7.10.2008 | 11:59
Í ósigrinum er styrkur hvers manns fólgin... Frá mínum bæjardyrum séð.
Drottningin í Apalandi.
Þegar syrtir að, og menn komast í þrot, þá fyrst reynir á styrk hvers og eins. Hér hafa orðið umskipti, hamfarir segja sumir. Ég vil nú ekki taka svo djúpt í árinni, en samt vil ég segja að þegar Geir H. Haarde segir að ekki hafi farist nokkur maður, þá segi ég á móti, að það getur sá maður ekki fullyrt á þessari stundu, því að það er svo því miður að það brennur við að menn geri eitthvað afdrifaríkt, þegar þeir standa frammi fyrir óleysanlegum vanda. Einnig geta þeir sem eru veilir á einhvern hátt, átt erfitt með að þola svona álag.
Það skal því fara varlega með að fullyrða eitthvað sem menn geta svo ekki staðið við. En eins og svo oft vill verða, þegar kreppir að, þá fara menn að leita að sökudólgum. Og vissulega eru hér sökudólgar á ferð. En þeir eru margir og koma víða að. Ekki ætla ég að réttlæta peningagreifana, en mér finnst samt leitt að heyra þegar fólk hlakkar yfir óförum þeirra. Það lyktar af öfundsýki, sem er ein af dauðasyndunum sjö. Það sem mér finnst samt verst að hugsa til, er, að ef einn af helstu ráðamönnum þjóðarinnar, hefur notað þetta ástand til að freista þess að veita fólki náðarhöggið, fólki sem almannarómur segir að hann hafi notað stöðu sína á óþverralegan hátt til að koma höggi á áður . Sérstaklega ef sá sami maður hefur svo tipsað vini og kunningja, eins og ýjað er að.
Þeir verða að tapa sem eiga, sagði eitt sinn gamall maður hér, sem hafði orðið uppvís að því að taka ýmislegt nytsamlegt ófrjálsri hendi til eigin nota. Og í sjálfu sér er það alveg rétt. Þeir eiga að missa sem eiga. Málið er að hingað til, hefur það verið þannig að þeir sem EIGA hafa sankað að sér því sem þeir sem minna mega sín þarfnast.
Græðgin hefur verið þeirra leiðarljós, og kæruleysi fyrir lífi og limum fólks í kring um þá. Þeir hafa sólundað, og örugglega komið undan fullt af peningum, sem þeir geyma á reikningum erlendis, og bíða betri tíma. Margir þeirra allavega. Þó það sé fjarri mér að hlakka yfir óförum þessara manna, þá get ég ekki vorkennt þeim heldur. Þeir hafa farið eins og engisprettufaraldur yfir bæði landið og nágrennið, og eira engu.
En við skulum ekki gleyma því, að það voru stjórnvöld sem gerðu þeim þetta kleyft, þeir brutu engin lög, þeir kunnu bara að spila á kerfið. Það kerfi sem stjórnmálamennirnir bjuggu til. Stundum sniðið að þörfum greifanna. Eins og til dæmis sjávarútvegskerfið, sem er beinlínis í andstöðu við stjórnarskrána, og felur í sér gríðarlegt óréttlæti og eignaupptöku hins almenna manns í dreyfbýlí. Og jafnvel þótt Mannréttindadómstóll hafi dæmt kerfið óverjandi, þá er ekkert gert til að laga það. Vegna þess að það hentar ekki sjávarútvegsgreifunum. Þeir ætla að gleypa allan kvótann og gína yfir hverjum fisktitti sem í sjónum syndir, meðan stjórnarskráin segir að auðlindir þjóðarinnar séu eign þjóðarinnar. Nei þeim skal verða gert kleyft að drepa niður alla einyrkja landsins, þar til þeir hafa náð öllu í sínar gráðugu krumlur. Ætli þeim verði þá ekki gert kleyft að selja fiskimiðin til erlendra aðila ? Kæmi það ekkert á óvart.
Þess vegna finnst mér einhvernveginn falskur tónn í Geir H. Haarde þegar hann er að tala um að bjarga almenningi í landinu. Hve lengi er hann búin að horfa upp á fólk gert eignalaust úti á landi, án þess að lyfta litlafingri til bjargar. Ég er til dæmis alveg viss um að við værum ekki svona illa stödd, ef fylgt hefði verið eftir tillögum Frjálslynda flokksins um betri sjávarútvegsstefnu.
Er fólk í dreyfbýlinu ef til vill ekki almenningur. Er það það sem verið er að segja ? Spyr sú sem ekki veit.
Það er líka falskur tónn í Þorgerði Katrínu, þegar hún talar um sjávarútveginn sem traustan, þegar hann stendur eiginlega á brauðfótum. Skuldugur upp fyrir haus. Og meðan allir firðir eru fullir af fiski, er mönnum meinað að veiða hann, sér til viðurværis. Fólk hefur staðið uppi eignalaust, og rúið inn að skinni, án þess að forystan hafi haft af þvi minnstu áhyggjur.
Ég geri mér grein fyrir því að ástandið er alvarlegt núna. Og að það slær alla í landinu, og að stjórnvöld eru ekki öfundsverð af þeirri stöðu sem þau eru í í dag. En ég bendi líka á að þessi sömu stjórnvöld hafa haft tíma og ráðleggingar vísra manna nú um langa hríð til að bregðast við. Mjög langan tíma meira að segja, ef marka má orð nokkurra hagspekinga eins og Þorvaldar Gylfasonar og fleiri. En þau kusu að loka eyrunum og gera ekkert. Meira að segja var forsætisráðherran svo óforskammaður að hann stærði sig af því að hann hefði ekki gert neitt, og að það hefði bjargað öllu. Hversu andvaralausir geta menn orðið. Nú eða þessi hallærislegi eltingarleikur um að komast inn í Öryggisráðið, allar þær milljónir sem lagðar hafa verið í það, bæði kostnaður ráðamanna flandrandi um heiminn, svo og gjafir, og styrkir til hinna og þessara þjóða, til að kaupa sér atkvæði.
Og það á sama tíma, og aðstaða aldraðra og öryrkja er með þeim hætti að þeir draga fram lífið, á bótum sem eru ekki sæmandi þessari ríkustu þjóð heimsins, ef maður trúir stjórnvöldum.
Nei við skulum ekki að hlakka yfir óförum annara, en einbeita okkur að því að láta stjórnvöld á okkur skilja að við viljum ekki svona ríkisstjórn, sem situr bara og gerir ekkert, fyrr en út í foræðið er komið svo djúpt, að það þarf haldreipi langt að til bjargar.
Gamli faðir minn hefur tapað miklu fé, svo er um fleiri sem hafa treyst á þessi stjórnvöld að fara með valdið í landinu. Þetta gamla fólk, sem sumt er veilt fyrir, er ómögulegt að segja til um hvernig reiðir af í þessum ólgusjó. Ég óttast allavega um minn föður. Ég vona bara ef hann kemst heill út úr þessu róti, að hann læri að treysta ekki á Sjálfstæðisflokkinn og hans pótintáta endalaust. Að það sé ekki allt sem sýnist í frjálshyggjunni, og einkavæðingunni. Sem betur fer hefur sú stefna komist í þrot, og nú þarf að huga að nýjum leiðum. Það segir sína sögu, þegar orðið "hagræðing" er orðið ógnvaldur sem hríslast eins og kaldur straumur niður bakið á manni. Því það þýðir bara það eitt, að gera einhvern ríkari á kostnað annars. Herða að einum, meðan losað er um hinn. Hagræðing eins og hún hefur verið framkvæmd hér á landi og örugglega allstaðar, hefur ekki verið hagræðing fyrir fólkið í landinu, sem forystunni er svo umhugað um núna, heldur til að þeir sem fara með völdin fái meira í sinn vasa. Og gildir þá einu hvað verður um þá sem eru fórnarlömb hagræðingarinnar.
Nei það er vonandi að þetta ástand verði til að bæta siðferðið í landanum. Að það verði til að opna augu fólks fyrir því hve lánið er fallvalt. Og hvað græðgin getur áorkað, þegar hlúð er að henni með öllum tiltækum ráðum.
Ábyrgðin er fyrst og fremst stjórnvalda, sem hafa hagað sér eins og dansendur kring um gullkálfinn, hafa lokað öllum skynfærum fyrir hættunni sem allir áttu að vera löngu búnir að sjá. Ekki hlustað á varnaðarraddir. En hlustað vel á þá vini sína, sem hafa eignast Íslands smátt og smátt, á kostnað hins almenna borgara. Þess vegna segi ég enn og aftur, það er einhver falskur tónn í rödd sem núna allt í einu vill sátt og allir eiga að leggjast á eitt, til að bjarga málunum. Gegnum tíðina hefur fólkið í landinu lagt sitt af mörkum, með þolinmæði og þraustsegju. Þrælað í sveita sína andlitis, og ekki orðið vör við þetta góðæri sem alltaf er verið að tala um. Og svo núna þegar veislan er búin, þá eiga þeir sem stóðu fyrir henni, að þrífa sjálfir eftir sig, þeir eiga svo að gera meira, þeir eiga að segja upp og fara. Hér þarf fólk sem þorir og getur tekið á vandanum. Það er allavega komin tími til að skipta út liðinu, hleypa ferskari vindum inn í stjórnmálin og fara að skilja að afdankaðir pólitíkusar eru ekki hæfir til að gegna lykilembættum í þjóðfélaginu, meðan ráðamenn eru að stæra sig af því að eiga velmenntað og velgefið fólk, þá þarf líka að treysta þeim til að fást við þau verkefni sem þau hafa menntað sig til. Slíkt á að vera sjálfsagt í þjóðfélagi árið 2008.
Lifið heil og megi allir góðir vættir vaka með ykkur öllum og vernda, á þessum hrollkalda haustdegi. Við skulum muna að öll él birtir upp um síðir, og við skulum líka átta okkur á því, að nú sem aldrei fyrr er einmitt tíminn til að fara að huga að því einfalda og smáa. Hlú að hversdagsleikanum, og sjá að hamingjan er ekki fólgin í því sem mölur og ryð fá grandað. Heldur í því að hlú að fjölskyldu og vinum. Hætta að hlaupa eftir innantómum lífsgæðum, en þess í stað halda utan um það sem næst manni er, og svo brosa sig í gegnum þennan vanda. Hann lagast, og vonandi kennir hann okkur sem flestum hve lífið er í raun og veru dýrmætt og hve það er mikilvægt að þekkja sjálfan sig, og sálina sem þar býr. Knús á ykkur öll.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (23)
Bloggfærslur 7. október 2008
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 3
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 40
- Frá upphafi: 2023304
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 29
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar