26.1.2008 | 13:30
Dóminic ferðabrot og fleira.
Ferðin til Dóminikanska lýðveldisins. næst síðasti kafli.
Við fórum eldsnemma um morguninn af stað til Sankto Domingo, sem er elsta borg í Ameríku, hún ber nafn sitt af því að sjálfstæði landsins bar upp á sunnudag. Í höfuðborginni búa um 3 milljónir manns. Á leiðinni er borgin San Diego, sem er helsta menningar- og menntaborg landsins. Þar búa um ein milljón manns. Þeir hafa tvo hátíðisdaga, sjálfstæðisdaginn og svo þjóðhátíðardaginn, en það er dagurinn sem Trujillo var myrtur.
Meðfram Osama ánni er virkisveggur til varnar elsta hluta borgarinnar með fallbyssum og upphlöðnum veggjum. Þar uppi er svo Kólumbusartorgið, og elsta gata borgarinnar, Kvennagatan, sem ber nafn sitt af því að konur í höllu sonar Kólumbusar gengu hana á hverjum degi, ýmist í kirkju eða sér til heilsubótar. Dómkirkjan stendur við þetta torg, sem ég held að heiti Kolumbusartorgið, þar er stytta af honum þar sem hann bendir í norður til Puerto plata, og segir; þaðan kom ég, en varð að flýja, vegna óvinveittra innfæddra manna. Sumir segja líka að hann bendi einfaldlega til Spánar.
Dómkirkjan lætur lítið yfir sér, en hún er mjög flott að innan, segja þeir sem þangað fóru. Ég er frekar lítið fyrir að skoða kirkjur. Út frá torginu er svo göngugata þar sem er líf og fjör. Allskonar drasl til sölu. En flottar búðir inn á milli.
Á leið okkar um borgina sáum við Faróann, vitann svokallaðan, sem byggður var á tímum eins einræðisherrans, hann er um 240 metra langur, og myndar kross sem sést einungis úr lofti.
þar eru í dag fjölmörg söfn, og tekur um 2 klst. að fara yfir þau öll, og ekki hægt að snúa við, eða fara til baka, heldur verður að halda striki alla leið til enda. Menn hér segja þessa byggingu vera bruðl, yfir 1. milljón dollara, og svo þarf að kynda hér með rafmagni, sem er dýrt.
Olía er líka dýr hér, þeir flytja olíu inn frá Venezuela, og þurfa að kaupa hana, meðan Kúpverjar hafa skipti á olíu og læknisaðstoð. Þeir Kúpverjar fá ókeypis menntun, en verða þess í stað að vinna fyrir ríkið í þrjú ár. Þessi þrjú ár eru læknanemar sendir út um allan heim, til að vinna fyrir ríkið. Meðal annars hér í Dominikanska lýðveldinu, þeir hafa nú reist hátæknisjúkrahús í San Diego, og þar vinna að mestu kúpverskir læknar.
Í Sanktó Domingo eru flestir auðmennirnir, þeir búa í sér bæjarhverfi, þar er allt ríka og fræga fólkið. Meðal annars hornabolta hetja sem vinnur í Bandaríkjunum, en er héðan. Reyndar utan af landi, þar sem hann hefur byggt risastóran hornaboltavöll, þar sem börnum úr sveitum landsins gefst kostur á vikudvöl við að læra hornabolta. Hann á líka risaeinbýlishús í höfuðborginni, þar sem Clintonhjónin gistu, þegar þau heimsóttu landið.
Dóminikanara skipta árstíðum ekki eins og við gerum, heldur skipta þeir niður í þurrkatímabil og regntímabil. Nú á að vera þurrkatímabil, en hefur rignt óvenjulega mikið. Þeir hafa áhyggjur af gróðurhúsabreytingum, því hér koma meiri og fleiri fellibyljir en áður, og valda meiri skaða. Í regntímabilinu sem er frá júní til nóvember, er svo rakt og heitt að það væri ólíft fyrir fólk sem ekki er vant slíkum hita.
Eitt vinsælasta aðdráttarafl ferðamanna hér er Tres Ohos, eða hin þrjú augu, sem eru neðanjarðarvötn. Það var fyrst risastór hellir, en í jarðskjálflta datt þekjan niður á einum stað, og myndaði þrjú vötn í stað eins, vötnin eru um 24 °heit, og synda þar í fiskar og skjaldbökur. Á árum áður baðaði fólk sig upp úr vötnunum, og hélt að þau væru mjög heilsusamleg, en nú má enginn syndar þar nema einn maður, sem þeir kalla Tarzan, hann klifrar eins og api á veggjunum, og stingur sér til sunds eina 14 metra niður í vatnið, sem er um 4 metra djúpt. Gaman að sjá.
Hetja kallar til sjómanna og bænda um að afnema þrælahald.
Skútuhöfnin í Sankto Domingo, hún er við ósa Osama árinnar, Osama þýðir á indíjánamáli djúpt vatn.
Virkisvegguriinn, hér má sjá ungt skólafólk í skólabúningum.
Kristófer Kolumbus hér á miðju Kólumbusartorginu og bendir í norður, á stöplum styttunnar má sá skipslíkön, 4 skip, eitt fyrir hverja ferð sem Kólumbus fór hingað út. Stúlkan á myndinni að klifra upp er Anna, stúlka sem barðist fyrir tilverurétti innfæddra, og er hetja hér, og allir skíra sínar stúlkur Önnu.
Hér er svo dómkirkjan lætur ekki mikið yfir sér svona utanfrá.
Elsta gata borgarinnar, Kvennagatan, hér eru allar helstu opinberar byggingar, borgarinnar. Þ.e. sögulegar. Götumyndin er friðuð, af UNESCO og má ekki breyta hér neinu.
Grafhýsi hetja Dóminikana. Hér hvíla hetjurnar. Fáninn er rauður og blár með hvítan kross, krossinn er tákn trúarinnar, rauði liturinn táknar blóð sem úthelt var í sjálfstæðisbaráttunni og blái liturinn frelsið og himininn.
Hér má sjá fallbyssurnar sem allar horfa út á Osama ána. En hér hefur verið mikið um sjóræningja og árásir.
Höll annars sonar Kólumbusar, þess sem var hér landshöfðingi. Man ekki hvað hann heitir.
Brúin yfir Ósama, sem tengir saman borgarhlutana.
Hér er faraóinn, eða vitinn, sem hefur verið bruðlað með peninga þjóðarinnar, vegna áhuga eins manns, þess sem þá ríkti sem forseti.
Hér erum við svo ofan í neðanjarðarhellunum. Sannarlega flottur staður. Það er sagt að indíjánarnir hafi falið sig þarna niðri þegar spánverjarnir komu.
Göngugatan.
Fólk her hefur mikla tilhneygingu til að auðkenna sig með einhverju móti, hér eru starfsmenn á bar, öll eins. En þetta er fallegt fólk og glaðsinna.
Þessi litla snúlla dansaði fyrir mig, fjölskyldan greinilega úti að skemmta sér.
Varðmenn við gamla borgarhliðið.
Og stubburinn gaf sig á tal við þau auðvitað.
Alvaran ristir ekki djúpt hjá þessari þjóð, og ljúfmennskan alltaf efst undir yfirborðinu.
Hér má sjá forsetahöllina eftirmynd hvítahússins í Washingon. Forsetinn býr hér.
En hér er hver sjálfum sér nógur með allt, það er bara búið til, ef ekki fyrir hendi.
Þetta er Cordillera Central fjallgarður sem liggur þvert yfir eyjuna.
Menn gera ekki miklar kröfur um húsnæði í sveitinni, og litlu kofarnir hljóta að vera klósettinn færanlegu.
Eftir ferðalagið var farið í hið daglega minigolf. Þetta var virkilega skemmtileg afþreying.
Komin aftur á aðalgötuna þjóðveg eitt. Hér eru allskonar farartæki, mikið eru þeir á litlum hjólum, og svo er hlaðið í bílana, börnin standa og allri fjölskyldunni troðið upp í bílinn, konur með ungabörnin í framsætinu og annað við hliðina og svo öll hin aftur í, eða upp á bílpalli, engar varúðarkröfur að þvi er virðist, og dálítið hrollvekjandi ef maður spáir í rommið og þjóðaríþróttina.
Öryggisvörðurinn okkar.
Og hliðvörðurinn.
Svo eru líka öryggisverðir við allar dýrari búðir. Öryggið á oddin nema í umferðinni.
En næst ætla ég að skrifa aðeins um síðasta daginn, og heimferðina, sem fékk nokkuð óvæntan endi.
En ein mynd af dagrenningunni í ´Vín.
Tekin út um gluggan á GasometerA einum af fjórum gastönkum sem hér var breytt í íbúðarhúsnæði.
Litla nafna mín í morgun og mamma hennar.
Og Miriam, Hanna Sól og Ásthildur í gærkvöldi.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Bloggfærslur 26. janúar 2008
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 1
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 38
- Frá upphafi: 2023307
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 27
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar