30.9.2007 | 16:08
Smá ferðasaga.
Það er virkilega gaman að vera á ferðinni á þessum tíma, að öllum öðrum árstíðum ólöstuðum, má segja að náttúran tjaldi sínu fegursta á haustin. Með sína fallegu liti og fegurð.
Og þar sem mikið hefur rignt undanfarið voru fjallafossar fjörugir og svolítið ærslafullir.
Þessi heitir nú reyndar Rjúkandi og er í Hestfirðinum.
Stórglæsilegur og lyngið eldrautt.
En himininn vildi ekki láta sitt eftir liggja, og sendi okkur regnbogann sinn litfagran eins og til að skreyta ennþá meira.
Aðalerindi mitt var nú reyndar að fara á miðstjórnarfund Frjálslynda flokksins. Sem var reyndar mjög góður og málefnalegur.
Á fundinn voru fleiri boðaðir, vegna kynningar á hinum ýmsu málefnum, sem okkar góðu alþingismenn ætla að standa að í vetur.
Hér sést nýráðinn framkvæmdasstjóri flokksins, Magnús Reynir Guðmundsson, Magnús er gamalreyndur í slíka stöðu, þar sem hann var lengi aðstoðarmaður bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar og bæjarritari, og vann í mörg á hjá útgerðarfélaginu Hrönn hf. á Ísafirði. Þar er því ekki í kot vísað, eða tjaldað til einnar nætur.
Stund milli stríða, tvær sætar saman úr miðstjórninni, önnur er bloggvinkona mín hún Hanna Birna frá Vestmannaeyjum.
Eins og sjá má er vel unnið og kempurnar þungt hugsi. Enda barátta framundan.
Hér má sjá Pétur Bjarnason framkvæmdastjóra og Bárð Halldórsson formann framkvæmdaráðs flokksins. Báðir skeleggir og miklir baráttujaxlar.
Fundurinn var mjög góður og gagnlegur. Þaðan fóru allir sáttir, eða frekar sáttir. Gott hljóð var í mönnum, og greinilegt að okkar menn hlakkar til að takast á við pólitíkina í vetur. Þeir munu síðan örugglega njóta góðs af okkar fyrrverandi þingmönnum, sem því miður náðu ekki inn núna, en koma vonandi inn aftur hressir næst, þeir Sigurjón Þórðarson, Magnús Þór Hafsteinsson og Valdimar Leó. Þeir verða þarna örugglega einhversstaðar á bakvið að taka höndum saman við forystuna, og ég er viss um að með samstilltu ákaki tekst okkur að láta rödd okkar heyrast. Í kvótamálunum, velferðarmálunum, útlendingamálunum og auðindamálum almennt, orkumálum og slíku. Þeir eru greinilega tilbúnir, og við munum fá að heyra frá þeim fljótlega með sín góðu mál.
Svo á laugardagsmorgunn hittumst við aftur á Sægreifanum og þar var vel mætt af almennum félagsmönnum, og nokkrir framsóknarmenn rákust þar með svona eins og gengur. Það féll í góðan jarðveg það sem okkar menn hafa í farteskinu. Ég lenti svo í skötuveislu, þetta var góð skata, en ekki vel kæst að vestfirskum sið.
En þar sem við vorum á leið til Hveragerðis, þá var hringt í okkur. Það var vinur okkar kúlukarlinn sem börnin mín kalla svo. Arkitekinn Einar Þorsteinn Ásgeirsson sem teknaði kúlunna. Hann var einmitt staddur í borg óttans og vildi endilega hitta okkur. Hann var þar með unnustu sinni, listakonunni Manúelu Gudrún Rosvitadottir, það er hægt að skoða verkinn hennar á www.crystaldesign.kingdome.de ef þið hafið áhuga á fallegum hringjum elskurnar. Hún var hér með sýningu. Þau búa í nágrenni Berlínar, og una þar hag sínum vel.
Hér má sjá þau með mínum manni, við sitjum á kaffi París.
Hún er rosalega flott kona hún Manuela.
Einhver var að spyrja um Einar Þorsteinn hér ekki fyrir svo löngu síðan. En hann er hægt að nálgast á WWW.einarthorsteinn.com eða hjá samstarfsfélaga sínum Ólafi Elíassyni athafnarmanni. Ef þið haldið að þetta sé auglýsing þá er það rangt, þau er bara svo frábær, og það er gaman að skoða heimasíðurnar þeirra. Einar er flippdýr hið mesta og mér sýnist hún vera svipuð. Það er öldungis frábært. Ég elska svoleiðis fólk.
Ég er hér með risaprojekt í gangi Elli... hvísl hvísl hvísl hehehehehe......
Svo buðum við börnunum okkar sem eru í henni Reykjavík út að borða. Tengdasyninum Bjarka og syni Elíasar og hans elskulegu unnustu. Þar er á leiðinni 18. barnabarnið mitt. Aldeilis frábært ekki satt.
Sæt saman.
Við fórum á indverskar veitingastað á Hverfisgötunni, þar var mjög góður matur. Þar sá ég þessar krúttlegu litlu fallegu stelpur. Smellti af þeim myndi til að Jenný og þið hinar færuð í krúttkast hehehe...
Hér er svo ein mynd þegar við erum að yfirgefa svæðið.
En ég hitti nokkrar vinkonur mínar á Hressingarskálanum á laugardaginn, sumar fengu sér súpu, aðrar kaffi, en moi ég fékk mér rauðvín. Þarna var pólskur maður, sem vildi endilega tala við okkur, þó hann talaði hvorki ensku né íslensku, bara hrafl í þýsku og frönsku fyrir utan pólskuna. Svo datt honum í hug að bjóða okkur upp á rauðvín. Bloggvinkona mín hún Merlin var einmitt ein af þessum elskum. Kom í nýju flottu peysunni sinni, sem hún var að ljúka við að ganga frá. Haldiði að þjónninn hafi ekki helt heilu rauðvínsglasi yfir hana og nýju peysuna. Þjónsgreyið alveg eyðilagður. Heldur dapurlegt, en ég vona að hún nái blettunum úr peysunni, þessi peysa var reyndar rosalega flott.
Ætla að setja mynd af henni hér inn, þ.e. peysunni, er búin að taka höfuðið af henni Merlin minni. Því ég vil ekki setja mynd af henni hér inn á án leyfis, en hér sést hvað peysan er flott, hún er að vísu með úlpuna sína yfir stærstu blettunum.
Jamm þetta er nú svona ferðasaga úr ýmsum áttum. En það er líka gott að koma heim, nú skín sólin og það er hlýtt og notalegt.
Vonandi eigið þið ánægjulegan dag í dag.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
Bloggfærslur 30. september 2007
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 0
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 31
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 28
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar