7.9.2007 | 15:49
Hvað varð um litlu Madelein McCann - what happened to Mary Jane ?
Þetta er á allan hátt frekar ógeðfellt mál. Ef foreldrarnir eru saklausir, þá er það skelfilegt ofan á sorgina að þurfa að standa sem sakamanneskjur frammi fyrir heiminum.
Ef aftur á móti þau hafa sett brotthvarf hennar á svið, vegna þess að Madelein litla hefur dáið inn á heimilinu, þá er málið jafnvel ennþá ógeðfeldara. Því það bendir til þess að hún hafi verið beitt harðæði sem orsakað hefur dauða hennar. Það er þá eina skýringin á hvers vegna foreldrarnir hafa sett brottnám hennar á svið, til að fela áverka á líkama hennar.
Ég vona að þetta andstyggilega mál taki enda sem fyrst, á hvorn veginn sem er, svo við viðkvæmt fólk getum hætt að velta okkur upp úr þessu. Meðan það er sífellt í fréttum, þá er erfitt að líta framhjá því.
![]() |
Kate McCann hefur ekki verið ákærð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
7.9.2007 | 10:14
Smákrúttfærsla, veður og sultutau.
Þá er litla skottan mín komin út í kerruna sína. Búin að borða hafragraut, taka lýsi og banana í eftirrétt. Svo kom pelinn sér vel, fá sér mjólkursopa meðan maður sofnar. Mikið rosalega er maður fljótur að detta aftur inn í hlutverkið, þó það séu komin yfir 30 ár síðan, með smá upprifjun með stubbnum. Og þá er ég ekki bara að meina að kunna handtökin, heldur detta inn í rulluna, að hafa smábarn, það þarf að forgangsraða öllu upp á nýtt, og maður er ekki lengur sjálfs sin herra, ónei það er komið lítið yfirvald sem skipar fyrir, og það þýðir ekkert að andmæla, hehehehe....
Svo er hún til og með farin að skríða, hún mjakar sér áfram, þangað til hún kemst þangað sem hún ætlar sér að fara, og leiðin liggur alltaf út af teppinu.
Það þarf nefnilega að skoða hvað er þarna niðri, það er allt eitthvað svo spennandi, sérstaklega þegar alltaf er verið að reyna að taka mann í burtu.
Afi þarf líka stundum að fylgjast með manni.
Svo kom hann Sigurjón Dagur stóri frændi í heimsókn, eins og svo oft.
Jamm það fjölgar sífellt á teppinu.
Það er að mörgu að hyggja.
En veðrið var mjög gott í gær, hlýtt og blankalogn. Það er svipað í dag, nema það er dálítil rigning, en sólin er að berjast við að koma fram.
Birtan er voða falleg á þessum árstíma.
Það skiptast á skyn og skuggar, og gerir allt svo eftirtektarvert.
Yndislegt verður sem var í gær. Og það var svo hlýtt líka.
Bóndinn fór á kajak, jamm þessir tveir deplar þarna er hann og annar ræðari.
Flottir ekki satt.
En svona er lífið, skin og skúrir. Best er að hugsa jákvætt um hvorttveggja. Gleðjast þegar sólin skín, en þakka fyrir regnið sem nærir plönturnar.
Vinkona mín, ein sem vinnur með mér, kom færandi hendi í gær. Hún gaf mér sultu, en ekki neina venjulega sultu, því það var annars vegar hrútaberjasulta, rosalega góð og fersk og síðan hélurifssulta, hún er líka mjög góð. Það var aldeilis gaman að fá svona góðar gjafir. Hún er rosalega dugleg við að sulta.
Þessi mynd var svo tekin rétt áðan, og sýnir hvernig sólin reynir að þrengja sér gegnum skýin. Henni tekst það áreiðanlega.
Að lokum mynd af stubbnum mínum. Hann er hér að hugleiða um landsins gagn og nauðsynar, ekki veitir af að einhver hugsi, ekki gera ráðamenn það. Eða svo finnst manni stundum.
Óska ykkur annars gleðilegs dags.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
Bloggfærslur 7. september 2007
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 0
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 31
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 28
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar