Fundurinn á morgun.

Á morgun verður merkisdagur.  Það verður uppreisnardagur Íslands, ef til vill verður hans minnst eins og 1. desember.  Dagurinn sem þjóðin reis upp og heimtaði réttlæti.  Dagurinn sem snéri vörn í sókn.  Tíminn mun leiða það í ljós, en eitt er víst, til að þáttaskil verði, þá þurfa nokkur þúsund manns að mæta á útifundinn.  Það gengu 12.000 manns niður Laugaveginn með Ómari Ragnarssyni til að mótmæla Kárahnjúkavirkjun og arðráni stjórnvalda á landinu okkar.  Man ekki hve mörg þúsund mættu á kvennafrídaginn.  En í dag, minnumst við þes að stjórnvöld orðið þess valdandi að margir hafa misst spariféð sitt, og sumir sjá vart fram úr skuldafeni, við stöndum niðurlægð og einmana í hinum stóra heimi.  Það sem stjórnvöld hafa gert, svo eftir hefur verið tekið, fyrir utan all hitt, er að hafa ekki tíma til að vera á blaðamannafundi, vegna þess að það þurfti að bregða sér á íþróttaleik.  Sumir voru allof uppteknir í kosningabaráttu inn í heimsráð, sem fæstir íslendingar vildu að við færum í, og flestir töldu að væri sóun á fjármagni.  Enda fagnar almenningur því við náðum ekki kosningu, meðan ráðamenn sitja súrir og sárir.  Var einhver að tala um gjá (hyldýpi) milli ráðamanna og þjóðar... eða þannig. 

Það var þegar allt var vitlaust út af fjölmiðlalögum.  En núna þegar þetta gap er orðið að risastórri sprungu, þá gerist ekki neitt.  Hvers vegna skyldi það nú vera?  Forsetinn of innviklaður í útrásina ?

Á morgun heimtar alþýða landsins að seðlabankastjórar fjúki, að menn verði látnir bera ábyrgð á afglöpum sínum.  Er það mikið að fara fram á ?  Ég segi nei.  Ef svona lagað hefði gerst í einhverju útrásarfyrirtækjanna, þá hefðu hausar verið látnir fjúka, og það miklu fyrr.

En ef svo fer að okkur auðnist að láta til okkar taka á morgun, og það verði til þess að bankastjórar verði látnir taka pokann sinn. Þá er þessu ekki þar með lokið.  Því þá byrjar næsta skref.  Það er að krefjast þess að allir hinir verði líka látnir axla ábyrgð. Þá munu renna upp tímar þess að menn svari fyrir gjörðír sínar.  Þá mun hefjast nýtt tímabil í sögu Íslands.  Tími hins nýja Íslands.  Tími hreinsana, og réttlætis, handa þeim sem hafa svo sannarlega þurft að sitja og láta sér nægja bitana af borði þeirra sem hafa fleytt rjóman ofan af landsins gæðum alltof lengi.

Það hefur aldrei verið líklegra en einmitt nú að það gerist.  Akurinn er plægður, það hafa þeir gert sjálfir sem að þessu stóðu.  Sáningin hefur verið að koma smátt og smátt, og ef allt fer vel, þá verður uppskeran góð.  Það er komin tími til að Unga Ísland rísi úr öskustónni.  Að fólk fái að njóta sín vegna eigin hæfileika, en ekki vegna frændsemi eða klíkuskapar.  Það sést aldrei betur en núna, að þegar mannauðurinn er ekki virkjaður, þá fer illa.  Það er aldrei hægt að handstýra "réttlætinu".  Þess vegna er nauðsynlegt að þeir hæfustu séu valdir, en ekki nánustu.  Á endanum verður það öllum fyrir bestu. 

En fari svo að réttlætið sigri, þá skulum við aldrei gleyma því, að lýðræðið er dýrmætt, og það virkar ekki nema við veitum því aðhald.  Að við verðum að vera virk og samstíga í því að leyfa lýðræðinu að virka.  Þá þýðir ekki að kjósa af hlýðni við einhverja, eða af því að maður hefur alltaf kosið það sama.  Heldur verður hver og einn að bera ábyrgð á því, að veita ekki umboð sitt, nema viðkomandi hafi sýnt að hann sé traustsins verður.  Þetta verðum við að hafa í huga.  Lýðræðið er brothætt, og við höfum klúðrað því, rétt eins og útrásarliðið, af því að við höfum sofnað á verðinum, og leyft ráðamönnum að komast upp með hvað sem er. 

Ég held að þjóðarsálinni hafi verið brugðið núna, og ég held líka að ef við höldum rétt á spöðunum, þá geti þessi lífsreynsla orðið okkur til góðs.  Ef við höldum þannig á spöðunum, og förum að hugsa út fyrir eigin rann, og huga að heildinni.  Við getum allt sem við viljum.  En við þurfum að vita hvað við viljum, og sameinast um að láta það rætast.  Þá munum við standa uppi sigurvegarar, og ekkert mun þá geta bugað okkur. 

IMG_2872

Landið okkar fagra, verndum það og hugsum um framtíðina.

IMG_2873

Verum á verði gagnvart þeim sem vilja eyðileggja víðerni okkar, í stundaræsingi, eða að notfæra sér ástandið, meðan fólkið er lamað, til að knýja fram enn fleiri álver og stóriðju sem færir okkur sáralítið, en er aðallega gróði fyrir erlenda auðhringa, sem sumir hverjir hafa ljóta sögu á bakinu.

IMG_2874

Ég held að meiri hagsmunir liggi í framtíðinni í ósnortinni náttúru en öllum álverum heimsins.  Því ál á eftir að verða úrelt, en sífellt fækkar þeim svæðum sem við getum kallað ósnortin.

IMG_2880

Enda er sálarheill manneskunnar í veði ef hún hefur ekki náttúruna.

IMG_2882

Þó hlutirnir líti ekki nógu vel út í augnablikinu, þá munum við ná vopnum okkar.  Ég bið og vona að við fáum eitthvað um það að segja sjálf, hvernig við vinnum okkur út úr því, en að við höfum ekki ráðríkt stjórnvald, sem ætlar að sitja og ráða hverjir lifa og hverjir deyja.  Við erum nú einu sinni víkingar.

IMG_2885

Þetta er landið okkar.  Og framtíðin er líka okkar allra ekki bara sumra.

IMG_2887

Við megum aldrei gefa frá okkur réttinn til að vera til, við megum aldrei láta einhverja aðra ráðstafa framtíðinni okkar og barnanna okkar.  Þá verðum við að þora að segja NEI!

IMG_2870

Þetta er ísland í dag.  Við erum öll íslendingar, sem höfum kosið að búa hér, starfa hér, og ala upp börnin okkar hér.  Og þá má enginn skorast undan.

IMG_2876

Við megum ekki hugsa um gærdaginn, eða daginn í dag eða á morgun.  Því við höfum tekist á hendur það verkefni að skila ungviðinu inn í framtíðina.

IMG_2879

Sú skiyda er heilagri en nokkur útrás, eða innrás, eða gróðavon.

IMG_2884

Og þeirri skyldu megum við ekki bregðast.  Hugsum um framtíðina, og börnin okkar.  Við getum stoppað vitleysuna, á morgun er það ef til vill orðið of seint.

IMG_2886

Við erum líka þannig innbyggð, að þó við ef til vill séum ekki tilbúin til að berjast fyrir okkur sjálf.  Þá erum við örugglega tilbúin til að berjast fyrir það sem er okkur heilagt.

IMG_2889

Það er fjölskyldan, heimilið og meðbræður okkar og systur.

Þess vegna bið ég ykkur sem eruð fyrir sunnan, að sleppa því sem þið eruð að gera, og mæta á fundinn okkar allra.  Mæta fyrir okkur hin lika sem erum of langt í burtu til að komast.  Því þetta er mikilvægt. 

Við skulum ekki vera reið.  Ekki dónaleg.  En ákveðin í að láta sjá að okkur er alvara með því að vilja að réttlætinu sé fullnægt, og þeir sem bera ábyrgð á sorginni, eyðileggingunni og niðurlægingunni, verði látnir axla þá ábyrgð sem þeir hafa unnið til.  Elsku vinir mínir.  Bljúg í huga bið ég þess að fundurinn á morgun verði þáttaskil í okkar lífi.  Og að þaðan byrji endurnýjunin og uppbyggingin, sem við öll þráum.  Ég býð góða nótt. Heart

 


Sextán skrokkar - 45 fiskar !!!! Hvar er réttlætið ?

Já röggsemin er til í kerfinu, víst er um það;

Lögreglan tók sextán skrokka

bilde 
Ólöglegt er að selja heimaslátrað kjöt. Það hefur þó aukist að mati lögreglunnar á Hvolsvelli.

Lögreglan á Hvolsvelli lagði á miðvikudagskvöld hald á sextán lamba­skrokka, 300 kíló, á leið til Reykjavíkur til sölu.

Heimilt er að slátra dýrum á bóndabýlum en eingöngu til eigin neyslu. Dreifing á heimaslátruðu kjöti hefur hins vegar aukist að mati lögreglunnar á Hvolsvelli. Fjöldi tilkynninga um slíkt hafi aukist og lögreglan farin að fylgjast betur með þeim.

Bóndinn sem á í hlut á yfir höfði sér sektir og allt að tveggja ára fangelsi, verði hann fundinn sekur og brot hans talið alvarlegt. - hhs

En án þess að ég vilji hvetja til lögbrota, þá vil ég spyrja; er þetta nú mesti glæpurinn í dag ?  Væri ekki betra að snúa blinda auganu að því þegar menn vilja bjarga sér á þessum síðustu og verstu tímum.  Það er verið að vinna að því að gera heimaslátrun almennari og losa um höft og reglur, enda er enginn skynsemi í því að banna mönnum að selja heimaslátrað kjöt.  Þar er bara verið að vernda sláturleyfishafa, og ekkert annað sem það liggur að baki.  Það hefur aldrei neinn dáið af því að eta heimaslátrað kjöt.  Svo hver er þá forsendan fyrir banni, ef það er ekki til að vernda þá sem græða á því að vera milliliðir milli bænda og neytenda ?

Reynið að einbeita ykkur að aðalatriðum lífsins stjórnvöld, og látið okkur í friði með að lifa af þessar hremmingar, hvort sem það er að selja heimaslátrað kjöt, eða róa til fiskjar.  Við viljum fá að bjarga okkur út úr vandanum.  Ef þið ætlið endalaust að vera að verja vini og vandamenn, þá snáfið bara úr stólunum ykkar, og þangað sem þið eyðileggið ekki meira en þið hafið gert nú þegar.  Svei ykkur bara.  Það er hingað og ekki lengra.  Vonandi verður fundurinn fjölmennur í dag í miðborginni.  Svo þið virkilega sjáið að fólk er búið að fá nóg.


Svo er nú það. Blaðamannafundir hvað !!!

Jæja ekki gerist nú mikið á stjórnarheimilinu.  Það eru haldnir blaðamannafundir um ekkert, og það gerist voða lítið.  Ekkert sem hjálpar fólki.  Skilja þessir ágætu menn ekki, að hér þarf hraðar hendur með akútmálefni, eins og að frysta útgjöld og rukkanir, meðan allt er í lamasessi ?  Nei þeir halda blaðamannafund, og allt er leyndó, og lýðurinn logar sem aldrei fyrr.  Stíflan er að bresta, og það er bara eitt stykki blaðamannafundur um ekki neitt.  Ég get svo svarið það, hvar eru menn að hugsa.

  Það var sláandi kastljósið í kvöld, með öll ummælin og flottræfilsháttinn.  Gott framtak hjá þeim. Gefur fyrirheit um eitthvað bitastæðara, þó við vitum svo sem að það má ekki halla á stjórnvöld sjálf, nema bara í spaugstofunni.  En þessi Kastljósþáttur minnti mig óþægilega á þann ágæta sjónvarpsþátt.

Nei héðan af er sennilega best að stíflan springi og fólki streymi fram og krefjist afsagnar seðlabankastjóranna, en fólk mun ekki stoppa við það, trúið mér, skriðan mun svo taka ubeygju að stjórnarráðinu og hitta þar fyrir sökudólgana, sem stóðu að þessu öllu saman, ásamt seðlabankanum og eftirlitinu.  Auðkífingarnir hafa haft nægan tíma til að koma sínu vel fyrir borð og eru allir sem einn horfnir á braut.  Það stóð sennilega aldrei til neitt annað hjá þeim blessuðum.

En nóg um þetta, gat bara ekki stillt mig.  Því þetta vindur stöðugt upp á sig.  Og fólkið í fílabeinsturninum, situr bara og horfir yfir akurinn, og finnst það vera að bjarga heiminum, og við eigum öll að vera rosalega þakklát þeim fyrir.  En gleyma því að það voru þau sjálf sem kveiktu eldana í upphafi, og BER því að slökkva og minnka skaðan eins og hægt er. 

IMG_2853

Leikskóli lífsins, ef allt væri eins saklaust og einfalt og hjá blessuðum börnunum, þá liði okkur betur.

IMG_2854

Hanna Sól er dugleg að hengja sjálf upp kápuna sína og fara úr skónum, og koma sér inn í fjörið.

IMG_2855

Hún er í kjöl og sokkabuxum sem hún fékk sendar frá ömmu á Hellu.

IMG_2856

Skottið með ís, hún er beinlínis ísóð, þessi litli grallari. 

IMG_2858

Hér er stóri frændi að plata hana til að borða sítrónu LoL

IMG_2859

Og afi alveg jafn mikill stríðipúki.

IMG_2862

Neibb hún er ekki að væla, eða reið, þetta er sítrónufés LoL En henni fannst sítrónan samt góð.

IMG_2863

Amma taktu mynd, segir prinsessan.

IMG_2865

Og stubbur smakkar líka sítrónuna.

IMG_2867

Skottið vill svo meira af súrinu Tounge

IMG_2868

Hanna Sól talar við ömmu á Hellu í simann.  Hún er alvarleg og vandar sig að tala rétt.  En það gerir hún reyndar alltaf. Smile

Já nú er nóttin komin og tími til að fara í holuna sína.  Þó ég hugsi stjórnvöldum þegjandi þörfina, þá líður mér samt vel.  Peningar eru ekki allt.  Það er aftur á móti fjölskyldan, börnin og kúlan og allt hér i kring um mig.  Það skiptir máli.  Og svo vinir og vandamenn, þið komið þar sterklega inn Heart

Í svona krísum er gott að finna sálufélaga.  Og fólk sem er á sama róli og maður sjálfur.  Það eykur samkenndina, og maður finnur svo vel að maður er ekki eyland,  heldur félagsvera, eiginlega hjarðdýr, þó maður falli ekki alltaf inn í ramman sem samfélagið setur, þá raðast maður innan um hina. 

En ég sendi ykkur öllum knús og faðmlag, vona að þið hafið það öll sem best.  Og sendi hlýjar kveðjur til þeirra sem eru að missa vinnuna, og þeirra sem hafa tapað stórt, jafnvel með þung lán á herðunum.  Við skulum bara muna að stundum þegar manni finnst lífið leika mann grátt, þá er það oftar en ekki upphafið að einhverju ennþá betra.  Maður sér það bara ekki mitt í hringiðunni.  Þá er að bíða og sjá hvað gerist.  Knús og góða nótt Heart


Bloggfærslur 17. október 2008

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 40
  • Frá upphafi: 2023304

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband