Það ríkir mikil heift í okka litla landi á þessum dögum. Fyrst fer Framsóknarflokkurinn á flakk, og bræður berjast og draga alla hina eftirlifandi framsóknarmennina með sér í lið. Meira að segja formaðurinn tekur afstöðu með öðrum, aðilanum.
Síðan uppákoman með borgarstjórnarskiptin. Þetta kom mjög á óvart, eins og sprengja sem springur mitt í daglegri önn.
Ég er sem betur fer ósnortin af öllu þessu haveríi og get horft á þetta utanfrá. Og ég held að ég sé loksins að skilja dálítið í íslenskri þjóðarsál. Það er von að ekki gangi betur að breyta þjóðfélaginu og fyrir smærri framboð að hasla sér völl. Hér er nefnilega allt rekið á tilfinningaskalanum.
Menn spá ekkert í málefnin, eða hvað menn ætla að standa fyrir, en meira í hvort þessi maður sé gamall, ljótur, veikur eða hallærislegur. Og ég er að tala almennt. Það er von að málefni eigi ekki upp á pallborðið hjá íslendingum, þegar þau eru bara ekkert á dagskrá hjá fólki almennt.
Það færi betur að við hefðum stefnumáli meira á hreinu og ætluðumst til að þeir sem bjóða sig fram fyrir okkar hönd, standi fastir á því sem þeir lofuðu fyrir kosningarnar. Þá væru stjórnmál ef til vill á hærra plani en þau eru í dag.
Ég veit satt að segja ekki hvað ég á að halda um tilurð þessara atburða. Hver byrjaði og hvar. Það er öruggt að einhversstaðar var haldið af stað út í foraðið með gulrót. En mér dettur heldur ekki í hug annað en að gulrótin hefði dugað illa, ef allt hefði verið í lagi.
Þess vegna er ég nokkuð viss um að samstarfið var ekki eins slétt og fellt og verið hefur látið uppi. Og vangaveltur um að Ólafur F. hafi ekki fundið sig í meirihlutanum virðast vera nokkuð á rökum reistar. Menn mega ekki gera lítið úr eða gleyma læknisvottorðinu, það hefur meiri þýðingu en menn halda.
Hins vegar er allt ferlið að mínu mati skrýtið. Þetta leynimakk og umræður í fylltum reykherbergjum hugnast mér ekki. Það á auðvitað að koma hreint fram og segja hlutina eins og þeir eru. Þannig að auðvitað skilur maður að menn séu sárir, svona ofan á að missa völd, þá kemur þetta eins og blaut tuskaí andlitið.
Og nú hefur verið hafin undirskriftasöfnun. Hvað ætla menn að gera við hana ? Mér er spurn. Eru þetta ekki allt kjörnir fulltrúar Reykjavíkur, og hver sem meirihlutin er, þá er meirihluti atkvæða á bak við þau. Það er því lýðræði sem okkur ber að virða, þó sumum hugnist ekki niðurstaðan.
Ég veit ekki hvernig þetta fer, en ég hef engar áhyggjur eða missi svefn út af ástandinu. Ef þessi meirihluti heldur, þá sýnist mér að þeir hafi skýr málefni og ætli sér að standa við þau. Ólafur er þarna vogarafl fyrir þá sem minna mega sín. Málið er að Ólafur F. Magnússon hefur starfað mikið fyrir aldraða og öryrkja, hann er líka friðunarsinni, og gömlu húsin í miðbænum eru honum heilög. Ólafur er líka maður sem vill standa við orð sín. Hann sýndi það á sínum tíma þegar deilurnar um Kárahnjúka voru sem háværastar, að hann lætur ekki hagga sér með þau málefni sem hann stendur fyrir. Hann virðist því vera sigurvegarinn í þessu ferli, sjálfstæðismenn í bóndabeygju hans. Þeir sem ekki hugsa fallega til sjálfstæðismanna geta allavega huggað sig við að þeir þurftu að lúta lágt til að fá sitt fram. Og allt var það til góða fyrir borgarbúa.
Ef þessi meirihluti hinsvegar fellur þá er spurning um hvað gerist. Þá fyrst verður algjör ringulreið í borginni. Menn ættu því að spara stóru orðin og særingarnar og sjá hverju fram vindur.
Ég vona bara að síðustu uppákomur breyti pólitíkinni. Ólga og gos geta róað framvinduna. Ef eitthvað gott kemur út úr þessu, þannig að fólk fari að skoða betur málefninn og kjósa þá sem setja fram skynsamlegustu tillögurnar, og fylgja því eftir að þeir efni sín kosningaloforð, eða refsi þeim ella, þá er þetta ekki til einskis.
Tilfinningar og get ekki kosið þennan flokk af því að þessi maður er í honum, eða slíkt á ekki heima í lýðræðislegu samfélagi. Sá málefnasamningur sem flokkarnir setja fram í kosningabaráttu á að gilda, og fólk á að geta kosið þær hreyfingar sem þeim hugnast best, menn eiga líka að vera óhræddir við að breyta til, og refsa þeim sem lofar og stendur ekki við loforðin. Að heyra staðhæfingar eins og ég kýs þennan flokk af því að ég hef alltaf kosið hann, og af því að amma kaus hann eða pabbi eiga að heyra fortíðinni til. Þessi sjónarmið eru grundvöllur fyrir stöðunni núna. Þessi hugsunarháttur hefur skapað pólitíkusa dagsins í dag. Þeir vita að þeir eiga sitt fylgi hvað sem þeir gera, og þeir vita að hvað svo sem þeir gera af sér, þá fá þeir sín atkvæði. Þeir hafa því orðið kærulausir og latir vegna áhugaleysis okkar um okkar rétt og skyldu í lýðræðisþjóðfélagi. Við getum því engum kennt um nema okkur sjálfum. Það er okkar að breyta ástandinu. Það er okkar að veita þessu fólki aðhald og sýna þeim að við líðum ekki svik og pretti. Það er okkar að refsa þeim fyrir afglöp í starfi með að kasta þeim út í næstu kosningum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (26)
22.1.2008 | 12:05
Daglegt veður og ferðabrot.
Í dag er leiðindaveður, rok og rigning, það er samt að ganga niður.
Svona lítur þetta út í dag, en ég tók nokkrar skemmtilegar myndir í gær í yndislegu veðri.
Dálítið rómantísk ekki satt og máninn fullur.
En að ferðasögunni.
Þegar hér er komið sögu, þá var farið að rigna. Og það var enginn smárigning, eins og hellt úr fötu. Það þurfti að flytja fólk úr nokkrum íbúðunum, því þar var ökladjúpt vatn yfir alla íbúðina einn morguninn. Í byrjun ferðar höfðu nokkrir samferðamenn verið óánægðir með íbúðir sínar, og verið fluttir til og frá. Við gerum aðrar kröfur til vistarvera en fólkið þarna suðurfrá, það er nokkuð ljóst. Við vorum reyndar alveg ánægð með okkar íbúð, gerum ef til vill ekki of háar kröfur, enda ýmsu vön. Frá okkar ferðalögum.
Það var ekkert smá sem kom niður. Og þá var um að gera að vera nógu fljótur að hlaupa í var, þegar droparnir byrjuðu að falla. Það rigndi ekki jafnt og þétt, heldur komu sólarblettir inn á milli.
Það voru fleiri að taka myndir af þessum ósköpum. En þessu var bara tekið með léttu skapi og brosi. Samferðamenn okkar voru sérlega yndislegt fólk, það var aldrei neitt vesen eða röfl, skemmtilegt fólk sem var alltaf í góðu skapi. Það er ekki hægt að hugsa sér betri ferðafélaga.
Það hefur ekki verið sérlega skemmtilegt að vakna að morgni, og þurfa að fara fram úr rúminu við svona aðstæður. En þessu var tekið með jafnaðargeði og brosi.
Þá var fínt að grípa í spil, meðan sem mest rigndi.
Og í uppstyttingum var sest og málin rædd, um að gera samt að hafa regnhlífina við hendina.
Á kvöldin var svo skemmtun, annað hvort karaoki, bingó eða dans, nú eða eins og hér sannarlega flott show.
Hér má sjá hana Ingu okkar, gleðipinnan sjálfan. Þessi í svarta kjólnum.
Stubbur í léttri sveiflu.
Ekki amalegur dansherra.
Svo er gott að fá sér eina góða mynd fyrir svefninn.l
Ég las nokkrar bækur í þessu rigningatímabili, Við enda hringsins, eftir Tom Egeland, fín bók, sama thema og Da Vinci lykillinn, nema þessi er skrifuð nokkrum árum fyrr. Gerist í Noregi og víðar. Síðan las ég Mæling heimsins, bráðskemmtileg bók um tvo ferðalanga sem þvælast um heiminn til að mæla hann, á nítjándu öldinni eða um aldarmótin 1800 - 1900. hún er eftir Daníel Kehlmann. Frábær lestur. Svo hafði ég með mér tvær ljóðabækur Fimmta árstíðin eftir Toshiki Toma og Geiravísur eftir Magnús Geir Guðmundsson báðir bloggvinir mínir. Þeir eru skemmtilega ólíkir höfundar, þar sem Magnús fangar augnablikið með því að yrkja um viðburði samtímans á mjög skemmtilegan hátt, einskonar samtímaheimild, allavega rifjuðust margir atburðir upp fyrir mér við lesturinn, þá yrkir Thosiki meira inn á tilfinningasviðinu og náttúrunni. Reyndar á ég eina ljóðabók í viðbót eftir kæran bloggvin en það er ljóðabókin Ópus Alfa eftir Jón Steinar Ragnarsson.
En meira seinna.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Bloggfærslur 22. janúar 2008
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 1
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 38
- Frá upphafi: 2023307
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 27
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar