23.10.2008 | 20:45
Kósýkvöld.
Veit ekki hversu langt ég kemst með þessa færslu, rafmagnið er endalaust að fara. Áhyggjufull móðir situr út í Austurríki, endalausar fréttir af viðbúnaði og hættu á snjóflóðum. Það er erfitt að vera einhversstaðar annarsstaðar, þegar svoleiðis er, því við viljum alltaf mikla fyrir okkur, það sem við þekkjum ekki. En við höfum það gott hér í kúlunni. Rafmagnsleysið eykur bara á ævintýrið, afi að leika skrímsli, strákarnir að spila rakka, og amma leggur kabal, ekkert annað að gera með kertaljósinu. Maturinn var eldaður í flýti milli rafmagnsleysa, svo nú erum við södd og sæl.
Það hefur bætt töluvert í snjóinn, við fórum snemma að sækja stelpurnar, þorðum ekki að bíða, því veðrið var að versna.
Höfnin á Suðureyri, við þurftum að lúsast alla leiðina, sá ekki á milli stika inn á milli.
Þessar elskur voru á sínum stað, og við áttum sem betur fer brauð til að gefa þeim. Annars er þeim gefið vel af eigendum sínum.
Þá er að berjast út í bílinn.
Ásthildur hafði ekki lokið blundinum sínum þegar við komum, svo afi bar hana bara út í bílinn.
Hanna Sól fékk sér smálúr á leiðinni heim, því það var rétt þokast áfram, í seiðandi snjódrífu.
Sjáðu mig, ég næ upp hehehe
Með jólalög Borgardætra í spilaranum þokuðumst við áfram áfram áfram og þurftum oft að bíða þess að sortan lægði aðeins, svo við sæjum stikurnar. Hún amma er hjá mér um jólin, sungu þær...
Við vorum fegin þegar við komum að gangnamunnanum, þvílíkt sem þessi göng eru manni kær í svona veðri.
og þar snjóar ekki, eða er hálka.
Og svo út í sortan hinu meginn.
Við þurftum að færa foxinn, svo afi gæti komist alla leið upp að dyrum, svo við þyrftum ekki að bera börn og buru alla brekkuna.
En hann Júlli minn er að opna sýningu á verkum sínum í Edinborgarhúsinu, hann er búin að leggja nótt við dag að gera verk, og loks er allt að verða klárt, það átti að vísu að opna í dag, en veðrið var ekki þannig að það hefði neitt upp á sig.
En það var samt komið sumt upp, sem á að vera á sýningunni.
Þau eru falleg steinblómin hans.
Þessir voru allavega farnir að biða.
'Eg hlakka til að skoða sýninguna, ég veit að þetta verður mjög forvitnileg sýning, og öðruvísi en allt annað sem við höfum séð. Fjörugrjót í fyrirrúmi. Hann er meistari grjótsins þessi drengur minn
Og ennþá kyngir niður snjónum.
Þetta fer að verða jólastemning.
Sko bara !
En svo hringdi nágrannakona mín, hún Fríða á Stakkanesinu. Viltu kaupa hænu, sagði hún sporsk í símann. Þá hafði gestkomandi maður hjá henni, náð einni hænunni. En hve ég var glöð.
Og Úlfur og Daníel fóru að sækja hana.
Orðin osköp villt þessi ræfill.
Svo flýtti hún sé inn í hús.
Hvort á ég að fara á eldavélina eða örbylgjuofninn spurði hún hehehehe
Nú eða bara stofuna.
Prinsessuherbergið!!!
Hanna Sól var líka spennt og fékk að klappa henni.
Úlfur var voða duglegur.
En litla skottinu stóð ekki á sama
Já hún var bara ánægð að vera komin, og nú er hún frammi í garðskála, því ekki getum við látið hana vera eina upp í hænsnakofa. Vonandi finnast hin hænsnin líka á lífi.
Og svo fór rafmagnið, og það var nú spennandi. Og það er ennþá að koma og fara.
Strákarnir spiluðu rakka og veiðimann, afi lék skrímsli og amma lagði kabal, það er ekkert annað hægt að gera í rafmagnsleysi.
Já kósýkvöld í kvöld, með kertaljósum.
En nú þori ég ekki annað en að slútta, því ef rafmagnið fer núna, þá missi ég alla færsluna á einu bretti. Eigið gott kvöld í kvöld elskurnar, ég fer og kíki á ykkur á eftir. Knús á ykkur öll. Og Bára mín, hér er allt í þessu fína.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
23.10.2008 | 12:50
Kuldaboli konungur.
Veðrið er reyndar ekki skollið á ennþá, en það er samt blint af blautum snjó. Hér er hitinn um 0°
Hér er verið að klæða Ásthildi til að fara á leikskólann. Við vorum samt beggja blands hvort við ættum að fara með börnin.
Jú við förum sagði Hanna Sól, svo við slóum til.
Já útsýnið var ekki mikið.
En við komumst alla leið samt. Kemst þótt hægt fari segir einhversstaðar.
Og ekki varð mín fyrir vonbrigðum, því þau áttu að fá að horfa á mynd jibbý!!
Já útsýnið er ekki mikið. Við reyndum að aka eftir stikunum, því það sást ekki lengra en svo.
Og þessi hafði greinilega ekið út af, sem betur fer slasaðist ökumaðurinn ekkert. En þetta hefur verið slæm bylta.
Þessir félagar þurftu samt engu að kvíða, þeir gátu bara slakað á heima við áhaldahúsið.
En litlu prinsessurnar mínar verða örugglega glaðar að komast heim á eftir. Við ætlum að fara snemma og sækja þær.
Hér sést að Hanna Sól hefur verið í heimsókn hjá Tinnu frænku, hehehe... þær dúlla sér alltaf mikið, og naglalakk er efst á óskalistanum hjá Hönnu Sól.
Amma komdu og sjáðu litla skrímslið, kallaði afi sporskur, jú hún hafði læðst með matinn upp í rúm til Hönnu Sólar og horfir á Ladabæ. Hún gerði þetta alveg sjálf, og það var auðvitað ekki hægt að banna henni Hún var nefnilega svo hreykin af sjálfri sér þessi elska.
En eigið góðan dag, og vonandi fer þetta veður sem fyrst framhjá okkur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Bloggfærslur 23. október 2008
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 3
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 40
- Frá upphafi: 2023304
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 29
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar