Það er komið að okkur núna fólkinu í landinu. Við eigum rétt á því að fá að upplifa réttlæti og heiðarleika.

Já það eru skrýtnir þessir dagar.  Eitt er alveg á hreinu hjá mér, ég vil "standa saman", með islensku alþýðufólki.  En ég harðneita "að standa" saman með þeim sem eiga hér sök á þeim vanda sem við erum í.  Ég hreinlega segi að allt uppbyggingarstarf er í hættu, ef þeir sem nú halda um stjórnvölin, og þá á ég einkanlega við Sjálfstæðisflokkinn, fara ekki frá, þá er ekki hægt að tala um uppbyggingu.  Þetta fólk er algjörlega rúið trausti fólksins í landinu.

Eitt er að naga sig í handarbökin yfir að tapa fé, eða horfa upp á sitt fólk tapa stórt.  Annað er að vera reiður þeim sem þannig spiluðu.  Sér í lagi, ef þeir hafa notað tímann í sumar og haust til að flytja gullið sitt úr landi, og koma fé sínu fyrir þar sem ekki næst í það. 

En málið er að þessir menn spiluðu eftir því kerfi sem upp var gefið.  Þó þeir séu siðlausir, þá er það vitamál að enginn er annars bróðir í leik.

Og mín reiði beinist fyrst og fremst að þeim mönnum sem settu ramman utan um þessa vitleysu, og þegar þeim var bent á að þetta gengi ekki, þá stungu þeir því undir stól, og það voru líka margir sem hafa varað við þessu, og ekki var hlustað á það heldur. 

Hvernig dettur þessum mönnum eiginlega í hug, að hægt sé að treysta þeim til að halda áfram, eins og ekkert hafi í skorist.  Halda þeir að við séum svona vitlaus, eða halda þeir ef til vill, að við séum svo sinnulaus, að enn einu sinni fái þeir frítt spil ?

Ójá ég held að það sé raunin.  Þeir eru orðnir svo góðu vanir frá okkur sauðþráum kjósendum,  að þeir halda að þeir komist upp með hvað sem er.  En mér heyrist á fólki að það sé búið að fá nóg.  Loksins er fólk komið með upp í háls á vitleysunni, og vill ekki meir Geir.

Ég heyri á mörgum, að þeir vilja snúa baki við sökudólgunum.  Það er bara spurning um hvert þeir snúa sér.  Þar þurfa hinir flokkarnir að skerpa línurnar og bjóða fram það sem þeim liggur á hjarta, svo fólk geti gert upp við sig hvar það vill bera niður.  Það er verkefni sem aðrir flokkar þurfa að taka alvarlega.  Það þýðir ekki að stofna enn einn stjórnmálaflokkinn, það hlýtur að vera hægt að finna eitthvað í hinum flokkunum, sem menn geta sætt sig við.  Eða ganga inn í flokkana og breyta áherslum, það er sjónarmið út af fyrir sig. 

Nei það er alveg á hreinu að fólk hefur ekki orku í að byggja upp, með þetta lið hangandi á sínum stað áfram.  Það virðist eins og fólk þekki ekki sinn vitjunartíma.  Í seðlabankanum sitja menn gjörsamlega rúnir trausti langt út fyrir landsteinana.  Eigum við að sætta okkur við að þeir sitji sem fastast ?

Og í ríkisstjórninni er fólk sem ekki hefur dug í sér til að láta þá fara, eigum við að sætta okkur við það ?

Samfylkingin hefur þó reynt að þvo hendur sínar af þessu, en hún hefur því miður sofið á verðinum líka.  Hún á samt ekki þessa flekkuðu sögu  eins og samstarfsflokkurinn, svo hún ætti að geta klofið meirihlutan og neytt Geir út í kosningar.  Í rauninni væri það eina rétta.  Það þýðir ekki að segja að málið sé of viðkvæmt til að fara að standa í kosningum núna.  Þá á að setja upp þjóðstjórn, meðan verið er að reisa landið úr því helsi sem það er í í dag.  Ráða fólk sem hefur reynslu og vit til að vinna fumlaust og örugglega að uppbyggingunni.  Það eyðir líka óttanum um að menn ætli að hygla sér og sínum, eins og flestir óttast núna, og nóta bene að fenginni reynslu undanfarna tvo áratugi.

Byrjum upp á nýtt, með nýtt fólk í brúnni,  nýja áhöfn og nýuppgert fley.   Það sem nú er verið að reyna að gera að tjasla saman brotunum, fela sumt, stikla yfir annað, færa til og líma saman, gengur bara ekki því miður.  Við einfaldlega viljum það ekki.  Við viljum öryggi og traust, festu og áræði.  Nýtt blóð og réttlæti. Það fæst ekki ef þetta á að danka svona eins og það hefur gengið, og alltaf nýtt og nýtt að koma í ljós, undan teppinu, sem hefur verið sópað þangað af því að það var of viðkæmt.  Svei ykkur bara. 

En nú hef ég rausað nóg. Hér eru telpur sem gleðja augu og sál.

IMG_2848

Það er enginn latur í Latabæ.

IMG_2849

Og við þurfum að læra að lesa og skrifa.

IMG_2850

Og þó sumir vilji menga umhverfi okkar, og nota tækifærið núna til að heimta allskonar virkjanir og skemmdarstarfssemi á landinu okkar fagra, skulum við ekki láta glepjast af þeim, sem þannig hugsa, því það er einmitt það sem við erum að upplifa núna afleiðingar botnlausrar græðgi.

IMG_2851

Við skulum muna að hreinleiki lands er að verða sérstök auðlind, sem sífellt verður eftirsóttari og dýrmætari, eftir því sem slíkum perlum fækkar í heimi græðgi og auðvalds.

IMG_2852

Við eigum ekki þessa jörð, heldur höfum við verið svo lánsöm að fá að lifa á henni, og vera með í heimskeðjunni.  Við getum ekki skilað henni eins og við tókum við henni, en við getum reynt að lámarka skaðann. 

Burtu með spillinguna, burtu með feluleikinn, burtu með hrokan og eiginhagsmunastefnuna.  Stöndum saman um að hrekja þetta af höndum okkar, stöndum saman um að krefjast þess að fá hreint borð til að byrja nýjan dag, nýtt líf.  Við skulum standa saman um að krefjast þess að fá frið til að byggja upp aftur samfélagið Ísland.  Elskulegt fullt af væntumþykju og heiðarleika.  Við fólkið í landinu eigum kröfu á að fá að vera til, vitið hvað ? Það er komið að okkur núna.  Elskurnar ég segi góða nótt.  Stöndum saman, knúsumst og krefjumst réttlætis og heiðarleika Heart


Bloggfærslur 15. október 2008

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 40
  • Frá upphafi: 2023304

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband