21.1.2008 | 13:55
Hið daglega veður á Ísó og annar hluti ferðasögunnar.
Hið daglega veður er byrjað aftur, í dag er yndislegt veður, vonandi verður það svoleiðis áfram.
Fallegir litir í morgun eins og sjá má.
Svona liti sér maður ekki víða í heiminum held ég.
Hér er til samanburðar himnagallerí Domingo.
En annan janúar fórum við í Ocean World, en það er dýragarðurinn þeirra, þarna nærri Portó Plata, þar er líka casino eitt mikið. Það skemmtilega við Ocean World er að í stað þess að þar séu sýningar á hæfni dýranna, eru dýrin þjálfuð til að leika sér við mannfólkið. Þar eru skötur, hákarlar, háhyrningar, höfrungar og önnur sjávardýr, sem finnst gott að láta klappa sér og strjúka á sér mallakútinn. Það byrjar með því að þeir sem ætla í návígi við dýrin fá kennslu í hvar megi snerta þau og hvað megi alls ekki gera. Síðan fara menn í sundgalla og þeir sem fara út í vatnið settir í björgunarvesti, þar er mikil eftirvænting hjá smáfólkinu, þegar haldið er út í vatnið til dýranna.
Hér eru hákarlarnir yndælis dýr, sem finnst gott að láta strjúka á sér magann. Sköturnar eru hér algjör gæludýr eins og í Belize.
Sumum var þó um og ó við að fara út í vatnið til hákarlanna, því margir hafa auðvitað lesið og heyrt hrikalegar sögur af þeim skepnum.
En eins og sjá má, þá eru þeir bara ljúfir og góðir. brosa meira að segja til fjöldans.
Þetta er hún Rosíta, hún er flott, til í að leika sér við fólkið.
Hér kyssir hún stubbinn.
Og dansar við afa, hún þáði líka síld frá fólkinu og skemmti sér hið besta, gengdi öllum hreyfingum þjálfara síns, sem einmitt stendur þarna á bak við og sér til að allt fari vel fram.
Þessi var ekki síðri rak út úr sér tunguna framan í fólkið, og var rosalega klár.
Sjáið bara hvað ég get stokkið, hann synti líka með fram fólkinu og fékk klapp og strokur hjá hverjum og einum.
Jamm það fer vel á með þeim félögum.
Það var rigning þegar við fórum í Ocean World, en það gerði hreinlega ekkert til, því allir urðu meira og minna blautir hvort sem er.
Þriðja rigningardaginn ákváðum við að fara og kaupa okkur eða leigja vídeóspólu, höfðum séð verslun þarna i nágrenninu. Stubburinn sá mynd sem honum leist vel á, er þessi á ensku ? spurðum við. Já já sagði búðarmaðurinn og sonur hans skoppaði þarna hjá, að læra aðferðina.
Þegar heim kom, var spólan ekki bara á spænsku, heldur líka svona sjóræningjaspóla, bara hulstrið ekta heheheh.... þeir fóru afgarnir til að skila spólunni. Búðarmaðurinn greip eina og sagði þessi er á ensku, við viljum sá sýnishorn sögðu þeir, já auðvitað sagði hann, setti spóluna á og enskt lag hljómaði úr tækinu, ókey, sögðu þeir.
Svo þegar heim var komið, þá var lagið bara á ensku allt hitt á spænsku. Það er ekki annað hægt en að brosa að þessum gaurum.
Daginn eftir voru þrumur og eldingar, það var dálítið spennandi, og öðruvísi sólarlandaferð. Þetta er annars dálítið sérstakt, því nú á að vera þurrkatímabil. Vatnið er orðið ökladjúpt og sumar íbúðirnar á floti.
Smá fróðleikur;
Áður en Kólumbus kom til eyjanna var hún byggð Arawak indíjánum. Fyrstu leyfar menningar þeirra má rekja aftur til 2600 fyrir krist.
Kristofer kólumbus finnur Hispanola eyjuna árið 1492. Um 1509 eru svo afrískir þrælar fluttir til landsins. En 1797 er vesturhluti eyjunnar látinn til frakka, en austurhlutinn tilheyrir Spáni.
1795 er uppreisn þræla, þeir berjast með frökkum sem ná yfirvöldum á eynni.
1804 er Haiti stofnað, það er í dag næstfátækasta ríki heims.
1812 ná svo spánverjar aftur yfirráðum yfir austurhlutanum. 1821 lýsir Jose Nunéz Cocoares yfir sjáflstæði Santo Domingo. En 1822 tekur forseti Haiti yfir Sankto Domingo.
1844 27. febrúar er svo Dóminiska lýðveldið stofnað og lýst yfir sjálfstæði. Juan Pablo Duarte sem hóf sjálfstæðisbaráttuna er lýstur þjóðhetja. Meira seinna.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Bloggfærslur 21. janúar 2008
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 1
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 38
- Frá upphafi: 2023307
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 27
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar