13.10.2008 | 22:00
Sönn vinátta varir að eilífu.
Já maður er nú dálítið upptekin af allri þessari umræðu í þjóðfélaginu. Það er eiginlega eins og það sé steinn í maganum á manni. Og alltaf heyrast fleiri nöturlegar fréttir. Ég vona samt að við komumst öll heil út úr þessu stríði. Ef við reynum að styðja hvort annað, og hver lítur eftir næsta manni, þá gæti farið betur en áhorfir nú.
En veðrið er ágætt hér heldur farið að kólna, en fallegt veður og birtan mjög sérstök.
Já það dimmir óðum, en þá er gott að hafa kertaljós og hygge sig.
Börnin geta leikið sér saman öll þrjú.... stundum. Annars er Úlfur voða duglegur að hjálpa til með stelpurnar.
Skottan mín stóra.
Og hér eru þær báðar að fá sér kókópuffs.
Þessi mynd er tekin árið 1998, í september, ég var sum sé að fara yfir gamlar myndir. Stubburinn minn og stubban.
En ég á tvær yndislegar vinkonur, sem ég hef átt síðan 1963, við unnum allar í SÍS í Austurstræti, ég í skóbúðinni, en þær í versluninni fyrir ofan. Svo datt mér í hug að fara til Skotlands að vinna, lenti að vísu í ýmsum ævintýrum í sambandi við það. En lofaði að ég skyldi útvega þeim vinnu líka. Ég fór að vinna á elliheimili, en það var hræðilega erfitt, við máttum ekki fara út eftir níu á kvöldin, og ég undi hag mínum illa. Loks fékk ég starf sem aupair, og reddaði þeim svoleiðis vinnu líka, þær komu svo út og við áttum skemmtilegar stundir saman, í Glasgow, en síðan hefur okkar vinátta haldist, þær komu reyndar ekki aftur heim, önnur kom eftir mörg ár, en hin er ennþá búsett úti, nú í Köln í Þýskalandi. En nóg um það. Ég rakst á þessar skemmtilegu myndir af okkur vinkonunum.
Þessi mynd er tekin árið 1993, en þá höfðum við ekki hist allar þrjár í þrjátíu ár. Hér erum við að rifja upp gamla skemmtilega tíma.
Þessi er svo tekinn árið 1994.
Og 1998. Það er rosalega gott að eiga góða vini. Ég ég á nokkrar svona æskuvinkonur, Dísa mín blessunin er sú elsta, og Matthildur við ólumst upp saman. Svo á ég sænska vinkonu, og við höfum alltaf samband, hef þekkt hana síðan 1962, þegar ég fór í lýðháskóla í Vimmerby í Småland í Svíþjóð. Og svo þessar elskur. Og auðvitað margar fleiri.
Þessi mynd er tekin sama ár, eða 1998 í Tívolí í Danmörku.
En ég var að fá myndir af litla barnabarninu mínu að sunnan, honum Arnari litla Milos.
Ósköp notalegt með pabba sínum.
Mömmur eru líka alveg spes
Ekkert smá sem hann hefur stækkað, síðan ég sá hann síðast.
Fallegur drengur. Og með þessum yndislegu myndum býð ég ykkur góðrar nætur elskuleg.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
Bloggfærslur 13. október 2008
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 3
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 40
- Frá upphafi: 2023304
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 29
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar