Dominikanska- sögulok.

Jæja þá eru sögulok í ferðinni til Dominikanska lýðveldisins.

 Síðasti dagurinn var sólríkur, en þó lúrði rigninginn einhvernveginn á bak við.  En við fórum á ströndina í síðasta skipti.

Domingo5 232

Tvö hlæjandi börn gengu fram hjá og kölluðu, góðan dag gamli maður góðan dag.

Domingo5 239

Rigningin lúrir á bak við sólargeislana.

Hér eru nokkrar myndir af frábærum ferðafélögum okkar.

Domingo5 056

Beðið eftir rútunni til Sanktó Domingo.

Domingo5 059

Slakað á í lobbíinu.

Domingo5 208

Þessar tvær yndislegu konur voru nágrannar okkar, ég sat stundum og átti gott spjall við þær. 

Domingo5 220

Hér hafa menn það gott við sundlaugina.  Það sést að menn eru komnir í ferðafötin.

Domingo5 222

Sæt saman Úlfur stubburinn minn og hún Freyja litla. 

Domingo7 011

Þarna erum við á leið út í vélina.  Endalausar biðraðir búnar, fyrst biðröð við inntékk, síðan biðröð við vegabréfaskoðun og svo við leitina.  En svo kom í ljós að við þurftum að labba út í vélina.  Ferðinni hafði verið flýtt af öllum uppákomum, sem  varð svo til þess að við þurftum að bíða heillengi í vélinni, því fólk var ekki alveg með á nótunum.  Svo stóð á skjánum gamli brottfarartíminn sem var nokkrum klukkutímum síðar. 

Svona gera menn bara ekki held ég.

Domingo7 021

Það var heilmikil bið í flugvélinni, meðan leitað var að og beðið eftir fólkinu sem ekki hafði fylgst nógu vel með.  Enda finnst mér einhvern veginn að það sé ekki hægt að flýta brottför, bara af því að áhöfnin vildi komast heim sem fyrst, þau höfðu meðvind út. 

Domingo7 028

Þetta er svo himnagallerið bakdyrameginn.

En svo komum við til landsins, sveitt svekkt og þreytt, og hvað haldiði að taki við?

Jú móttökulið grátt fyrir járnum, teknir allir vökvar, úr skónum og allsherjar leit.  Það var ekki mjög ánægjulegt.  Ég sýndi víst einhverja óánægju og stúlka ein af þeim sem hefur ekki þroska í einkennisbúning, sýndi af sér mikinn hroka, þú verður að leita betur í dótinu hennar, sagði hún illkvittnislega, og setti veskið mitt fyrir framan ungan tollvörð, hann grautaði aumingjalegur í veskinu með annari hendinni meðan ég horfði á hann manndrápsaugum.  Annar farþegi hafði smálögg af Beefeater í handtöskunni, hún var tekin upp og sýnd öllum sem þar stóðu, taktu hana bara hvæsti maðurinn út úr sér, eða drekktu hana ef þú vilt það frekar.

Ég verð að segja það maður hefur oft og mörgum sinnum komið heim frá ýmsum stöðum í heiminum, en að fá svona velkomstmóttöku, er meira en hægt er að þola.  Hvern andskotan voru þeir að taka af manni vatn og vökva þegar maður er að koma ÚT ÚR FLUGVÉLINNI OG INN Í LANDIÐ? 

Ég hugsaði ekki fallega til Halldórs Ásgrímssonar í það skiptið, þetta fjandans chengensamkomulag, sem hann langaði svo til að komast í.  Bretar höfðu vit á að standa utan við þetta. 

Svo á að velja vel það fólk sem klæðist einkennisbúningum, sumt fólk þolir bara ekki að fá þannig yfirráð yfir öðrum. 

Ég átti í smá samræðum við Björn Bjarnason litlu seinna, og sagði honum að ég væri ekki hress með þetta.  Hann benti auðvitað á að þetta væri Chengensamkomulagið sem við ættum þátt í og yrðum að fara eftir.  Ég segi nú bara þetta er óþolandi, við vorum í leiguflugi, sama fólki sem fór út og kom inn.  Og allir að koma heim til sín.  Er þetta nú ekki að fylgja einhverjum reglum út í æsar.  Ég er ennþá bálreið. 

Domingo7 041

Ekki varð svo undan því vikist að koma við í Toys R us, stubbur þurfti endilega að skoða, hann átti ennþá einhverja peninga frá jólunum.

En svo lá leiðin heim.

Domingo7 049

Í íslenskt veðurfar.  Það er svo sem bara gott líka. 


Hið eina og sanna valdarán.

Svona mitt í allri uppákomuni í henni Reykjavík, þá get ég ekki annað en brosað út í annað.  Hér hafa

 menn hneykslast fram og til baka á kjörnum fulltrúum borgarinnar, sem sagðir eru stinga hvor annan í bakið, stunda klækjastjórnmál og ég veit ekki hvað og hvað.  Fólk er að kafna úr vandlætingu yfir því sem það kallar svik við kjósendur,  óheiðarleg vinnubrögð og svo framvegis.

Held meira að segja að grandvarasta fólk hafi falið hnífasettin sín í læstri skúffu.

 En þegar maður skoðar málið betur, þá verður að viðurkennast að enginn hefur farið jafn illa úr út þessum klækjum og refskákum og Frjálslyndi flokkurinn.  Samt er hann hafður að skotspæni og skammaður fyrir tiltækið. 

Málið er að í borgarstjórnarflokki Frjálslyndra og óháðra, er meiri hluti stjórnarmanna í Íslandshreyfingunni.  Fjórir efstu menn eru þar, ég man ekki hvar á listanum Gísli Helgason er, en hann er okkar maður einn af fáum Frjálslyndum á honum, síðan kemur Sveinn Aðalsteinsson sem líka hefur gengið úr flokknum.  Það er því Íslandshreyfingin sem á flesta fulltrúa á lista Frjálslyndaflokksins og óháðra. Sniðugt ekki satt ?  Og jafnvel ennþá sniðugra er eftir því sem mér skilst þá hafa menn úr Íslandshreyfingunni verið settir í nefndir á vegum borgarinnar, sem aldrei hafa komið nálægt Frjálslyndaflokknum, eins og Jakob Frímann Magnússon til dæmis.

Svo eru menn að væla yfir því að kjörnir fulltrúar skipta um meirihluta, og finna því allt til foráttu, ég segi nú ekki margt.  Hvernig er þessi pólitík eiginlega að verða hjá okkur, einn hrærigrautur? 

 Íslandshreyfingin er nokkurskonar klofningur úr Framtíðarlandinu, sem ætlaði sér stóran hlut í íslenskri pólitík.  Síðan gerist það að Margrét tapar varaformannskjöri og verður reið, rífur sig frá frjálslyndum, og það fylgja hennir nokkrir einstaklingar, þar á meðal þessi þrjú sem með henni tróna í efstu sætum F-listans, og alla leið inn í Íslandshreyfinguna.  En klofningnum er ekki lokið, því þessir fjórir einstaklingar hafa síðan skipst niður í tvær einingar, þ.e. Ólafur og Ásta annars vegar og hinsvegar  Margrét og Guðrún.  Nú vantar bara að Margrét og Guðrún fari í hár saman, og þá er þessi Íslandshreyfing orðin að öreindum. 

 Þetta er raunar mjög sérstakt og af því verið er að tala um svik og óheiðarleika, þá spyr ég, hvernig getur fólk sem er í öðrum stjórnmálaflokki, en sitja sem kjörnir fulltrúar fyrir  flokkinn, talist áháðir ?  Ein þeirra meira að segja varaformaður annars stjórnmálaflokks? 

Allt í lagi ég get skilið Ólaf  F. og Ástu, þau eru með sínum gjörðum að stuðla að framgangi þess sem þau lofuðu í kosningabaráttunni á sínum tíma.  En ég get ekki skilið hinar tvær, því þær ætla sér ekki að starfa eftir þeim loforðum sem þær gáfu.   Margrét kynnti það hátíðlega og glaðhlakkaleg, eins og ekkert væri sjálfsagðara, það hefur reyndar lítið heyrst í Guðrúnu, þeirri mætu konu. Margrét segir stolt að hún ætli ekki að styðja Ólaf, sem er að vinna að framgangi kosningaloforða sem þau bæði gáfu fólki í síðustu kosningum.  Og samt finnst fólki þessi kona trúverðug ? Einhver annar hefði verið kallaður vindhani og af minna tilefni.

Sérstaklega þegar það hefur verið upplýst af Ástu Þorleifsdóttur að Ólafur hafi sagt sínu fólki viku fyrir skiptin að hann ætti í viðræðum við Sjálfstæðismenn. 

 

Ég get ekki að því gert að mér finnst það ekki gott mál að sitja sem fastast á lista Frjálslyndra, í skjóli

þess að hún sé óháð, þegar hún er varaformaður í Íslandshreyfingunni.  Það er von að Ómar hjali þýðlega um allt aðra hluti, þegar hann hefur sitt fólk raðað niður á F-listann.  En ég held að þetta fólk ætti sem minnst að tala um heiðarleika og góða siði í stjórnmálum.

 Það er líka pínu fyndið að fylgjast með mínum mönnum,  sem vita ekki í hvorn fótinn þeir eiga að stíga, eiga í erfiðleikum með að svara.  Þeim finnst þeim koma þetta lítið við, og þó er þetta allt gert í nafni Frjálslyndaflokksins. Þeir minna mig dálítið á þorska á þurru landi, þessar elskur. Þetta er eiginlega bara drepfyndið, ef maður hefur húmor fyrir svoleiðis þ.e. dálítið svartan.  Ég hugsa að fáir vildu vera í þessum sporum, talandi um valdarán, þá er eina valdaránið sem framið hefur verið að mínu mati,  yfirtaka Íslandshreyfingarinnar yfir Frjálslyndaflokknum í Reykjavík.

Eitt ætti að vera nokkuð ljóst að Frjálslyndi flokkurinn býður ekki fram í nafni Frjálslyndra og óháðra aftur. 

Þetta er nú bara svona smápæling hjá mér, þegar maður hefur lítið annað að gera en að passa þæg og góð börn og leika sér í tölvunni Smile

ferð til V'inar 018

Megi blessun, ljós og friður fylgja ykkur öllum á Ísaköldu fögru landi Heart


Bloggfærslur 29. janúar 2008

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 2023307

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband