29.10.2008 | 14:05
Við erum þjóð öfganna.
Og það er skammt öfga á milli. Við dásömuðum útrásina, og margir spiluðu með, eða allavega dáðumst að þeim sem urðu moldríkir á stuttum tíma. Margir standa nú brenndir á sálinni og í veskinu sínu, vegna þess að þeir treystu útrásarliðinu, ríkisstjórninni, tilskipuðum eftirlitsaðilum og ekki síst Seðlabankanum.
Allt reyndist þetta vera tál, og nú stendur þetta fólk á nærbrókinni einni saman, eins og keisarinn forðum, og reynir hver sem betur getur að forða sér, og ljúga sig út úr aðstæðunum. Helst vill það kenna almenningi um allt saman. Þar er hin breiðu bökin.
Sem betur fer virðist almenningur loksins ætla að hrista af sér slenið og foringjadýrkunina, og krefjast réttlætis, og ábyrgðar. Það er mjög ánægjulegt.
En, eru menn virkilega að vonast til þess að við förum úr öskunni í eldinn ? Í hræðslukastinu sem er í gangi þjóðfélaginu í dag, heimta menn að ganga í ESB. Ég set stórt spurningamerki við það.
Erum við svo bláeyg að halda að það hjálpi okkur eitthvað ? Svona til lengri tíma litið. Ég las um daginn frá einhverjum ráðamanni frá gömlu austur Evrópu, að stjórnunin í ESB væri eins og kommúnistaríkjunum hér áður fyrr. Sjá menn ekki skóginn fyrir trjám ?
Þessi krafa hryggir mig. Ég held að við ættum að reyna að komast út úr þessu af sjálfsdáðum. Og ég er viss um að við getum það. Þegar landnámsmennirnir komu fyrir meira en 1000 árum, þá voru hér bara refir og nokkrir munkar (papar).
Það voru landnámsmennirnir sem fluttu með sér það sem þurfti til að koma á þjóðfélagi. Það ætti að vera auðveldara í dag en þá.
Það sem brýnast er að gera, er að styrkja og styðja við það sem við eigum hér heima. Landbúnaðinn, fiskveiðarnar og hugvitið. Við eigum þetta allt í góðum mæli. Auk þess eigum við dugnað og útsjónarsemi. Ef við bara setjumst niður og hugsum málið.
Við höfum nefnilega margt að bjóða fram, til að selja útlendingum. Hreinar góðar landbúnaðarafurðir, mjólkin með því besta í heimi, skyr, smjör, og hvað eina sem gert er úr húsdýrunum okkar. Við eigum líka bestu ull í heimi. Ull sem auðvelt er að gera að hátískufatnaði, með góðri hönnun, og markaðssetningu. Frú Dorrit er nú þegar byrjuð að auglýsa hana.
Refa- og minnkaskinnin okkar eru hágæðavara, í öðru sæti á heimsmarkaði, hvað gæði varðar.
Við eigum líka besta fiskinn, það þarf að vísu að vinna hann meira hér heima, í frystihúsum, sem eru í hæsta gæðaflokki í heiminum. Besta hráefnið þar líka, það má meira að segja útbúa hráefnis vottun, hvaðan fiskurinn er og hvaða bátur veiddi hann, með vistvænum útbúnaði, því við myndum örugglega byrja á því að henda þessu arfavitlausa fiskistjórnunarkerfi. Þjóðir heims þarfnast matar, og við eigum stóra matarkistu, sem ekkert mál er að fylla. Ekki gleyma harðfiskinum.
Í dag er hægt að rækta korn allskonar á Íslandi, við bruggum okkar eigin bjór, sem er bestur vegna hreina vatnsins, vodka og aðra sterka drykki framleiðum við líka.
Það yrði að vísu að þjóðnýta jarðirnar sem keyptar hafa verið og ekki er stundaður búskapur á. Og fá fólk til að búa á þeim, útlendinga ef íslendingar vilja ekki.
Svo má benda á laxveiðiárnar, sem útlendingar sækja í miklum mæli, silunginn okkar, og hreindýrin.
Náttúrfegurð er mikil og orkan í náttúru Íslands er einstök og rómuð.
Fólk gerði grín að því hér mitt í öllum dansinum kring um gullkálfinn hvort menn ætluðu að lifa á fjallagrösum og lopapeysum.
Ég segi; Af hverju ekki ? Með góðri markaðssetningu er hægt að selja fjallagrös sem hágæðavöru, við höfum dúninn okkar, hann ætti að fara að seljast aftur, nú þegar krónan er ekki svona yfirspennt, lúxussængur væri hægt að fá á ný.
Við getum framleitt grænmeti og ávexti til útflutnings, ó já, með þeirri orku sem við eigum, getum við framleitt hreint og ómengað grænmeti undir gleri með lýsingu. Það væri líka hágæðavara.
Við eigum allskonar fólk, sem er á heimsmælikvarða, bæði listamenn og iðnaðarmenn á öllum sviðum. Vorum við ekki að vinna til gulls í matargerð um daginn ?
Við gætum komið upp flottum veitingahúsum um allt land, þar sem hægt væri að kaupa góðan íslenskan heimilismat. Nýmjólk beint af kúnni, rjóma og vöfflur.
Við höfum þetta allt saman.
ESB hvað ? Ég bið fólk aðeins að slaka á og hugsa málið. Ef við losnum við þessa dauðu krumlu sjálfstæðisflokksins, flokksræðisins og spillingarinnar af höndum okkar, og kjósum fólk sem vill réttlæti og sanngirni handa öllum. Þá er okkur í lófa lagið að koma okkur út úr þessum vanda á eigin spýtur.
Eitt að lokum, við eigum ef til vill aðgang að olíu á Drekasvæðinu, mjög líklega. Og er okkur þá ekki borgið.
Ágætu landar, við eigum allt sem til þarf. Það er sáralítið sem við þurfum að flytja inn, ef við hugsum málið aðeins. Ekki fara inn í enn eitt báknið. Losum okkur einfaldlega út úr því sem við erum í, og byrjum upp á nýtt. Með sparnaði og ráðdeild, með því að láta þá fá að njóta sín sem eru dugmestir, og treysta hvort öðru, þá gengur þetta. Ég er alveg viss um það. Og þá loksins getum við sagt að við séum frjáls þjóð. Laus undan oki kvalara, sem hafa einokað, þvingað, rænt og nú að lokum komið okkur á kaldan klaka.
Ekki gleyma að þeir sem hafa einokað okkur s.l. 17 ár, hafa bundið hendur okkar á bak aftur og bannað mönnum að bjarga sér, til að hygla sínum pótintátum, með því að banna mönnum að veiða fiskinn í sjónum, sett kvóta á bændur, og bannað þeim að gera að eigin framleiðslu. Boð og bönn sem hafa sett hamlandi hönd á dugmikið fólk og bannað því að bjarga sér. Nú horfir öðruvísi við, ef við förum að framleiða matvöru ofan í svangan heiminn.
Ættum við ekki allavega að reyna ?
Mitt faðirvor
Ef öndvert allt þér gengur
og undan halla fer
skal sókn í huga hafin
og hún mun bjarga þér
Við getum eigin ævi
í óskafarveg leitt
og vaxið hverjum vanda
sé vilja beitt.
Hvar einn leit naktar auðnir
sér annar blómaskrúð
það verður sem þú væntir
það vex sem að er hlúð
Þú rækta rósir vona
í reit þíns hjarta skalt
og búast við því besta
þó blási kalt
Þó örlög öllum væru
á ókunn bókfell skráð
Það næst úr nornahöndum
sem nógu heitt er þráð
Ég endurtek í anda
þrjú orð við hvert mitt spor
Fegurð-Gleði-Friður
Mitt Faðirvor.
Ég vildi að ég hefði ort þetta kraftmikla ljóð, en ég ætla að gera það að mínu faðirvori, og bið ykkur að hafa það líka nærri hjartanu á þessum erfiðu tímum.

Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (23)
Bloggfærslur 29. október 2008
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 3
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 40
- Frá upphafi: 2023304
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 29
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar