegar enginn vill taka þátt, en bara njóta ávaxtanna, þegar allt er tilbúið.  Alveg eins og Nýju fötinn keisarans er dæmisaga um hvernig valdið getur gert fólk að fíflum, tekið á hégómagirninni, græðginni og kæruleysinu, þangað til lítið saklaust barn kallar sannleikann upp, og þátttakendur standa uppi allir naktir í köldum veruleika.  Maðurinn er nakinn! 

Í dag standa ýmsir framámenn í þjóðfélaginu naktir, þeir hafa farið með hálfsannleika, þagað og jafnvel logið að okkur.  Fyrir þeirra kæruleysi eða jafnvel í eigin þágu, sett þjóðfélagið á hausinn, í orðsins fyllstu merkingu.  Og þegar fólkið vill standa upp og mótmæla, þá finnst sumum bara allt í lagi að sveigja fram hjá, af því að .... sumir sitja heima, og hugsa að það séu nógu margir þarna niðurfrá, svo ég þarf ekki að mæta.  Aðrir "hafa svo mikið að annað að gera" að þeir "mega ekki vera að þessu".  Ert þú einn af þeim ?

Ef ekki, þá er enginn afsökun fyrir því að klæða þig ekki upp, og mæta niður í bæ, til að láta virkilega sjá að þér er ekki sama um lýðræðið í landinu.  Að þú ef þú ert óánægður, sýnir það í verki, með því að taka þátt með félögum þínum sem eru á sama báti, en hafa dregið vagninn hingað til. 

Það má segja að við úti á landi mættum gera meira til að taka þátt.  Málið er að á flestum stöðum úti á landsbyggðinni höfum við mátt þola yfirgang og rányrkju af hendi ríkisstjórnar, sem hefur gefið einstaklingum auðlindir þær sem bæirnir byggðust upp á, það eru fiskimiðinn okkar og fiskurinn.  Bundið hendur bænda á bak aftur með allskonar höftum og kvótasetningum, svo nýliðun er hvorki í landbúnaði né útgerð.   En við fylgjumst með og reynum að hvetja til dáða.   Þess vegna tek ég líka undir síðustu færslu Katrínar, þegar hún krefst þess að ríkissjónvarpið, sjónvarp allra landsmanna, ekki bara stjórnarinnar - hefji beinar útsendingar frá Austurvelli, strax á morgun, og á hverjum fundi eftir það, þangað til réttlætinu er fullnægt.

Áfram íslenska þjóð - burt með spillingarliðið!

Einhyrningur


Bloggfærslur 14. nóvember 2008

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband