Arkitektúr og börn það er málið.

Ég fæ oft gesti heim til mín, hvaðanæva úr heiminum.  Það er allskonar fólk, bæði hérlent og erlent.  Sumir koma af forvitni eins og gengur, aðrir vilja kynnast þessu skrýtna fólki aðeins nánar, finna einhvern samhljóm með okkur. 

Það koma eðlilega þó nokkuð margir arkitektar, þeir hafa komið víða frá, til dæmis Mexícó og Skotlandi, það hefur mikið borið á því, með það ágæta fólk, að þeir öfunda íslenska arkitekta af því frelsi sem þeir hafa við að teikna hús.  Það er til dæmis í Skotlandi, verður nýtt hús í götunni að vera alveg eins eða mjög svipað og hin húsin í götunni, menn eru bundnir af hæð og lögun húsa.  Þetta er víst svona víða.  En hér í Austurríki virðist frelsið vera jafn mikið og heima, munurinn er sá, að þeir þora meira hér, og leggja meira upp úr arkitektúr en við heima, þar sem eru mest í dag bara kassar.

Ég tók nokkrar myndir í dag, og ætla að sýna ykkur hvað ég á við.

En fyrst fylgjum við Hönnu Sól í leikskólann.

Á leið í leikskólan arkitektur 010

Hér er mikil uppbygging, og stórar háar byggingar, mest gler og stál, en þessi leikskóli er mitt í öllum stóru húsunum, lágreist bygging, með garði í kring, og leikvöllur við hliðina.  Það er greinilegt að það er ekki búið að taka jólaskrautið niður ennþá.

Á leið í leikskólan arkitektur 012

Hér er björt forstofa, sem börnin leika sér í stundum, meðan þau bíða eftir að vera sótt, þarna sést lítil verslun, sem er örugglega spennandi að leika í, og svo kubbarnir stóru sem þau hafa mikið gaman af að raða upp og hnoðast í.  Í miðjunni í loftinu er svo stór gluggi, sem varpar skemmtilegri birtu inn.

En að byggingunum á leiðinni.

Á leið í leikskólan arkitektur 006

Hér sést hvað þeir eru óhræddir við að tengja saman gamlar byggingar með nýju efni, tankarnir eru allir tengdir saman með svona glerskálum.

Á leið í leikskólan arkitektur 014

Hér er verið að byggja fimm svona nýjar blokkir hinu meginn við götuna, sem er reyndar aðeins aðgangsgata að tönkunum.  En einhversstaðar hefði nú þetta ekki talið geta gengið upp, svo gjörólíkar byggingar, og takið eftir hvernig þeir halla veggjunum, þetta er mjög algengt hér.

Á leið í leikskólan arkitektur 016

Þetta er skelin svokallaða, hún er blokk sem byggð er utan á einn tankinn, takið eftir forminu á henni, hún er hærri en tankarnir, og liggur að tanknum á einum stað.  Þetta er stórkostlegt finnst mér.  Ljótt myndi einhver segja.  En þarna eru um 600 íbúðir.

Byggingar við Dóná 015

Þetta stórhýsi minnir mig alltaf á Orkuveituhúsið í Reykjavík, þetta er eins og Títanic, og stefnið stendur upp yfir borgina, eins og sökkvandi skip, einskonar Hallgrímskirkjuturn. 

En hér hefur mikið verið byggt, og líka rifið niður.  Og þegar þeir rífa niður hús, þá er það rifið niður, steipan kurluð niður í möl og allt efnið endurnotað.  Það er ekki verið að aka burt með steypuklumpa og kasta þeim í fjöru einhversstaðar eða urða.  Húsin eru bókstaflega tekinn niður í smæstu agnir og endurnýtt.

Á leið í leikskólan arkitektur 005

Ekki veit ég hver verða örlög þessa kofa, þetta er hesthús, einhverra sem sitja niður í miðbæ með hestakerrur.  Maður horfir á hestana hvíla sig á morgnana úr í gerði sem er þarna hinu meginn við.  Svo fara þeir í vinnuna sína niður á torg.  En sennilega mun byggingin víkja fyrir blokk.

Svo ein að heiman, fyrir fjallafólkið mitt.  Ég veit að sólin er komin lengra niður núna, en þessi er tekinn um svipað leyti í fyrra.

Byggingar við Dóná 365

Og svo svona í framhaldi af heima, þá var hún Sunna frænka mín og bloggvinkona, þessi elska að eignast son þann 24. janúar.  Drengurinn er 14 merkur og 51 cm.  Anna frænka mín og Beta ef þið slæðist hingað inn, þá er Sunna dóttir Dóru systur.  Ég þori ekki að setja inn mynd af honum, en ég get sagt að hann er stórglæsilegur með Fljótavíkurútlitið á hreinu.  Heart

Elsku Sunna mín innilega til hamingju með litla ungan þinn, ég veit að þú verður rosalega góð mamma, þú ert alltaf svo ljúf og hlý.  Heart

 


Stundum getur maður verið alveg gaga.......

Stundum getur maður verið alveg úti að aka.  Ég fór með Hönnu Sól litlu á leikskólan áðan, og datt í hug að fara í búðina í leiðinni, það vantaði ýmislegt og ég var með handtöskuna mína.  Þegar ég var búin að tína heilmikið ofan í körfuna, þið vitið, það er allt svo ódýrt að maður freistast til að kaupa meira.  Komin að kassanum, og búin að tína allt upp á bandið við kassann,  fatta ég allt í einu að peningaveskið er uppi í íbúð, ég flýti mér að skella öllu ofan í kerruna aftur og muldra að ég hafi gleymt veskinu mínu, óþarfi að taka fram, að það var löng biðröð, og það er einhvernveginn þannig hér að fólkið er allt meira og minna fýlulegt, svona sem maður hittir ókunnugt á götunni og búðunum, meira að segja kassafólkið lítur á mann eins og hundaskít.  En ókey ég hleyp upp, sem betur fer bara steinsnar í lyftuna upp sæki veskið og það er auðvitað kominn ennþá lengri biðröð þegar ég kem niður aftur.  En sem betur fer hef ég nægan tíma hér.  En samt ekki það skemmtilegasta að lenda í svona í útlöndum.

En ég var að segja hér áðan að ég fékk kveðju frá vinkonu minni sem býr hér,  við ætlum að hittast eitthvað kvöldið á næstunni, en hún er að vinna í Kindermuseum, safni fyrir krakka, þar sem hægt er að fara með þau og leika sér og jafnvel skilja þau eftir í einn til tvo tíma.  Þar er risaleirsalur, 3 tonn af leir, þar sem foreldrar og börn leira saman.  Svo er líka annar salur þar sem er allt gert við hæfi barnanna, risaskip og allskonar horn og hollur til að skríða í.  Þetta er mjög vinsælt.  En þarna eru líka sýningar og fyrirlestrar, síðast þegar ég var hér, var sýning á flóttamannabúðum, sýnt hvernig flóttamenn búa, og aðstaða bæði hvað varðar flóttamenn sjálfa sem búa í tjöldum, læknatjöld og aðrar aðstæður, þetta var unnið af læknum án landamæra.  Hér er mikið gert af því að uppfræða almenning um stöðu mála í þriðja heiminum. 

Ég tók nokkrar myndir af safninu síðast þegar ég var hér.

Hanna Sól og fleiri jan.2007 025

Hér er verið að leira.

Hanna Sól og fleiri jan.2007 037

Pabbar og mömmur hafa ekki síður gaman af þessu leiri en börnin.

Hanna Sól og fleiri jan.2007 057

Hér er svo hinumeginn.  Mjög áhugavert fyrir ungana að skoða og leika sér. Þarna er Hanna Sól að skoða.

Hanna Sól og fleiri jan.2007 060

Risaskip, með kvóta og alles, að vísu eru það plastfiskar.

Hanna Sól og fleiri jan.2007 066

Kristine vinkona mín og Hanna Sól í safninu.

Hanna Sól og fleiri jan.2007 009

Talandi um byggingar, þeim er ekkert heilagt í þeim efnum.  Þetta er reyndar listaverk, draumahúsið, þar sem öllu er snúið á hvolf, eins og húsið Slunkaríki hans Sólons forðum, nema þar snéri allt út sem átti að snúa inn, og öfugt.  Hér snýr allt á hvolfi. 


Inn í Tanknum og smárabb.

Er að hugsa til ykkar í snjónum og ófærðinni.  Vona samt að veðrið hafi lagast.  Og ég er alveg viss um að börnin eru himinsæl með allan þennan snjó.

Mér datt svona í hug að sýna ykkur myndir innan úr miðjunni á tanknum sem ég er í.  Þar snúa gluggar inn í miðjuna, og neðst yfir verslunarmiðstöðinni er glerþak. 

Ég er búin að sjá stjörnu með Chris Rea, Toto og fleiri frægum sem hafa haldið tónleika hér.  Það er bara gaman að skoða hérna niðri fótsporin og handaförin þeirra, skemmtileg hugmyndi líka. 

 inn í Gasometer 006

Hér sést tekið uppávið, og aðeins í skreytinguna ofan á tanknum.

inn í Gasometer 007

Hér má aftur á móti sjá niður á þak verslunarmiðstöðvarinnar, en ég er á áttundu hæð.

inn í Gasometer 004

Hér er svo ein mynd af stelpunum í baði, og Romína, hún er rosalega yndisleg manneskja og við höfum fundið okkur sameiginlegt mál, svona bland af þýsku og táknmáli, okkur gengur því ágætlega að tjá okkur hvor við aðra ef það er ekki of flókið. 

Ferð til Rvíkur og Bára, Hanna Sól og Hildur Cesil. 152

Hér er svo ein  mynd af þessum tveimur Ásthildum Cesiljum sem til eru í heiminum.  Hún grettir sig vegna sólarinnar.  En það er dálítið skrýtið að heyra sífell kalla Ásthildour ! og ef hún gerir eitthvað af sér, enda er hún rosalegur prakkari, sérstaklega iðin við að stríða stóru systur, þá heyrist Ásthildour Cesil.  Hehehehe.. en það er líka mjög ljúft og ég er afar hreykin af að þessi litli frábæri einstaklingur ber nafnið mitt, hún á eftir að gera það með miklum sóma.

Eigið annars góðan dag.  Gott að fara út í snjókast það er ekki svo oft sem sunnlendingum gefst færi á því.

 


Bloggfærslur 28. janúar 2008

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 2023307

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband