6.10.2008 | 00:39
Ferði í Reykjanes.
Hæ komin heim frá Reykjanesi. Sífellt fleiri bloggvinir tilkynna að þeir geti ekki staðið undir því að svara og koma við hjá bloggvinum sínum. ég skl það mjög vel, því ég á líka í þessum erfiðleikum, reyndar tímabundið, því ég hef einfaldlega ekki nægan tíma til að fara sómasamlega gegnum mína bestu bloggvini, til að lesa og kommentera, og þó þykir mér svo vænt um svo marga hér, og hef tekið inn á mig sem yndislega vini og félaga, og hef áhuga á því sem þeir eru að segja okkur. En ég veit líka að þegar vetrar að, þá verður meiri tími til að sinna ykkur mín kæru.
En Reykjanesið var alveg frábært, við ætluðum reyndar að hætta við að fara, þar sem ælupest herjaði á fjölskylduna, bara daginn fyrir ferðalagið, byrjaði með Ásthildi litlu, og síðan Úlfur, og við hjónin bæði með slæman maga, Hanna Sól slapp við æluna, en fékk niðurgang í kaupbæti. En ég er samt glöð að við skyldum drífa okkur af stað, því ferðin var alveg frábær.
Á fullu að pakka niður. Það þurfti að pakka öllu inn í plastpoka, því allt þurfti að vera á pallinum, og það var úrkoma.
Að vísu var veðrið falleg heima, en aldrei að vita hvað kemur í ljós.
Búið að hlaða bílinn og kerran með Kajökum til reiðu.
Við vorum komin inn í Seyðisfjörð, þegar uppgötvaðist að lyfin hans Ella míns höfðu gleymst heima, við þruftum því að snúa við og aka heim aftur, og það tók tímann sinn, með lítil börn skiptir tíminn miklu máli, en þau voru alveg frábær þessar elskur, og Drekasagan var spiluð þrisvar sinnum, og ég er ekki að plata. Versta við þessa Drekasögu er að lögin límast einhvernveginn á mann, og söngla inn i hausnum á manni tímunum saman, ótrúegt alveg. En hér erum við komin í Reykanes, og hér er afi að fara yfir ennibein og auga, nebbi flipi, munnhola og hálsakot, nefnilega að þvo og bursta tennur í stuttu máli.
Jamm og járnbrautalesin frá Ikea, var eitt af leikföngunum sem tekin var með, hún er sígild og heillar jafnvel prinsessur.
Hér er hann Halldór Sveinbjarnar, gúrú kajakræðara á Ísafirði, meistari og kennari af fyrstu gráðu, flottastur í alvöru.
Sundlaugin í Reykjanesi er víðfræg, og einstök.
Meira að segja flott fyrir prinsessur.
Hér eru ræðararnir að leggja upp í ferð um Reykjafjörð
Eins og þið sjáið þá leikur veðrið við okkur þessa helgi.
En hér eru krakkarnir í lauginni að safna saman grænþörungum. Elli sagði við mig einmitt í kvöld; Íja er þetta ekki bara það heilbrigðasta sem til er, ég veit að fólk er farið að ganga um í laugunum í Reykjavík í ilskóm út af sveppasýkingum, en hér er ekkert slíkt, getur ekki verið að náttúran sjái um heilbrigðið ?Hér er þetta bara villt og enginn spáir í slíka mengun. Guð láti gott á vita segi ég nú bara. Botnin er hreinlega teppalagður með grænþörungum.
Úsinimínikrú á kajak í sundlauginni.
Já og svo er horft á Doru og Latabæ á kvöldin
Eða að máta sundhetturnar sem amma keypti.
Svo var farið í fjöruferð. Marin sagði að strákarnir hefðu gert sér heitan pott ofan í fjöru, og vildi að við kæmum með myndavélina. Og við vorum einmitt að leggja af stað í fjöruferð.
Þetta er fallegur staður og býður upp á svo margt.
Ætlarðu að setja þetta á bloggið þitt, spurðu stákarnir, nei sagði ég en var með lygamerki á puttunum, og segi nú bara þetta eru svo flottir gaurar, og fallegt umhverfi. Þeir eru hreinlega bara flottastir.
Þetta er hreinlega alveg rosalega flott.
Já þetta virðist vera rosalega notalegt ekki satt?
Landið elds og ísa, heitt og kalt. Hvað viljum við meira og betra?
Nei þetta er bara fyrir stráka, stelpur mega ekki vera með, kannast einhver við svona ??
Krabbaskinn sem lét blekkjast af ylnum, og hafnaði í eldheitum polli, svona getur lífið leikið einstaklinga sem eru of trúgjarnir, eða halda að allt sé gull sem glóir, hann bara soðnaði í þessum heita potti, þegar sjórinn hvarf út á haf.
Sjáið bara eldur og ís, heitt og kalt kallast á.
Eg við gætum sætt okkur við það sem náttúran hefur að gefa okkur, værum við ef til vill ekki í þeim sporum, sem við erum í í dag. Að geta metið það einfalda og smáa.
Virt fyrir okkur heimsins gæði, og glaðst yfir litlu, það er leyndardómurinn að velgengni, eða í það minnsta hamingju.
Falleg glerbrot, einu sinni fann ég hreinræktaða gleði í því að fara og safna fallegum glerbrotum. Ég hefði ekki skipt þeim fyrir pening, hvað þá íslenska krónu, eða neinn annan gjaldmiðil.
Nú eða halda á fjársjóði í litlum lófa, sínum augum lítur hver á silfrið. Ættum við ekki aðeins að stoppa við og gá hvað það er sem skiptir máli ?
Og hóprunninn kemur heim þegar húmið leggst að, eftir góðan róður.
Þetta er svona fyrir þá sem voru í Reykjanesskóla, það finnast ennþá leyniskot, sem eru alveg eins og þau voru, hér var örugglega kennd matreiðsla, eller hur ?
Og hér eru ennþá skólastofur, og allt sem til þarf, og myndir á veggjum. Fyrir þá sem finna hjá sér hvöt til að halda upp á eitthvert afmæli, elskurnar þá er þetta allt ennþá til staðar !
en ef til vill ekki miki lengur, svo ekki hika við að fara að stað, og fara að gera eitthvað í málunum, áður en það er of seint.
Hér er verið að borða. Maturinn var góður.
Sumir komu langt að til að vera með.
Ókey afi, þú ert flottur!
Það er verið að fara í hópsiglingu.
Veðrið er ákjósanlegt eins og sést.
Bátarnir klárir. Og það er ennþá brunalykt af búningum kajakmanna, eftir brunan i haust.
Stubbar klárir í slaginn.
Svo þarf að æfa ýmislegt í lauginni, m.a. að hvolfa sér, og geta rétt sig við aftur, það er nauðsynlegt þegar út í alvöruna er komið.
Og þar er enginn betri kennari en Halldór Sveinbjarnarson, það get ég alveg sagt með sanni.
En ég þarf að skreppa suður á morgun, á mikilvægan fund. það kemur svo í ljós, hversu mikilvægur hann er. En svo tekur bara við þetta venjulega. Þangað til þá, hafið það gott, knús á ykkur, og ég segi bara góða nótt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
Bloggfærslur 6. október 2008
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 3
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 40
- Frá upphafi: 2023304
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 29
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar